Peningamál - 01.11.1999, Síða 33

Peningamál - 01.11.1999, Síða 33
nágrannalanda. Þessar nýju reglur eru nánast tilbúnar og gætu hugsanlega tekið gildi um næstu áramót. Þær verða hins vegar ekki settar á grundvelli núgild- andi laga um Seðlabanka Íslands. Það kann því að nokkru að verða háð lagaheimildum Seðlabankans með hvaða hætti og hvenær hinar nýju reglur verða settar. Þess ber og að geta að hinar nýju lausafjár- reglur eru flóknari í framkvæmd en þær eldri og kunna því ekki að henta minni sparisjóðum. Vaxtabreytingar í ár Eins og fram hefur komið í fréttum var útlánavöxt- urinn í maí, júní og júlí nokkru minni en mánuðina næst á undan. Þrátt fyrir þetta gerði vaxandi verð- bólga það að verkum að Seðlabankinn hækkaði vexti í júní sl. Í tengslum við vaxtahækkunina í febrúar gaf Seðlabankinn til kynna að hann myndi fremur kjósa að styrkja gjaldeyrisforðann en að leyfa gengi krón- unnar að styrkjast og jókst forðinn umtalsvert í kjöl- farið. Í júní leiddi vaxandi verðbólga hins vegar til þess að bankinn ákvað að leyfa gengi krónunnar að hækka fremur en að styrkja gjaldeyrisforðann enda hefur innflutningsverðlag skjót áhrif á innlent verð- lag. Bankinn gaf hið sama í skyn við vaxtabreyting- una í september. Gengi krónunnar hefur hækkað um rúm 2% síðan í júní. Vaxtahækkunin í september kom í kjölfar mæl- ingar á neysluverði í byrjun mánaðarins sem fól í sér 0,8% hækkun frá byrjun ágúst. Til viðbótar óvenju mikilli hækkun verðbólgu jókst útlánavöxtur inn- lánsstofnana á ný í ágúst og voru það bankastjórn Seðlabankans mikil vonbrigði. Vísbendingar eru hins vegar um að útlán viðskiptabankanna hafi vaxið lítið í september. Útlánaþróun og eigið fé Frá ársbyrjun til loka ágúst jukust útlán innlánsstofn- ana um 16,6% og á 12 mánuðum til loka ágúst jukust þau um 34%. Útlánavöxtur sparisjóðanna, að Spari- sjóðabankanum meðtöldum, var 22% og 41% á sömu tímabilum eða umtalsvert meiri en hjá innlánsstofn- unum í heild. Í ágústmánuði einum jukust útlán sparisjóðanna um 4,4% en innlánsstofnana í heild um 2,3%. Þegar haft er í huga að hlutfall sparisjóðanna og Sparisjóðabankans í heildarútlánum var í lok ágúst 23,3% þá gefur auga leið að þessi mikla útlána- aukning sparisjóðanna hefur átt drjúgan þátt í útlána- þenslunni. Undanfarin misseri hefur eiginfjárhlutfall spari- sjóðanna lækkað hratt. Ég tel því ástæðu til þess að brýna alvarlega fyrir sparisjóðum og raunar lána- stofnunum í heild að hægja mjög á útlánum og gæta fyllstu varkárni í útlánastarfsemi sinni. Mjög mikil- vægt er að gefa gaum að öryggi útlána, hvort heldur er til fyrirtækja eða einstaklinga. Að því kemur að dregur úr umsvifum í efnahagslífi og þrengja tekur að atvinnufyrirtækjum og heimilum. Um leið mun þrengja að innheimtu útistandandi lána. Verði ekki gengið fram með fullri gát nú er líklegt að spari- sjóðirnir og aðrar lánastofnanir eigi eftir að finna fyrir útlánatöpum á komandi misserum og þar með rýrari afkomu en ella. Þegar þrengja tekur að er nauðsynlegt að búa við trausta eiginfjárstöðu og því brýni ég það jafnframt fyrir sparisjóðunum og öðrum lánastofnunum að hyggja vel að eiginfjárstöðu sinni og tryggja að hún verði nægilega traust til þess að gera þeim kleift að takast á við erfiðari tíma án þess að fjárhagslegri stöðu þeirra verði stefnt í voða. Stöðugleiki í fjármálakerfi og innlendur fjármagnsmarkaður Eins og ég nefndi í upphafi er annað meginmarkmið Seðlabanka Íslands að tryggja stöðugleika í fjármála- kerfi. Eftir að bankaeftirlit hvarf úr Seðlabankanum hefur verið unnið að skipulagi verkefna í bankanum sem varða stöðugleika í fjármálakerfinu. Bankinn á jafnframt náið samstarf við Fjármálaeftirlitið og þess er gætt að um tvíverknað verði ekki að ræða. Ég mun ekki lýsa þessum verkefnum nánar hér, en get þó ekki látið hjá líða að víkja að afmörkuðu en mikil- vægu atriði sem varðar innlendan fjármagnsmarkað. Innlendur fjármagnsmarkaður hefur sem kunnugt er þróast mjög hratt á undanförnum árum. Þetta er ykkur að sjálfsögðu kunnugt enda hafa sparisjóðirnir verið virkir þátttakendur í þessari þróun. Nýjar stofn- anir hafa komið til, nýir fjárfestingarkostir, og síðast en ekki síst hefur innlendur hlutabréfamarkaður þró- ast mjög hratt. Um þessi viðskipti hefur verið sköpuð umgjörð sem í öllum aðalatriðum er byggð á lögum og reglum Evrópusambandsins. Í þessu umhverfi er 32

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.