Peningamál - 01.05.2000, Side 9

Peningamál - 01.05.2000, Side 9
8 PENINGAMÁL 2000/2 innstreymis fjármagns m.a. vegna mikils vaxtamun- ar. Þegar litið er lengra fram á spátímabilið er hins vegar ekki hægt að útiloka að þrýstingur myndist á krónuna til lækkunar, haldi ójafnvægið í þjóðarbú- skapnum áfram. Annar veigamikill óvissuþáttur eru áhrif ofþenslu á launaskrið og verðlag. Spálíkan sem tekur tillit til þessara þátta spáir reyndar minni verðbólgu en það stafar af því að slíkt líkan spáir minni launahækkunum en hér er miðað við. Ef geng- ið er út frá sömu launahækkun spáir líkanið örlítið meiri verðbólgu en hér er gert. Meðal óvissuþátta sem gætu haft í för með sér meiri verðbólgu má nefna eftirfarandi: 1. Hætta er á launaskriði sökum hækkunar lægstu launa umfram hærri laun. 2. Húsnæðisverð kynni að halda áfram að hækka umfram almennt verðlag, þar sem fátt virðist benda til þess að þeirri spennu sem ríkt hefur á húsnæðismarkaði undanfarið ár taki að linna næstu mánuði. 3. Alþjóðleg verðlagsþróun gæti orðið óhagstæðari en nú er spáð. Að frátalinni hækkun orkuverðs hefur alþjóðleg verðbólga verið mjög lítil undan- farið ár.5 Síðustu mánuði hafa þó komið fram vís- bendingar um aukinn verðlagsþrýsting í Banda- ríkjunum. Hráefnaverð (annað en eldsneyti) sem fór lækkandi fram á mitt sl. ár er einnig tekið að hækka á ný. Meðal óvissuþátta sem gætu valdið minni verð- bólgu en nú er spáð má nefna: 5. Samræmd vísitala neysluverðs á evrusvæðinu hækkaði um 2,1% á tímabilinu mars 1999 til mars 2000. Þetta er aðeins meiri hækkun en verðbólgumarkmið Seðlabanka Evrópu, en að orkuliðnum frátöldum var hækkunin aðeins 0,9%. Eins og áður hefur komið fram hafa verðbólguspár Seðlabankans og fleiri aðila undanfarið ár verið of lágar. Áður höfðu þær um nokkurt skeið haft tilhneigingu til að vera of háar. Því er eðlilegt að spurt sé hvort mikilvægar skýristærðir vanti í þau kostnaðarlíkön sem einkum hafa verið notuð við spágerðina er gætu skýrt, að því er virð- ist, kerfisbundin frávik. Í alþjóðlegri umfjöllun um verð- bólgu er t.d. nýting innlendra framleiðsluþátta oft talin mikilvæg vísbending um verðþróun. Eftir því sem nýt- ingarhlutfall innlendra framleiðsluþátta er hærra aukast líkur á verðhækkunum og öfugt. Til þess að fá mæli- kvarða á hve mikil nýting innlendra framleiðsluþátta samrýmist stöðugu verðlagi er algengt að tölfræðilegum aðferðum sé beitt til að meta hve mikil framleiðsla sam- rýmist hagkvæmri nýtingu framleiðsluþátta, þ.e.a.s. að framleiðsluþættir séu hvorki of- né vannýttir. Niðurstöð- ur slíkra mælinga eru hins vegar háðar töluverðri óvissu. Meðfylgjandi mynd sýnir dæmi um slíkt mat fyrir Ísland ásamt verðbólguþróun frá árinu 1990.4 Eins og sjá má á myndinni dró úr eftirspurnarþrýst- ingi á samdráttarskeiðinu 1988-1995 og á síðari árum þess var framleiðslugeta hagkerfisins vannýtt. Þessar að- stæður stuðluðu að hjöðnun verðbólgu fram til ársins 1999. Eftir að samdráttarskeiðinu lauk, tók þjóðarbúið smám saman í notkun áður vannýtta framleiðslugetu og virðast framleiðsluþættir hafa verið að fullu nýttir ein- hvern tímann á tímabilinu 1997-1998 og ofnýttir eftir það. Frá þeim tíma hefur eftirspurn verið meiri en fram- leiðslugetan og leitt til vaxandi verðbólgu. Samkvæmt ofangreindu mati verður nýting framleiðsluþátta á þessu ári 4% meiri en sem nemur eðlilegri nýtingu, en heldur mun slakna á eftirspurnarþrýstingnum frá og með næsta ári. Rammi 1 Samband verðbólgu og eftirspurnarspennu Verðbólga og eftirspurnarspenna Mynd 4 1990 91 92 93 94 95 96 97 98 99 00 2001 0 2 4 6 8 10 12 14 16 18 -2 -4 -6 % Verðbólga Eftirspurnarspenna 2000-2001: Spár 4. Matið byggir á tímaraðagreiningu þar sem metnir eru kerfisskellir sem hafa varanleg áhrif á landsframleiðslu á raunvirði (e. structural vector autoregressive). Sjá Már Guðmundsson, Þórarinn G. Péturs- son og Arnór Sighvatsson (2000), „Optimal Exchange Rate Policy: The Case of Iceland,“ í bókinni Macroeconomic Policy: Small Open Economies in an Era of Global Integration, ritstjórar Már Guð- mundsson, Tryggvi Þ. Herbertsson og Gylfi Zoëga. Reykjavík: Háskólaútgáfan (væntanleg) og Þórarinn G. Pétursson (2000), „Wage and Price Formation in a Small Open Economy: Evidence from Iceland“, Hagfræðisvið Seðlabanka Íslands, óbirt handrit.

x

Peningamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.