Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Síða 7
DV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2008 7 Grétar Mar Jónsson gagnrýnir Háskóla Islands harölega fyrir aö þiggja styrk frá LIU til rannsókna á kvótakerfi. Hann vill að þeir sem standa vörð um kvótakefið verði dregnir til ábyrgðar fyrir að standa í vegi fyrir einföldum mannréttindum. Helgi Áss Grétars- son segir mikilvægast að hann sé starfsmaður Lagastofnunar, ekki styrkþegi LÍÚ. „Ég er starfsmaður Lagastofnunar en ekki styrkþegi Lands- sambands íslenskra útvegsmanna." þess að þeir sem eiga kvóta eigi rétt á skaðabótum. „Standast meginregl- ur núgildandi stjórnkerfis fiskveiða stjórnarskrárákvæði um jafnræði og atvinnufrelsi og eru aflaheimild- ir eign og með hvaða hætti eru þau réttindi varin af eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar," eru spurningar sem varpað er ffam í grein um mark- miðin með rannsóknarstöðunni. Grétar Mar telur að sumum þess- ara spurninga hafi þegar verið svarað með áliti mannréttindanefndar Sam- einuðu þjóðanna. „Við erum á kross- götum. Nú er sú stund runnin upp að við sem höfum barist gegn þessu óréttlæti förum að uppskera. Nú er spurning hvort ekki þurfi að draga þá sem staðið hafa fyrir þessu óréttláta kerfi til ábyrgðar," segir Grétar. ingurinn væri í samræmi við þá stefnu deildarinnar að leggja aukna áherslu á rannsóknir og kennslu í auðlindarétti. Fulltrúar LÍÚ sögðu við sama tækifæri að rannsókn- ir á fiskveiðistjórnunarkerfinu verði án vafa til þess að skýra réttarstöðu þeirra sem byggja afkomu sína á fiskveiðum. Einnig væri nauðsyn- legt að kynna betur erlendis þann ár- angur sem náðst hefði með íslensku fiskveiðistjórnunarkerfi. Með þessu móti gætu íslendingar fest sig í sessi sem leiðandi þjóð á sviði fiskveiða og fiskveiðistj ómunar. Kvótakerfið svonefnda hefur ver- ið við lýði í 25 ár um þessar mundir. Síðastliðið vor var þorskkvóti skor- inn niður um þriðjung, í 130 þús- und tonn. „Okkur hefur mistekist," sagði Einar Oddur Kristjánsson heit- inn við það tækifæri, þá þingmaður Sjálfstæðisflokks. og nemendur við háskólann telji sig vera frjálsa frá þeim sem fjármagna kennslu og rannsóknir skapi þessi styrkveitíng útvegsmanna efasemd- ir. „Háskólinn verður að tryggja það að hann sé hlutlaus í sinni afstöðu. Hér er búið að mgla rækilega bæði í kennurum og nemendum," segir hann. Hann segir að jafnvel þótt Há- skóli íslands komist að þeirri niður- stöðu að einhver hafi keypt sér villt og óveidd dýr í sjónum sé það einfalt mál og borðleggjandi að auðlindir sjávar séu skilgreindar sem sameign þjóðarinnar í lögum. „Undir öllum öðrum kringumstæðum myndast ekki eignarréttur á villtu dýri fyrr en það er handsamað," segir hann. „Þetta fyrirkomulag er ekki aðeins hættulegt fyrir fræðimanninn sjálf- an, heldur er það afleitt í sjálfu sér að Háskóli íslands skuli taka að sér að standa í hagsmunagæslu með hagsmunaaðilunum sjálfum," seg- ir Grétar Mar Jónsson, þingmað- ur Frjáislynda flokksins, um það að Lagastofnun Háskóla íslands þiggi styrk frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna tíl þess að greiða fyrir rannsóknir á sviði auðlindaréttar við háskólann. Samkvæmt samningi sem gerður var við Háskóla fslands vorið 2006, greiðir LÍÚ fyrir eina stöðu við Laga- stofnun háskólans, alls 