Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2008, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 13. MARS2008
Sport PV
UEFACUP
PSV-Tottenham 0-1
1-0 Berbatov ('81)
PSV vann 5-4 (vítaspyrnukeppni.
Everton - Fiorentina 2-0
1 -0 Johnson ('16), 2-0 Arteta ('67)
Fiorentina vann 4-2 (vitaspyrnukeppni.
Zenit St.- Marseille 2-0
1-0 P. Pogrebnyak ('39), 2-0 P. Pogrebnyak
(78).
Zenit St. fer áfram í næstu umferð með
mörkum skoruðum á útivelli.
Hamburg - Leverkusen 3-2
0-1 S. Barbarez('18),1-1 P.Trochowski
('53), 1-2 S. Barbarez ('59), 2-2 J.P. Guer-
rero ('64), 3-2 Van der Vaart ('80).
Hamburg fer áfram (næstu umferö með
mörkum skoruðum á útivelli.
Getafe - Benfica 1-0
1-0 Albin (77).
Getafe fer áfram (næstu umferð.
Bayern M. - Anderlecht 1-2
1 -0 Lucio ('9), 1 -1 Akin ('20), 1 -2 Yakov-
enko ('35).
Bayern M. fer áfram i næstu umferð.
MEISTARADEILDIN
Aston Villa - Middlesbrough 1-1
0-1 S. Downing ('23), 1-1 G. Barry (73,
víti).
Portsmouth - Birmingham 4-2
1 -0 J. Defoe ('6, víti), 2-0 J. Defoe ('8), 2-1
F. Muamba (’9), 2-2 S. Larsson ('40), 3-2
Hermann Hreiðarsson ('49), 4-2 N. Kanu
('90).
Chelsea - Derby 6-1
1-0 Frank Lampard ('28), 2-0 Salomon
Kalou ('42), 3-0 Frank Lampard ('57), 4-0
Joe Cole ('64), 5-0 Frank Lampard ('66),
6-0 Frank Lampard (72), 6-1 David Jones
(73).
StaSan
Lið L u J T M St
I.Arsenal 29 19 9 1 57:21 66
2. Man. Utd 28 20 4 4 58:15 64
3. Chelsea 28 18 7 3 48:18 61
4. Liverpool 29 15 11 3 53:20 56
5. Everton 29 17 5 7 47:24 56
6. Aston V. 29 13 10 6 52:37 49
7. Portsmth 29 13 8 8 42:31 47
8. Blackburn29 12 10 73 8:35 46
9. Man. City 29 12 9 8 34:33 45
lO.WestH. 29 11 7 11 31:35 40
H.Tottenh 28 9 8 11 53:45 35
12. Middles 29 7 9 13 26:43 30
13. Wigan 29 7 7 15 26:42 28
14. Reading 29 8 4 17 34:55 28
15. Newcas 29 7 7 15 30:56 28
16. Sunder 29 7 6 16 26:47 27
17. Birming 29 6 8 15 33:45 26
18. Bolton 28 6 7 15 28:42 25
19. Fulham 29 3 11 15 26:49 20
20. Derby 29 1 7 21 14:63 10
Markahæstir
1. Ronaldo 21
2. Adebayor 19
3.Torres 19
4. Benjani 13
5.-8. Keane 12
5.-8. Berbatov 12
5.-8. Yakubu 12
CHAMPIONSHIP
Cardiff - Hull 1-0
WBA-Cr. Palace 1-1
Staðan
Lið L U J T M St
1. Bristol C. 38 18 13 7 45:42 67
2. Stoke 38 18 12 8 61:49 66
3. Watford 37 17 12 8 57:43 63
4.WBA 35 18 7 10 72:43 62
5. Charlton 38 15 11 12 53:45 56
6. Hull 36 15 11 10 46:40 56
7. Plymouth 38 15 10 13 49:39 55
8. Burnley 38 14 13 11 51:49 55
9. Cr. Palac 37 13 14 10 42:37 54
10. Ipswich 37 14 11 12 54:48 53
11. Wolves 36 13 12 11 36:38 51
12.QPR 38 12 12 14 50:54 48
13. Blackpo 38 11 14 13 53:52 47
14. Sheff. U 37 11 14 12 39:41 47
15. Preston 38 13 7 18 38:43 46
16. Barnsley 37 11 13 13 42:52 46
17. Cardiff 35 11 12 12 43:42 48
18. Norwich 38 12 10 16 35:46 46
19. Southa 38 11 12 15 49:61 45
20. Coventr 37 12 7 18 39:52 43
21.Sheff.W 36 12 6 18 38:43 42
22. Leiceste 38 9 14 15 34:35 41
23. Scunthr 37 9 11 17 35:53 38
24. Colches 37 6 14 17 49:63 32
Tottenham er úr leik í Evrópukeppni félagsliða eftir að hafa tapað fyrir hollenska lið-
inu, PSV Eindhoven, í vítaspyrnukeppni i gærkvöld. Tottenham var undir eftir fyrri
viðureignina, 1-0, en knúði fram framlengingu á ögurstundu. Markvörðurinn, Gomes,
var hetja PSV í lokin.
