Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Side 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2008 Síðasten ekkisíst DV NÚGETURÞÚ LESIÐ DV Á DV.IS DVer aðgengilegt á dv.is og kostar netáskriftin 1.490 kr.á mánuði BÓKSTAFLega „Ég er ekki í borgarstjóra- fötunum núna." ■ Ólafur F. Magnússon í DV í gær þegar blaðamaður reyndi að ná tali af honum. Spurning hvort Ólafur hafi nokkuð verið í nýju fötum keisarans. „Ég er með einfalda vinnureglu; efþað er ekki bilað geri ég ekki við það." ■ Gillzenegger í helgarblaði DV um lagið Hey, hey,.hey, we say ho, ho, ho. En Gillz og félagar þurfa greinilega að koma við á verkstæðinu og tjúna lagið upp vilji þeir eiga möguleika í úrslitin. „Laun for- stjóra þess- ara fyrirtækja vekja athygli. Þykir nú orðið eðlilegt að þeir séu með 10-15 sinnum hærri laun en meðalstarfsmenn?" ■ Egill Helgason á bloggi sfnu 7. febrúar. Það er náttúrlega öllu eðlilegra að vera með 5-6 sinnum hærri laun en samstarfsmennirnir. „Ég var rauðhærður í 27 ár og svo allt í einu breytti ég af því að mig langaði til þess og þá er það eitthvað mál. Það segir enginn neitt þegar ljóshært, dökk- hært eða skolhært fólk breytir um lit." ■ Ásgeir Kolbeinsson, Rauði turninn í nýjasta hefti Monitor. Það fer heldur enginn að segja Hafnfirðingabrand- ara um Mosfellinga. „Ég held að það sé minna hættu- legt í Serbíu en Reykjavík." ■ Dr. Gunni í viðtali við DV í gær. Gunni er hættur að mæta spila á tónleikum (miðbæ Reykjavikur og sendir þess í stað MP3-skrár. „Ég keyrði engan, það mæta allir sjálfviljugir á kjörstað." ■ ArnaldurSölvi Kristjánsson, formaður Röskvu. En kjörsókn var aðeins 35%, svo smá kjörstaðaskutl hefði bara hjálpað. TALAÐIITIU MINUT- URSAMFLEYTT María Sigrún Hilm- arsdóttir, fréttakona Sjón- varpsins, varð óvænt að tala heillengi í beinni útsendingu þegar fréttamannafundi Vil- hjálms Þ. Vilhjálmssonar seink- aði mikið í gær. Hver er konan? „María Sigrún Hilmarsdóttir, 28 ára, fréttamaður á Sjónvarpinu." Hvað drífur þig áfram? „Gleði og hamingja." Hvar ólst þú upp? „I Vesturbænum nánar til tekið á Högunum.TókVesturbæjarhraðlestina Melaskóli-Hagaskóli-MR og lauk svo BA gráðu í hagfræði frá Háskóla íslands árið 2002. Stunda nú masters- nám í fréttamennsku við sama skóla á hægum hraða með fullri vinnu í Sjónvarpinu. Nóg að gera sem sé." Hefur þú búið erlendis? „Nei, ekki ennþá, en ég stefni að því að bæta úr því. Fer kannski út og bæti við mig gráðu einhvern daginn. Dvaldi þó sumarlagt í Prag árið 2003." Eftirminnilegasta bók sem þú hefur lesið? „Veröld sem var eftír Stefan Zweig. Þetta er ljúfsár reynslulaga sem þroskar lesandann. Góður samstarfsmaður, sem kenndi mér margt, Helgi H. Jónsson íféttamaður, gaf mér þessa bók um það leytí sem hann hættí störfum hér á fréttastofunni." Uppáhaldsmatur? „Maturinn hennar mömmu." Draumastarfið? „Ég er svo heppin að það er einmitt starfið sem ég er í í dag - fréttamaður á sjónvarpinu!" Hvað hefur þú starfað lengi á fréttastofu Sjónvarpins? „Það eru að verða komin 3 ár - í maí." Hver er eftirminnilegasti viðmælandi þinn? „Ætli ég verið ekki að segja að það hafi verið Guðríður Gyða Eyjólfsdóttír, doktor í sveppafræðum. Tók við hana eftírminnilegt viðtal í haust um hættulega sveppi afýmsum tegundum. Garðlummur, trjónupeðlur, fyluböll og ýmsa fleiri. Þetta viðtal er oft rifjað upp hér á fféttastofunni." Hvað er það lengsta sem þú hefur þurft að tala stanslaust í beinni útsendingu? Ætíi það hafi ekki verið í Valhöll í dag... skilst aðmérhafitekistaðtala samfleytt í meira en 10 mínútur á meðan borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks luku fundi