Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Page 2
Fréttir DV 2 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2008 0 I LANDHELGISGÆSLAN Leit hætt vegna myrkurs Leit að Cessna-vélinni sem hvarf af ratsjá seinni hluta gær- dags var hætt um klukkan níu í gærkvöldi vegna myrkurs. Gert er ráð fyrir að leit hefjist að nýju þegar birtir í dag. Flugmaðurinn sem er bandarískur var einn í vélinni sem var á leið frá Nars- assuaq í Grænlandi til Reykja- víkur. Vélin var um 50 sjómflur vest- ur af Keflavík þegar hún missti afl á öðrum hreyfli. Björgunarbátar eru yfirleitt í Cessna-vélum en ekki er vitað hvort flugmaðurinn hafi náð að koma honum á flot. Minnihalli Viðskiptahallinn við út- lönd var meira en helmingi minni en árið áður, að mati greiningardeildar Kaupþings. Arið 2006 keyptu íslend- ingar vörur og þjónustu ffá útlöndum fyrir 26 prósent hærri upphæð en þeir fengu á móti í viðskiptum. Samkvæmt spá greiningardeildarinnar var þetta hlutfall komið niður í tólf prósent á síðasta ári og á eftir að lækka enn frekar. Á næsta ári gerir greiningar- deildin ráð fyrir 9,7 prósenta viðskiptahalla. Lögsækja ekki HBGranda Verkalýðsfélag Akraness hefúr ákveðið að aðhafast ekki frekar varðandi hugsanleg máiaferli vegna uppsagna hjá HB Granda á Akranesi. Ástæða þessa er breytt afstaða Granda til þeirra starfsmanna sem missa vinnuna. Nú er ljóst að þeim verður veitt aðstoð við atvinnuleit, aðgengi að viðeigandi námskeiðum og aðstoð við gerð ferilskrár. Alþýðusamband íslands gagnrýndi uppsögnina mjög og taldi hana brjóta í bága við lög um hópuppsagnir. Lögin eru skýr „Lögin virðast taka af öll tví- mæli," segir Björgvin G. Sig- urðsson viðsldptaráðherra um heimildir fyrirtækja til að greiða einstökum hlutafjáreigendum fyrir sinn hlut á yfirverði. Við- skiptaráðuneytið fór í gærmorg- un yfir lög um kaupréttarsamn- inga í kjölfar þess að Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta, tilkynnti að hann ætli í mál við stjórn Glitn- is vegna kaupa á hlutabréfum Bjarna Ármannssonar. Björgvin segir það vera dómstólanna að kveða upp úr í því tilviki en sjálf- ur sér hann ekki ástæðu til laga- breytinga að svo komnu. Þegar íslensku bönkunum er líkt við Northern Rock er ástæða til að hafa áhyggjur. Guðni Ágústsson ítrekar mikilvægi þess að jákvæðri umræðu sé haldið á lofti en við búum nú við að erlendir fjölmiðlar segja hér allt i kaldakoli í Qármálaheiminum. í kjöl- farið versnar staða íslensku bankanna enn meir og þurfa þeir nú að draga úr útlánum. Geir Haarde segir skammt að bíða aðgerða. Krefst aðgerða Guðni Ágústsson fór mikinn á Alþingi (gær og krafðist þess að ríkisstjórnin grípi inn í hnignun íslensks viðskiptaKfs. Geir Haarde tekur undir með Guðna um að aðgerða sé þörf og segir að skammt sé að b(ða þess að mótleikur stjórnvalda verði kunngerður. 'ebrúar 2008 1*1 flrJTf] 1 »1[ r‘111 mjj Ih [lllil Jfil í! „Það er illa talað um ísland í við- skiptalöndum okkar og það ber að leiðrétta," segir Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins. Hann kvaddi sér hljóðs í óundirbún- um fyrirspurnartíma á Alþingi í gær og vakti athygli á alvarlegri stöðu ís- lensku bankanna. Guðni segir rétt að staðan á íslenskum fjármálamörkuð- um sé erfið en ósanngjörn umfjöllun erlendis geri enn verra. I DV í gær var fjallað um grein í The Sunday Times þar sem íslensku bönkunum var líkt við Northern Rock sem beið eitt stærsta gjaldþrot fjármálafyrirtækis á síðari árum. Eft- ir neikvæða umfjöllun um bankann mynduðust biðraðir fyrir utan hann og fólk tók út innistæður sínar með þeim afleiðingum að hann lagði upp laupana. Óttast er að breskir spari- fjáreigendur láti verkin tala á ný eft- ir að varað hefur verið við íslensku bönkunum sem eiga þar útibú. Yfirdráttarlánin næst í röðinni Guðni segir efnahagslægðirnar halda áfram að dýpka og mikilvægt sé að spoma við þeirri neikvæðni sem einkennt hefur umfjöllun er- lendra fjölmiðla um íslenskt við- skiptalíf að undanförnu: „fsland býr við þá umræðu í viðskiptalöndum sfnum að hér sé allt í kaldakoli og að fara norður og niður." DV sagði einnig frá því í gær að íslensku bankarnir dagi nú úr út- lánum, að íbúðarlán og bflalán