Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2008, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2008, Síða 30
30 MÁNUDAGUR10. MARS2008 Slðastenekkislst DV BÓKSTAFLega „Ég held að það sé al- mennt tal- ið gott fyrir samfélagið að fólk viti hver viðhorf dómara eru." ■ Jón Steinar Gunnlaugs- son hæstaréttardómari, (Fréttablaðinu i gær, um hvernig auka megi tiltrú almennings á dómstólum. „Dómarar á íslandi eru bara margir ekki hæfir." ■ Jónas Kristjánsson á vef sínum í gær um hvers vegna dómskerfið njóti litils trausts. „Yfirleitt hefur fólk skip- að sér í hópinn sem er Evrópusinnaður eða ekki Evrópusinnaður og síðan leitað að rökunum." ■ Guðfinna Bjarna- dóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, I Silfri Egils i gær um pólitisku leiðina að því að finna niðurstöðu. „Við þurftim að bera meiri virðingu fyrir hver annarri og læra að hrósa." ■ Ásdis Rán Gunnarsdóttir fyrirsæta I helgarblaði DV um dómhörku islenskra kvenna [ garð kynsystra sinna. „Við áttum víst að vera þroskaheft eða vangefin." ■ Mangús Guðnason í helgarblaði DV um rök yfirvalda fyrir að gera hann og systur hans ófrjó. „Það er ekki að spyria að spillingarbælinu Ori veitu Reykjavík- ur." ■ Egill Helgason, á bloggi sínu í gær, um áform Orkuveitunnar um að kaupa húsnæði Osta-og smjörsölunnar. „Sýndum þar mikinn kar- akter og góðan liðsanda." ■ Jónas Guðni Sævarsson, nýr leikmaður KR, i helgarblaði DV um nokkuð sem ekki hefurveriðtengt KR siðustu ár. NU GETUR ÞU LESIÐ DVÁDV.IS DVer aögengilegt á dv.is og kostar netáskriftin 1.490 kr.á mánuöi VILLISTELPASEM SÖNG FYRIR BELJUR Þóra Karítas Árnadóttir, kynningarfulltrúi alþjóðlegu leiklistarhá- tíðarinnar Lókal, hefur staðið í ströngu undanfarna daga. Hátíðin, sem var nú haldin í fyrsta sinn, hófst á fimmtudaginn og lauk í gær og var gerður góður rómur að henni. Hver er konan? í allan dag er ég Alegra í Engisprettunum sem sýnt verður í Þjóðleikhúsinu eftir páska. Serbneskt stúlkutetur sem er pínulítill prakkari. Hvaö drífur þig áfram? Alheimurinn ... held ég. Það guðlega, mannlega og dýrslega, hávær innri rödd og hjákonan mín, leiklistin. Hvar ólstu upp? Fyrst á Skógum undir fossi. Svolítil villistelpa sem smalaði kindum og söng fyrir beljur og fór svo til London til að læra að verða kurteis hefðardama með yfirstéttarhreim. Nú sér Þórhildur Þorleifsdóttir um leikhúsuppeldið á mér en um páskana verð ég í Haifa og læri vonandi margt um heiminn þar í borg í gegnum arabíska félaga sem ætla að leiða mig um hertekna Palestínu. Hefurðu búið erlendis? Ég fæddist í London og bjó þar í um þrjú ár þegar ég var í námi. Svo hef ég búið í Affíku, New York, Indlandi, Kabúl og Palestínu stóran hluta ævinnar... í huganum. Eftirminnilegasta bók sem þú hefur lesið? Flugdrekahlauparinn kemur fyrst upp í hugann. Fallega skrifuð og ótrúlega litrík og mikil menningar- og manneskjusaga. Það er líka magnað að verið sé að varpa ljósi á þetta svæði og draga fram í bók og kvikmynd stöðu konunnar undir stjórn talíbana svo eitthvað sé nefnt. Svo var sagan hreinlega svo harmræn og átakanleg að fyrir utan að hafa grenjað í gegnum alla bókina öskraði ég upp yfir mig á einum stað. Því hef ég aldrei lent í áður við lestur bókar. Ég geri það ekki einu sinni í bíó! Uppáhaldsmatur? I augnablikinu eru það allar tegundir af kjúklingi. Hvernig gekk Lókal hátíðin? Það eru allir í skýjunum yfir því hvað allt fór fallega fram. Það skap- aðist ótrúlega mikil samkennd og margir sem voru stoltir af því að fá að leggja hönd á plóg og upplifa fýrstu Lókal hátíðina í Reykjavík. Mér finnst Ragnheiður Skúladóttir og Bjarni Jónsson, sem eiga hugmyndina að hátíðinni, hafa unnið kraftaverk og viðtökur almennings voru framar öllum vonum. Þá eru ónefndir all- ir 50 sjálfboðaliðarnir sem unnu að hátíðinni. Hversu stór hópur var þetta af erlendum gestum? Lókal flutti inn um fjörutíu manns ef bæði listamenn og blaðamenn eru taldir. Á kveðjustundu virtust allir fara heim með mjög jákvæða upplif- un af landi og þjóð. MAÐUR DAGSINS Er hátíðin komin til að vera? Ekki spurning. Það er mikill hug- ur í fólki sem starfar að hátíðinni og þegar farið er af stað með svona hug- sjónaverkefni er svo gaman að standa í þessu að fóik þyrstir í að