Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2008 Neytendur DV ÉNEYTENDUR r.i.nsMívnsviíiU) »» oiítax 13M.20HR. ♦ veiðáliua 13M.30 HR. 112,30 KR neytendur@dv.is Umsjón: Ásdís Björg Jóhannesdóttir verö á lítra 13*1,20 HR. 13M.M0 KR. IHSII.OLIA 1137.80 KR. 137,80 KR. IMtökrTI 135,80 KR. verðálítra 137,80 KR. 137,90 KR. LASTIÐ ■ Last dagsins fær kaffihúsið Café Paris. Viðskiptavinur pantaði þar hamborgara sem aldrei kom. | Ómögulegt virtist að ná sambandi við þjón og loks þegar það tókst skýrði hann frá því að pöntunin hefði aldrei prentast út. Viðskiptavinurinn vildi fara og var rukkaður fyrir drykkinn sem varkominn. ■ Lofið í dag fær starfsmaður I símaveri hjá Hive að nafni Kári. Kári brást skjótt við eftir lokun símaversins á laugardag og stökk út til þess að útvega viðskiptavini beini (router). Margir hefðu setið fastir við sinn keip og sagt viðskiptavininum að koma eftir helgi. Þriðjungs ' munuraís Allt að þriðjungs munur er á barnals með dýfu (bænum. Dýrastur er hann (verslunarmið- stöðvunum Kringlunni og Smáralind. Ódýrastur er hann á þremur stöðum, Snælandi vídeó, (sbúðinni Erluís (Fákafeni og (shöllinni Melhaga. Barnaís með dýfu Snæland Vfdeó Laugavegi Isbúðin Erluls (shöllin Melhaga Isbúð Vesturbæjar Sælgætis-og vldeohöllin (sbúðin Alfhelmum (sbúðin Stjörnutorgi Isbúðln Smáralind 170 kr. 170 kr. 170 kr. 185 kr. 190 kr. 215 kr. 260 kr. 260 kr. Betra líf „Ég fæ alltaf góða þjónustu ( Betra l(fi sem er á þriðju hæð ( Kringlunni," segir Ragnhildur Magnúsdóttir, dagskrárgerðar- kona á Létt Bylgjunni.„í búðinni eru alls konar vörur fyrir andlegu hliðina, tarot-spil, bækur um andleg málefni og austræn fræði. Það er alveg sama hvað það er, starfsfólkið veitir alltaf toppþjónustu. Svo fékk ég líka góða þjónustu hjá vinkonu minni um helgina sem er hárgreiðslukona. Hún bjargaði mér alveg fyrir árshátíð þar sem tveir hárgreiðslutímar höfðu klikkað." „Maður eyðir alltaf öllu, en það er allt í lagi ef maður hefur lagt í sparnað líka,“ segir Ingólfur Ingólfsson hjá Spara.is. í miklum sveiflum á fjármálamarkaðnum leggur hann til þess að fólk lengi lánin sín, breyti yfirdrætti í skuldabréf, leggi til hliðar og hætti að nota kreditkortið. „Það er auðveldasta leiðin til að byggja upp sparnað.“ BJARGAÐU „Það eralltílagi að eyða efmaður spararlíka" n LOFID FJARHAGNUM ASDÍS BJÖRG JOHANNESDOTTIR blaðamadur skrifar: asdisbjorg(j>dv.is Það er orðið erfiðara fyrir heimilin að bjarga sér úr hremmingum skulda en áður. Erfiðleikar á fjármálamörkuðum erlendis eru farnir að hafa áhrif á íslandi. Sumir sérfræðingar segja ástæðu til að óttast kreppu. „Bankarnir lána ekki orðið lengur og það er erfitt að bjarga sér með skuldbreytingum. Eignarverð hækkar ekki lengur svo það er ekki hægt að slá lán út á það lengur," segir Ingólfur Ingólfsson, eigandi Spara. is. Hann segir að gera megi ráð fyrir að atvinnuleysi aukist, kaupmáttur launa breytist og mikil óvissa ríki á næstunni. Lengja lánið Ingólfursegiraðfólkgetigertýmislegt til að halda utan um fjármál sín í þessum sveiflum. Það