Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Side 9
DV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2008 9 „Viö erum öll að sökkva með Villa,“ sagði einn þeirra óánægðu sjálfstæðismanna sem funduðu með Vilhjálmi í gær. BULLANDI VANDRÆÐI sinn og Vil- Hvers vegna dugir ekki afsökunarbeiðnin? „Ég braut ekkert af mér og skil ekki hvers vegna það nægir ekki að biðjast afsökunar. Sumir biðjast ekki einu sinni afsökunar," segir Vilhjálmur. beygði Vilhjálmur af, varð votur í augum og þurrkaði tár af kinnum. „Oft á tíðum hef ég tekið þessa um- ræðu mjög nærri mér og þetta hef- ur sært mig mjög. Það hefur líka sært mig gagnvart minni fjölskyldu. Ég er bara mannlegur og ég hef til- flnningar." Hefur veikt flokkinn Vilhjálmur viðurkennir að REI- málið hafi veikt verulega sína pól- itísku stöðu og harmar jafnframt þau áhrif sem það hefur haft á Sjálfstæðisflokkinn. Hann telur að afsögn sín hefði skapað frek- ari glundroða. „Það er ekki bara ég sem hef veikst því þetta hef- ur líka veikt flokkinn. Eðlilega hef ég áhyggjur af því að Sjálfstæðis- flokkurinn hefur misst fylgi sitt út af þessum málum öllum. Mér þykir það mjög leitt. Ég ætla að vona að ákvörðun mín að sitja áfram verði ekki til þess að veikja flokkinn frek- ar," segir Vilhjálmur. „Ég hef fengið mikinn stuðning undanfarna daga og fólk sagt við mig að það komi ekkert til greina að ég hætti. Menn mega ekki gleyma því hvaða afleiðingar það gæti haft fyrir flokkinn. Hver á að taka við? Er örugglega sátt um þennan eða hinn? Margir bentu mér einfald- lega á að með því að hætta gæti ég skapað mun meiri upplausn." Málinu lokið Sjálfur vill Vilhjálmur ekki gefa upp að svo stöddu hvern hann styður sem arftaka sinn að kjör- tímabilinu loknu. Þó bendir hann á að sjálfur hafi hann tekið við sem næsti maður á lista á eftir þá- verandi oddvita, Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra. „Ég tel ekki rétt að tjá mig um þetta núna þótt ég hafi auðvitað hugsað þau mál. Þegar að því kemur að ég fer frá mun ég örugglega hafa töluvert um það að segja hver tekur við," segir Vilhjálmur. „Ég ætla rétt að vona að málinu sé nú lokið og að meirihlutaskipt- um í borginni sé lokið. Ég finn fyrir miklum pirringi vegna þess. Á milli okkar Ólafs ríkir fullkomið traust og ég á ekki von á neinu öðru en að núverandi meirihluti sitji út kjör- tímabilið." Tekur sér tíma Vilhjálmur ítrekar að hann hafl beðist afsökunar á hraða REI-máls- ins þar sem upplýsingaflæði var ábótavant. Hann harmar hversu erf- itt málið hefur verið fyrir sig og fé- laga sína í borgarstjórnarflokknum. „Ég hef beðist afsökunar og þannig axlað mína ábyrgð. Ég tel mig hafa átt mjög góðan feril í stjórnmál- um, bæði sem borgarfulltrúi og sem borgarstjóri enda mældist ég með gott fylgi sem slíkur. Ég held að menn verði að horfa meira á minn feril og hvernig ég hef staðið mig," segir Vilhjálmur. „Fjölmiðlafár- ið hefur ekki verið neitt venjulegt, það mætti halda að ég hefði drepið mann og annan. Málið virðist engan endi ætla að taka og umræðan hef- ur verið þung þar sem menn hafa átt erfltt með að verja sig. Við höfum alveg skynjað óánægjuna og klaufa- leg yfirlýsing mín ýfði hana upp aft- ur. Það er greinilega ákveðinn hóp- ur sem hefur viljað slæma umræðu um nýjan meirihluta og mér þykir miður ef hluti þess hóps er úr okkar röðum. Ég á líka öfluga fylgismenn í flokknum." 