Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2008, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2008, Síða 11
MÁNUDAGUR 10. MARS 2008 11 sport@dv.is Hermann Hreiðarsson og félagar í Portsmouth lögðu Manchester United á Old Trafford. BESTU ÚRSUTIN Á FERLINUM Hermann Hreiðarsson var í liði Portsmouth sem gerði sér lítið fyr- ir og lagði Manchester United á Old Trafford. Gana-maðurinn Sull- ey Muntari skoraði sigurmarkið tólf mínútum fyrir leikslok. Hermann Hreiðarsson var að vonum í skýjunum þegar DV náði tali af honum. „Þetta voru náttúr- lega frábær úrslit og ég er viss um að þetta séu stærstu úrslitin á ferli mínum sem atvinnumaður. Núna eftir leikinn eru allir að njóta augna- bliksins og soga í sig andrúmsloftið því þetta er í fyrsta skipti í þrjú þús- und ár eða eitthvað sem Portsmouth vinnur á Old Trafford. Manchester United sótti mik- ið í leiknum en Hermann og fé- lagar vörðust hetjulega. „Þeir geta sjálfum sér um kennt, enda fengu þeir tvö dauðafæri í sitt hvorum hálfleiknum en nýttu þau ekki. Við erum með leikmenn sem geta sótt hratt og sem betur fer náðum við að skora," segir Hermann. Portsmouth-menn þóttu sleppa vel með að fá ekki á sig vítaspyrnu strax á 8. mínútu þegar Sylvian Distin virtist brjóta á Ronaldo inn- an teigs. Alex Ferguson hefur farið mikinn í fjölmiðlum og kvartað sár- an undan dómgæslunni, en Her- mann gefur lítið fyrir það. „Þú getur alltaf kvartað yfir dómgæslu en það sem máli skiptir er að leikurinn er í 90 mínútur og ef þú nýtir ekki færin áttu ekki skilið að vinna." Portsmouth er nú eitt fjögurra liða sem eftir er í keppninni og margir telja það sterkast þeirra liða sem eftir eru. Hermann telur enga sérstaka pressu á liðinu. „Pressan kemur bara frá okkur sjálfum. Að sjálfsögðu finnst manni mikil vinna fyrir bí ef við förum ekki alla leið. Ljóst er að tækifærið er jafnvel betra núna en oft áður þar sem öll sterk- ustu liðin eru fallin úr leik." Hermann hefur leikið um ára- bil í ensku úrvalsdeildinni en spil- ar nú á Wembley í undanúrslitun- um f fyrsta skipti. „Þetta er alveg ný reynsla fyrir mig og ég hlakka mikið til að taka þátt í þessu ævintýri," seg- ir Hermann. vldar@dv.is HERMANN HREIÐARSSON Lék vel með Portsmouth í frækilegum sigri á Manchester United.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.