VARNARJAXLINN SALCIDO
Leggur alltaf allt i sölurnar og
uppsker eins og hann sáir.
TOTTENHAM SPARKAÐ UT
Hollenska liðið PSV Eindhoven sló í
gærkvöld út enska liðið Tottenham
í 16 liða úrslitum Evrópukeppni fé-
lagsliða í vítaspyrnukeppni. Með
tapinu var ljóst að Juande Ramos,
þjálfari Tottenham, myndi ekki sigra
keppnina þriðja árið í röð.
Tottenham-menn voru furðu-
lega dauflr í fyrri hálfleik og átti PSV
auðvelt með að verjast sóknarlot-
um gestanna sem voru ómarkviss-
ar. Dimitar Berbatov reyndi í hvert
skipti sem hann fékk boltann að
finna samherja sína í hlaup en þeir
kveiktu sjaldnast á perunni og sókn-
ir Tottenham ávallt stöðvaðar frekar
auðveldlega.
Seinni hálfleikurinn var öllu
skárri en sá fyrri og eftir aðeins átta
mínútu £ síðari hálfleik átti PSV að
komast yfir þegar Danny Koever-
manns fékk dauðafæri á markteig
sem honum tókst að klúðra. Totten-
ham komst samt áfram lítið áleiðis
gegn vörn PSV.
Allt lagt í sölurnar
Juande Ramos, þjálfari Totten-
ham, er reyndari ein tvær vetur í evr-
ópukeppninni enda hefur hann unn-
ið tvær síðustu keppnir með Sevilla.
Honum var ekki setunar boðið held-
ur fór hann "all in" eða lagði allt í
sölurnar eins og góður póker spilari
og bætti í sóknina. Hann tók fyrirlið-
ann, Ledley King, út af og setti Aaron
Lennon fram til að þyngja sóknina,
bragð sem svínvirkaði.
Sóknarþungi Tottenham varð
meiri með hverri mínútunni enda
lág næstum allt liðið í sókn. Það var
á endanum hetjan, Dimitar Berbat-
ov, sem tókst að jafna leikinn fyr-
ir Tottenham með glæsilegu marki
eftir fyrirgjöf frá Pascal Chimbonda.
PSV geta sjálfum sér um kennt og
einnig horf til leiksins á White Hart
Lane-vellinum í fyrri leiknum því
þeir fengu sæg af álitlegum sóknum
sem þeir fóru illa með.
Gomes mikilvægur
Darren Bent fékk snemma tæki-
færi í framlengingunni sem ein-
kendist nú ekki af færum enda bæði
lið varkárari í sínum aðgerðum.
Ramos tefldi ekki á tvær hættur og
var búinn að taka einn framherja út
af og aftur kominn í hið sívinsæla 4-
4-2 leikkerfl.