halda áfram. Það er líka svo hressandi að fá góða gesti í heimsókn og fersk- an innblástur inn í leiklistarlífið og gaman að segja frá að áhorfendur hafa sumir hverjir komið að máli við okkur og boðið fram krafta sína fyrir Lókal í framtíðinni svo háu'ðin megi fljótt vaxa og dafria vel. SVi\DKOK\ ■ Margt góðra gesta var á opn- unarsýningu Lókal leiklistarhá- tíðarinnar, Ode to the Man who Kneels, í Hafnarfjarð- arleikhúsinu á miðviku- dagskvöldið. Þar á meðal voru Brynd- ís Schram, Tinna Gunn- laugsdóttir þjóðleikhússtjóri og Agústa Eva Erlendsóttir (Sylvía Nótt). Kvöldið eftir sló svo franski hópurinn Vivari- um Studio í gegn í Smiðjunni í Leiklistarskólanum á Sölvhóls- götu með sýningunni L'eff- et de Serge. Ragnheiður Elín Clausen, fyrrverandi þula, og hundurinn hennar, Krumma, voru á meðal gestaleikara og vöktu mikla lukku. Þess má geta að leikhúsgestir á þeirri sýn- ingu voru til að mynda Þórunn Erna, systir Ragnheiðar, og góð- vinurinn Þorsteinn Davíðs- son, nýskipaður héraðsdómari. Þá mætti hjartaknúsarinn Gael Garcia Bernal á sýningu Ode to the Man who Kneels á laugar- daginn. ■ Nú gefst aðdáendum Garðars Thor Cortes kostur á að kjósa söngvarann í netkosningu fyrir Classical Brit Awards. Eins og áður hefur komið fram er Garð- ar tilnefndur til þessara merku verð- launa fyrir bestu klass- ísku plötu síðasta árs og geta net- verjar skellt sér inn á heimasíðu verðlaunanna Class- icalbrits.co.uk og gefið plötu Garðars, Cortes, sitt atkvæði. ■ Leiksýningu Þjóðleikhússins á Baðstofunni hefur verið boðið á leikritatvíæringinn í Wiesba- den í Þýskalandi í sumar. Þar fer fram ein þekktasta leik- listarhátíð Evrópu en hún er helg- uð nýjum leikritum. Baðstofan er þriðja leikrit Hugleiks Dagssonar en verkið var frumsýnt í leikstjórn Stefáns Jónssonar í Kassanum í Þjóð- leikhúsinu í byijun febrúar. Tví- æringurinn er stærsta leiklistar- hátíð Evrópu sem einvörðungu kynnir verk núlifandi leikrita- höfunda en í ár mun hátíðin standa frá 12. til 22. júm'. Hljómsveitin Jack London spilar á stórri kristilegri tónlistarhátíð í Bandaríkjunum. Lögreglusonur slær í gegn „Við fórum til Chicago núna í janúar og tókum upp okkar fyrstu plötu," segir Símon Geir Geirsson, trommari hljómsveitarinnar Jack London og sonuryfirlögregluþjóns- ins Geirs Jóns Þórissonar. „Hún er væntanleg í sumar og verður gefin út bæði í Bandaríkjunum og hér á íslandi." Hljómsveitin Jack London er fimm manna kristileg hljómsveit sem varð til árið 2004. „Við höf- um ekkert spilað fyrir framan al- menning nema á kristilegu festi- vali í fyrrasumai^L segir Símon. Þar hittu þeir fyrir hljomsveitarmeðlimi Glenn Kaiserband frá Chicago sem síðar bauð þeim að koma á Corner- stone festival sem haldið er ár hvert í Bucwell í IUinois-ríki í USA. Þar koma iðulega stór bönd eins P&D, Stanison family og Sufjan Stevens fram. „Við ákváðum að fara á hátíð- ina til að skoða en enduðum á því að fá pláss þar þó svo að fullbókað væri. I kjölfar þess buðu þeir í Glenn Kaiserband okkur að koma í stúdíó í eigu þeirra og prufa að spila," segir lögreglusonurinn. Símon og félagar voru afar hrifn- ir af stúdíóinu og því sem eigendur höfðu að bjóða. Þeir ákváðu því að slá til og taka upp plötu hjá þeim. Þeir fóru út í janúar síðastliðnum og' dvöldu í mánuð við upptökur. Platan er svo væntanleg í sumar. Að sögn Símonar ætla þeir sjálfir að sjá um sölu plötunnar á íslandi. „Við erum með tvær heimasíður, eina á Myspace og svo heimasíðu hljóm- sveitarinnar og þar verður hægt að nálgast plötuna." Eftirvænting- in er mikil, bæði hjá þeim sjálfum og fólkinu í kringum Cornerstone festivalið. „Það er farið að tala um að eitt- hvað stórt sé að gerast með okkur, mikið pískrað. Það sem á hins veg- ar eftir að gerast verður að koma í ljós en við erum fullir eftirvænting- ar," segir Símon kátur. „Þetta er bara spennandi." Aðpurður um hvernig hægt sé að lýsa tónlist þeirra segir Símon að hún sé eins konar indí, blúsrokk. „Ég myndi segja að ef Jeff Buck- ly, Led Zeppelin og einhver pönk- hljómsveit myndu sameina krafta sína yrði það Jack London," segir Símon að lolcum. Heimasíður eru: www.myspace. com/thejacklondon og www.jack- london.co.uk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.