sínum. Er samt ekki búin að taka tímann á þessu sjálf. En fýrir mér var þetta enga stund að h'ða." Hvernig tilfinning var það að þurfa að halda sífellt áfram að tala fyrir framan myndavélina í Valhöll á meðan borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins funduðu? „Mér fannst þessi tilfinning ekkert slæm - sem er gott. Ef mér liði illa við svona aðstæður fyndist mér líka að ég ætti að leita mér að annarri vinnu. Ég var heppin að því leytinu til að ég hef fylgst vel með þessu máli frá upphafi. Eg var líka á vakt alla helgina og átti því gott með að fara yfir atburðarás síðustu daga hvað þetta tíltekna mál snertir." Varst þú ekki orðin þreytt í raddböndunum? „Nei, ég fann ekki fyrir því. Fann samt fyrir smáþorsta þegar útsendingu lauk." Hugsaðir þú borgarfulltrúunum þegjandi þörfina? „Nei, nei, alls ekki. Ég skildi vel að þau tækju sér góðan tírna í að fara yfir þetta flókna og erfiða mál." MAÐUR DAGSINS Er ekki gaman í fréttamennsk- unni þegar ys og þys á borð við þann sem verið hefur í borgar- stjórn undanfarnar vikur á sér stað? „Jú, ég neita því ekki. Mér finnst alltaf skemmtílegra í vinnunni þegar nóg er að gera. En maður verður samt að huga að því að þó þetta sé gósentíð fyrir okkur fréttamennina eru þessir tímar að sama skapi mjög erfiðir fyrir þá sem standa hinum megin við míkrafóninn." Fylgdist þú með þegar fréttamenn biðu og biðu eftir Reagan og Gorbatsjov fyrir utan Höfða 1986? „Nei. Þá var ég sjö ára og hef eflaust bara verið útí að sippa eða eitthvað. Fór samt snemma að fylgjast með fréttum og hafa áhuga á þjóðfélagsmálum." Hefðir þú viljað„hanga á húninum" þá? „Já, það hefur eflaust verið gaman að vera á vaktinni þá, ef ég hefði haft aldurog þroska til." Hvað erfram undan? „Yndislegur hversdagsleikinn." SAIVDKORIV ■ Skemmtilegt þetta orðalag að maður hafi „lent" í hinu og þessu. Maður getur lent í vondu veðri, lent í góðum gleðskap og jafnvel lent í slæmum félagsskap. Svo eru sumir sem lenda í framhjáhaldi. I Eftírminni- I legterþeg- E Haardesagði HS--/ j við fjölmiðla- A menn, eftir kjísuíund inL I kjölfarþess að Eyþór Arnalds ók ölvaður á ljósastaur skömmu fyrir sveitarstjórnar- kosningamar 2006, eitthvað á þá leið að Eyþór hafi lent í því að aka undir áhrifum. Skemmtíleg tilviij- un að Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son, oddvití sjálfstæðismanna í borgarstjóm, notaði líka þetta orðalag í samtali við fjölmiðla- menn í Valhöll í gær um þau vandræði sem hann hefur verið í undanfarið. ■ Sandkomsritari flaug með lceland Express um helgina og furðar sig á skortí á forsjálni í mat- armálum á þeim bænum. Flogið var frá Brescia á Ítalíu til Keflavík- ur, ferð sem tók um fjóran og hálf- an tíma, og vom þó nokkrir far- þegar nokkuð svangir þegar lentvará íslandi klukk- anhálfþrjú aðfaranótt sunnudags þar sem ekki reyndist næg- urmaturtil sölu um borð í vélinni. Vegna slæms veðurfars á fósturjörðinni dagana á undan var millilent á Prestwick-flugvelli í Skotlandi tif að taka eldsneyti, ef þörfyrði á hringsóli yfir Keflavíkurflugvelli sökum veðurs sem þó varð ekki af, en engan aukamat. ■ Tónlistarmaðurinn Rúnar F. Rúnarsson ff á Akureyri ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Á myspace-síðu kappans má ftnna tökulag þar sem hann syngur 80 's-slagarann Take on me með hljóínsveitinni A-ha, sem Davið Smári komst með erfið- leikum í gegnum í Idol-stjömuleit fyrir örfáum árum, af mikilli inn- lifun. Ilúnar leysir þetta vanda- ætlarhann • á næstunni þar sem hann spifar og klárar að semja efití á plötuna í leiðinni. 'áSÍÍE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.