Steed Malbranque var sentí-
metrum frá því að skjóta Tottenham
áfram í framlengingunni þegar hann
smellhitti boltann svo vel að hljóð-
ið heyrðist alla leið til Islands. Þegar
boltinn virtist æda að syngja í mark-
vinklinum birtist allt í einu mark-
vörður PSV, Brasilíumaðurinn Gom-
es, og varði boltann af stakri snilld
um leið og flautað var til leiksloka.
Jenas og Chimbonda skúrkar
Paul Robinson varði aðra spyrnu
PSV í vítaspyrnukeppninni og vit-
ist sem stund að hann yrði loks-
ins hetja en hann er vanari því að
vera skúrkur. Tottenham gat tryggt
sér sigurinn með síðustu spyrn-
unni því allir aðrir höfðu skorað en
Jermain Jenas varð skúrkurinn um
stund þegar Gomes varði glæsilega
frá honum.
f bráðabananum steig upp fyrir
PSV hinn ungi Dirk Marcellis og þó
hræðslan skein úr augunum á hon-
um yfirsteig pilturinn það og setti
boltann snyrtilega í hornið. Það
var því undir bakverðinum, Pascal
Chimbonda, að halda Tottenham í
leiknum. Chimbonda sem lét öll-
um illum látum í úrslitaleik deild-
arbikarsins sá svo til þess að hann
yrði seldur í sumar þegar hann lét
Gomes verja frá sér og Tottenham
úr leik. Tottenham-menn eru ekki
hrifnir af Chimbonda og fi'flalæti
hans ásamt klúðrinu í gærkvöld
gætu verið ávísun að Frakkinn
þyrfti að fara að finna sér nýtt lið.
Fiorentina komst áfram í 8-liða úrslit eftir sigur á Everton í vítaspyrnukeppni.
VÍTAVERÐ FÆRANÝTING EVERTON
Fiorentina komst áfram í 8-liða
úrslit í Evrópukeppni félagsliða eftir
að hafa lagt Everton af velli. Úrslitin
réðust í vítaspyrnukeppni eftir að
Everton hafði sigrað leikinn 2-0. Þar
með voru leikar jafnir 2-2 eftir fyrri
leikinn sem einnig endaði 2-0, en þá
fyrir Fiorentina.
David Moyes stillti upp sóknars-
innuðu liði að þessu sinni með Andy
Johnson í byrjunarliði. Hann endur-
galt traustið með því að koma Evert-
on yfir á 16. mínútu.
Everton sótti svo látlaust all-
an fýrri hálfleikinn en Sebastian
Frey var í stuði í marki Flórens búa.
Nokkrum sinnum skall hurð nærri
hælum. Leikmenn Fiorentina björg-
uðu meðal annars tvívegis á línu í
fyrri hálfleik.
í síðari hálfleik héldu Everton-
menn áfram að pressa að marki Fi-
orentina og það var því eftir gangi
leiksins þegar Mikel Arteta skoraði
annað mark Everton á 67. mínútu
með föstu skoti í stöng og inn.
Á lokakaflanum reyndu heima-
menn allt sem þeir gátu til þess að
koma inn marki en allt kom fýrir ekki
og svo fór að leikurinn fór í framleng-
ingu.
f henni ógnuðu Fiorentina-menn
loks en gott skot Pazzini fór rétt
framhjá á lokamínútunni. Fram að
því hafði Everton fengið ágæt færi
til þess að skora en eins og oft áður
vantaði herslumuninn eftir að liðið
hafði yfirspilað ftalana.
Leikurinn fór því í rússnska rúll-
ettu, öðru nafni vítaspyrnukeppni.
Þar höfðu Fiorentina-menn betur.
Yakubu og Jagielka misnotuðu sína
vítaspyrnur fyrir Everton en Fior-
entina-menn skoraði úr öllum sín-
um spyrnum. Þeir fara því áfram í
keppninni, en David Moyes og félag-
ar í Everton geta nagað sig í handar-
bökin fyrir að hafa ekki gert betur úr
þeim fjölmörgu færum sem féll lið-
inu í skaut. vidar@dv.is