hafi dregist saman og talið sé að næst sé röðin komin að yfirdráttarlánum. Ásgeir Jónsson hjá greiningar- deild Kaupþings sagði af því tilefni að nú séu erfiðir tímar fyrir íslenska banka og hann teldi almenning ekki hafa gert sér grein fyrir stöðunni. Skorar á ríkisstjórnina Guðni skoraði á rfldsstjórnina að grípa inn í af hörku og berjast fyrir ís- lensku atvinnulífi. Hann segist hafa varað stjórnvöld við þessu en ekki var hlustað. Guðni benti á að vekja þyrfti meiri athygli á sterkri stöðu þjóðarbúsins og þeirri staðreynd að Jsland býr við þá um- ræðu í viðskiptalönd- um sínum að hér sé allt í kaldakoli og að fara norðurog niður." við búum við eitt sterkasta lífeyris- sjóðakerfi heimsins. Geir H. Haarde forsætisráðherra segir þetta góða hugmynd sem ver- ið hafi á dagskrá rfldsstjórnarinn- ar: „Það er mikilvægt að við tökum höndum saman um að vinna að því þjóðþrifamáli að útrýma ranghug- myndum um íslenskt viðskiptalíf." Ósætti um evruna Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, tók einnig til máls á Alþingi og benti á misræmið milli ríkisstjórnarflokkanna í afstöðu þeirra til upptöku evrunnar. Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra Samfylkingar, hefur talað fyrir því að það væri mikið heillaskref fýrir fslendinga að taka upp evruna en Geir H. Haarde, forsætisráðherra Sjálfstæðisflokks, þvertekurfyrirslíkt. Kristni finnst undarlegt þegar það er „...ekld lengur viðskiptaráðherra sem talar fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar í málum sem heyra undir hann". Seðlabankinn ábyrgur Vilhjálmur Egilsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, sagði í sam- tali við DV í gær að peningastefna Seðlabankans ætti stóran hlut að máli í því hvernig komið sé fyrir ís- lensku bönkunum og að sífellt hækk- andi stýrivextir hafi stórskaðað þá. Seðlabankinnbirtirnæstuákvörð- un sína um stýrivexti á fimmtu- dag. Miklar vonir eru bundnar við að vextimir verði lækkaðir, en þeir standa nú í 13,75 prósentum. Ennfremur sagði Vilhjálmur að ef umskipti yrðu ekki þarna á myndi at- vinnuleysis hér á landi verða vart fyr- ir alvöru á haustmánuðum. Geir Haarde segir að þess sé ekki langt að bíða að ríkisstjómin kunn- geri til hvaða ráða hún taki til að rétta af íslenskt viðskiptalíf. ERLA HLYNSDÓTTIR blodamodur skrifai: erla&dv.is Fimm félagar eru búnir að stofna Vísindakirkjuna hér á landi: Vísindakirkjan komin til íslands „Þegar það var rætt að færa flugvöllinn úr Vatnsmýrinni fannst mér og nokkrum félögum kjörið að stofna Vísindakirkjuna í þeim tilgangi að sækja um að reisa risa- stórt félagsheimili fyrir kirkjuna," segir Arnór Geir Jónsson, einn af stofnendum Vísindakirkjunnar á íslandi en félagasamtökin voru stofnuð í kringum 2000 af Arnóri og fjórum félögum. Sjálfur segist hann ekki ganga sama trúarveg og Vísindakirkjan en myndi fagna þeirri trúarlegu fjölbreytni sem yrði kæmi kirkjan hingað til lands. „Auðvitað væri það frábært fyr- ir fjölmenningu í trúarbrögðum að fá eina skrautfjöður, sem vísinda- kirkjan er, í viðbót við aðra flóru hér á landi," segir Arnór sem iðkar þó ekki trúna. Hann segist sjálfur þeim sem ekki hafa gengið í gegn- óhemju dýrar. vera flokkaður af vísindakirkjunni um viðtalsmeðferð á vegum kirkj- „Ég hef ekki haft efni á slíkri sem Prea clear en það er heitið á unnar. Slíkar meðferðir geta verið meðferð enn," segir Arnór en Vís- indakirkjan er ákaflega umdeild í öðrum löndum og má meðal ann- ars nefna að kirkjan er bönnuð í Þýskalandi. Ástæðan er einfald- lega sú að þar er litið á hana sem pýramídasvindl. Einnig er kirkj- an þekkt fyrir að ganga mjög hart gegn þeim sem standa gegn henni en þeir aðilar eru flokkaðir sem SP innan kirkjunnar. Skammstöfun- in stendur fyrir bælda manneskju, eða suppressive person. „Þetta er nú lengsti brandari sem við höfum haldið gangandi," segir Arnór en hann segir fjölmiðla hafa reglulega samband við sig auk þess sem vitleysingar hringi af og til í hann eins og hann orðar það. Sjálfur segist hann ekki vilja leggja félagið niður, það standi of tilfinn- ingalega nærri þeim félögum til þess að það verði gert. valur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.