4,5 milljónir á ári í þrjú ár. Upphæðin fylgir vísi- tölubreytíngum. Helgi Áss Grétars- son, sérfræðingur við Lagastofnun, gegnir stöðunni. „Það er mikilvægt að muna að ég er starfsmaður Laga- stofnunar en ekki styrkþegi Lands- sambands íslenskra útvegsmanna," segir Helgi. Okkur mistókst Við undirritun samningsins í apríl 2006 sagði Páll Hreinsson, for- setí lagadeildar, að samn- Ingibjörg Sólrún Utanríkisráð- herra hefur óskað eftir því að fá leyniskjöl um Laxness afhentfrá bandariskum stjórnvöldum. Fram til þessa hafa bæði CIA og FBI neitað að afhenda skjölin og borið við þjóðaröryggi. Dregnir til ábyrgðar Eitt af viðfangsefnum Helga Áss Grétarssonar er að rannsaka hvaða svigrúm löggjafarvaldið hafi tíl þess að breyta reglum um Tri'iliiiiTif i fiskveiðistjórn, án Hlutleysi háskóla Grétar Mar segir að jafnvel þótt m fræðimenn (B Njósnað um Laxness Ýmis skjöl benda til þess að fylgst hafi verið með ferðum Halldórs og fjölskyldu hans. Sökum stjórnmálaskoðana var njósnað um hann og óttast að hann væri aðalstyrktaraðili kommúnistaflokksins hér á landi. Sonia Gandhi sýndi rannsóknum á Himalaya-Qöllum áhuga Umboðs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 Forseti íslands, Ólafur Ragn- ar Grímsson, fundaði með Soniu Gandhi við lok Delí-ráðstefnunn- ar á laugardag. Gandhi bauð Ólafi til fundarins en á honum lýsti hún yfir miklum áhuga á rannsóknum jökla í Himalaya-Qöllum en Ól- afur kynntí henni tillögur sem ís- lenskir sérfræðingar hafa að und- anförnu unnið að. Gandhi, sem er á sextugasta og öðru aldursári, er ekkja fyrrverandi forsætisráðherra þjóðarinnar, Rajivs Gandhi, auk þess sem hún er forseti indverska þingsins. Um 700 milljónir Indverja eiga lífsviðurværi sitt undir því að jöklarnir í Himalayafjöllunum tryggi þeim nægt vatn til ræktun- ar og fæðuöflunar en rannsóknir á Himalaya-fjöllunum hafa verið vanræktar um árabil. Á fundi þeirra Gandhi og Ól- afs Ragnars kom enn fremur fram ánægja með árangur Delí-leið- togafundarins en hann er þegar orðinn áhrifaríkur vettvangur fyrir víðtækt samráð um sjálfbæra þró- un og bætt lífsskilyrði þess megin- hluta mannkyns sem býr á suður- hveli jarðar. Ólafur Ragnar nýtti ferðina til Indlands vel því þar sat hann einn- ig fund í þróunarráði Indlands sem haldinn var í tengslum við leiðtogafundinn, þar sem rætt var um hugsanlegt samstarf við þró- unarráð Kína, en það þróunarráð er líkt og hið indverska skipað auk heimamanna sérfræðingum og áhrifafólki víða að úr veröldinni. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Þáði fundarboð Gandhi I kjölfar Delí- ráðstefnunnar um helgina. BETUSAN Umboðs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 FOSFOSER MEMORY Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON blaöamaður skrifar: sigtryggur@dv.is CIA °a FHI sitjj,, leyi lsle„>l(ltJOr| vold dðstoðuðu B.md. nkimtmnviAMhom fiPOgiahann.Cuan, nJlldorsdöttir, dotn, f ‘kíldsins. skilui *I>1" hvers vegn^ ‘k/olm fast ,-kki -'hentogermiðu, *m yfir þatttoitu Hlenskrj B-j 'ljornvalda. l{vvY'LvMí»jnt afcía nsk stjornvold [uðust umsvif knn,ni. Háskóli ísiands Lagastofnun Háskólans þiggur 4,5 milljónir á ári frá LIÚ til þess að rannsaka auðlindarétt og kvótakerfi. Birkiaska www.birkiaska.is Minnistöflur www.birkiaska.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.