þarf að skoða öll svið og reyna að finna jafnvægi svo líka sé hægt að ná endum saman. Á lánum þar sem greiðslubyrðin er orðin of há fyrir fólk segir Ingólfur aðeins eitt ráð vera til staðar. „Það er að lengja lánið eins mikið og hægt er. Það þýðir að greiðslubyrði á lánum lækkar. Þetta semur fólk um í bankanum sínum. f flestum tilfellum heitir það skilmálabreyting og þá er aðeins verið að breyta lánapappírum. Ég myndi segja að það sé öllu ódýrara en að skuldbreyta." Skuldbreyta yfirdrætti „Með yfirdráttinn er lag núna að skuldbreyta honum í fimm ára verðtryggt lán. Ef rétt reynist að verðbólgan sé á niðurleið er ekki galið að nota tækifærið, “ segir Ingólfur og bætir við að fimm ár séu lágmarkið til að taka verðtryggt lán. Ástæðan fyrir því er sú að erfitt er að greiða niður yfirdráttinn á meðan skammtímavextir eru mjög háir. Á meðan er fólk eingöngu að greiða af vöxtum í stað þess að borga niður sjálfan yfirdráttinn. Með því að taka skuldabréf vinnur maður af höfuðstólnum. „Það er ekki víst að greiðslubyrðin lækki mikið en maður er með þessu móti að vinna niður yfirdráttinn í stað þess að vera eingöngu að greiða vextina." Leggja kreditkortinu „Það er mjög varasamt að nota kortið til að fleyta sér áfram. Það er freistandi að sveifla því en það er eins og að pissa í skóinn," segir Ingólfur. Hann mælir með því að fólk leggi kortið inn og semji við bankann sinn um að greiða niður skuldina á einu til tveimur árum. Vextirnir sem fýlgja greiðsludreifingu eru með þeim hæstu sem til eru en Ingólfur leggur til að fólk horfi ffamhjá þeim því tilgangurinn sé að vinna sig út úr greiðslukortanotkun. Kreditkort er mjögþungbyrði. „Það er í lagi að hafa fasta áskriftar- liði eins og sjónvarpið, blaðaáskriftir og tryggingar en það er verra að nota það til hversdagsinnkaupa eins og að fara út í sjoppu að kaupa kók og pylsu." Tíu prósent til hliðar „Besti tíminn til að byrja að spara er um mánaðamót," segir Ingólfur. Ef fólk byggir ekki upp sparnað í leiðinni dettur það í sama farið aftur. Um mánaðamót ætti fólk að taka 10 prósent af laununum sínum og leggja inn á reikning sem það kallar neyslusparnað. Það er peningur sem fólk á að nota til að eyða þegar það þarf á því að halda. „Ef þvottavélin þín bilar verður þú að kaupa nýja. Ef maður á engan pening þarf maður að fara í bankann og fá sér yfirdrátt. Þá er maður kominn í sama farið aftur. Neyslusparnaðurinn er því sparnaður sem má eyða." Að mati Ingólfs á að vera auðvelt fýrir fólk að taka 10 prósentin af laununum því maður eigi 90 prósent eftir. „ Maður finnur ekkert fýrir því hvort maður eyðir 90 eða 100 prósentum. Þetta er auðveldasta leiðin til að byggja upp sparnað" segir Ingólfur að lokum. Margt hægt að gera Með því aö leggja kreditkortinu getur fólk losnað úr vítahring. mt. >«5 ■ ■m. Sparaðu strax Þú getur sparaö um liver mánaðamót, segir Ingólfur Ingólfsson, og segir fólk finna lítinn mun á því hvort það eyði 90 prósentum af laununum eöa hundrað prósentum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.