1982 Kosinn í borgarstjórn Reykjavíkur í fyrsta sinn. 1990 Kosinn formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og gegndi stöðunni til 1996. 1991 Einn af þremur borgarfulltrúum sem eru orðaðir við borgarstjórastöðuna þegar Davíð Oddsson fer í landsmálin. Markús Örn Antonsson er sóttur í Ríkisútvarpið. 1994 Lendir í minnihluta í borgarstjórn í fyrsta sinn þegar Reykjavíkurlistinn nær völdum. 2002 Sjálfstæðisflokkurinn bíður sinn versta kosningaósigur í Reykjavík í sögunni, Vilhjálmur skipar annað sætið á eftir Bimi Bjarnasyni sem hafði látið af ráðherradómi til að leiða listann. 2003 Valinn oddviti borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna eftir að Björn Bjarnason verður aftur ráðherra. 2005 Vinnur prófkjörsbaráttu við Gísla Martein Baldursson um hvor leiði lista sjálfstæðismanna í næstu kosningum. 2006 Vilhjálmur verður borgarstjóri þegar hann myndar meirihluta í borgarstjórn með Framsóknarflokknum. 2007 Meirihlutinn sþringur vegna deilna um REI-mállið, bæði innanflokks og milli flokka. 2008 Myndar nýjan meirihluta með Ólafi F. Magnússyni og hluta F-lista. Hart er sótt að honum vegna skýrslu stýrihóps um REI- málið. Vilhjálmur ákveður að sitja áfram í borgarstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn er í sárum og er ldofinn í tvær fylkingar. Það er mat þeirra álitsgjafa sem DV leitaði til um stöðu flokksins eftir að Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti flokksins í borgarstjórn, ákvað að sitja áfram. Borgarfulltrúar flokksins fúnd- uðu lengi í gær um stöðu Vilhjálms í ljósi logandi deilna í samfélag- inu um framkomu hans í REI-mál- inu og vandræðagang hans í vöm- um sínum. Að loknum fundi lýsti Vilhjálmur því yfir að fullkomin eining ríki innan borgarstjórnar- hópsins. Heimildir DV herma aft- ur á móti að því sé öfugt farið, að aðeins einn fundarmanna hafi lýst yfir fullum stuðningi við oddvitann, það hafi Marta Guðjónsdóttir, vara- borgarfulltrúi og formaður Varðar, ein gert. Samkvæmt heimildum DV eru aðrir borgarfulltrúar reiðir yfir því að Vilhjálmur skyldi ekki taka af skarið og segja skýrt hvað hann ætl- aði að gera í stöðunni. „Vonbrigðin em gífurleg. Við erum öll að sökkva með Villa," sagði einn fundarmanna í samtali við DV í gær. Alþingismaður Sjálfstæðis- flokksins, sem vildi ekki fremur en aðrir tjá sig undir nafni, sagði að Vil- hjálmur ætti að sýna þann pólitíska þroska að taka hagsmuni flokksins fram yfir sína eigin og víkja. „Vil- hjálmur sagði ósatt og slíkt verð- ur ekki fyrirgefið í flokknum," sagði hann og benti á að það væri lífs- nauðsynlegt fyrir flokkinn að fá nýj- an leiðtoga í borginni. Klofningur blasir viö Ef marka má heimildir DV er Vilhjálmur einn á báti og flokks- forystunnar bíður mikið verk að plástra yfir sárin. Forystan hefur reyndar verið gagnrýnd undanfarið fyrir lausatök og tvær fylkingar tog- ast á í hatrammri deilu, annars veg- ar armur Davíðs Oddssonar, fyrr- verandi forsætisráðherra, og hins vegar armur Geirs H. Haarde for- sætisráðherra. „Það blasir hiklaust við að flokk- urinn er klofinn í tvær fylking- ar, tvo arma, og þannig hefur það lengi verið. Áður vom það Gunnar og Geir, síðan Davíð og Þorsteinn og nú Davíð og Geir. Þessir flokka- drættir hafa birst nokkuð harka- lega undanfarið," segir Birgir Guðmundsson, stjórnmálafræðing- ur og lektor við Há- skólann á Akureyri. „Sjálfurtel ég að það hefði verið far- sælasta lausnin að sjálfstæðismenn skiptu um oddvita GEIRSARMUR: ■ Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra ■ Guðfinna Bjarnadóttir, alþingismaður ■Vilhjálmur Þ.Vilhjálmsson, oddviti sjálfsteeðismanna I borgarstjórn ■ Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi ■ Jórunn Frímannsdóttir, borgarfulltrúi ■ BolliThoroddsen, varaborgarfulltrúi » Marta Guðjónsdóttir, varaborgarfulltrúi og formaöur Varðar hjálmur haldið áffam sem óbreytt- ur borgarfulltrúi. Hann og flokkur- inn hefðu getað gengið sæmilega fr á því og friður lfklega skapast. Með þeim hætti hefði hann líka dregið úr skaða flokksins." Æpandi þögn Einar Mar Þórðarson, stjórn- málafræðingur hjá Félagsvísinda- stofnun Háskóla íslands, tekur í sama streng. Honum finnst þögn sjálfstæðismanna einkennileg og telur flokkinn í sámm. „Vilhjálmur er í mjög erfiðum málum og það á líka við um Sjálfstæðisflokkinn. Hin æpandi þögn sem verið hefur inn- an borgarstjórnarflokksins og hjá forystunni sýnir að þar er eitthvað að inn á við," segir Einar Mar. „Það virðist ekki hafa náðst nein ákveðin niðurstaða í það hjá flokknum hvernig bregðast ætti við vandanum. Málið átti að afgreiða sem fyrst því það eru almenn viðbrögð við svona krísum. Sjálfstæðisflokkurinn er í erfiðleikum og menn innan hans eiga erfitt með að koma sér saman um hlutina. Hann hefur ekki náð að hrista af sér klofningsumræðuna. Það er afskaplega vont fyrir flokkinn enda hefur hann komið veikur út úr könnunum og ég hef áhyggjur af því að þetta hafi lamandi áhrif á meirihlutann." Vont fyrir flokkinn Gunnar Helgi Kristinsson, próf- essor í stjórnmálafræði við Háskóla íslands, hafði ekki trú á því að Vil- hjálmur taki þá ákvörðun að sitja. Aðspurður hefur hann orðið var við töluverða ólgu innan Sjálfstæð- isflokksins vegna málsins. „Enn er dálítið óljóst hvort hann ætli sjálfur að finna sér tímann til að hætta eða hvort hann hafi ákveðið að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. Ég hef frekar trú á því fyrrnefnda og að hann setjist ekki í borgarstjóra- stólinn," segir Gunnar Helgi. „Það er ekki nokkur vafi á því að Sjálfstæðisflokkurinn er í bull- andi vandræðum. Út af fyrir sig hafa þau vandræði staðið yfir í all- an vetur. Það er samt ekki þannig að Vilhjálmur eigi sér enga stuðn- ingsmenn en ef öldurnar lægir ekki tel ég að forystan grípi inn í á end- anum. Það er hins vegar eiginlega sama hvaða leið hefði verið val- in því þetta kemur alltaf illa út fyr- ir flokldnn. I raun er þetta aðstaða sem enginn flokkur vill lenda í." DAVÍÐSARMUR: ■ Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra ■ Hanna Birna Kristjánsdóttir, forseti borgarstjórnar ■ Gísli Marteinn Baldursson, formaður borgarstjórnarflokksSjálfstæðisflokksins » Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi ■ Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins » Kjartan Gunnarsson, miðstjórnarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.