Peningamál - 01.05.2000, Síða 38

Peningamál - 01.05.2000, Síða 38
jafna áhættu í rekstri fyrirtækja á þessu sviði, sem meðal annars stafar af verðsveiflum afurða. Iðnfyrirtæki Veruleg breyting varð á rekstrarlegu eðli og for- sendum iðnfyrirtækja á Verðbréfaþingi Íslands á seinasta ári, þegar á heildina er litið. Útflutnings- starfsemi og erlend útrás með rekstri dótturfyrirtækja erlendis setur í vaxandi mæli svip á rekstur iðnfyrir- tækjanna. Nú hafa átta af þeim 14 iðnfyrirtækjum sem hér eru til umræðu haslað sér völl erlendis í meira eða minna mæli, með útflutningi eða fram- leiðslu erlendis. Í annan stað eru iðnfyrirtæki sem byggja á þekkingarbundinni hátækniframleiðslu orð- in áberandi í þessari atvinnugrein. Eðli framleiðslu margra þessara fyrirtækja, sérstaklega þeirra sem byggja á hátækni, vöruþróun og rannsóknum til út- flutnings, er þannig að mikilvægi samkeppnisþátta sem endurspeglast í raungengi krónunnar er mun minna en þeirra fyrirtækja sem einvörðungu fram- leiða til innanlandssölu. Rúmlega 15% veltuaukning varð hjá iðnfyrir- tækjunum á síðasta ári, en um 19% ef rekstur Ís- lenska járnblendifélagsins er ekki talinn með. Nei- kvæð rekstrarniðurstaða Járnblendifélagsins vegna erfiðleika við orkuöflun og lágs verðs á kísiljárni setti mjög svip sinn á heildarrekstrarniðurstöðu iðn- fyrirtækjanna á seinasta ári. Hagnaður allra fyrirtækj- anna fyrir afskriftir og fjármagnsliði sem hlutfall af veltu lækkaði nokkuð milli áranna 1998 og 1999, fór úr 9,4% í 7,1%, hagnaður af reglulegri starfsemi sem hlutfall af veltu lækkaði einnig milli ára úr 3,9% í 3,5%. Kostnaður vegna aðkeyptra efna hækkaði nokkuð sem hlutfall af heildarveltu, úr 47,1% árið 1998 í 49,7% á árinu 1999. Segir þar til sín hækkun á aðkeyptum hrávörum. Launaliðurinn hækkaði hins vegar í takt við veltu þannig að launahækkanir hafa ekki íþyngt rekstrinum að jafnaði. Afskriftir hækk- uðu hins vegar nokkuð hlutfallslega enda jukust varanlegir rekstrarfjármunir verulega á seinasta ári eða um tæp 32%. Í heild sinni jukust bókfærðar eign- ir um 32% sem er vísbending um þá fjármunamynd- un og grósku sem er hjá þeim iðnfyrirtækjum sem hér um ræðir. Langtímaskuldir jukust og verulega eða um tæplega 49% jafnframt því sem skuldahlut- fallið (hlutfall langtímalána og eigin fjár) hækkaði allnokkuð eða úr 0,58 í 0,70. Eiginfjárhlutfallið lækkaði nokkuð eða úr 47,6% í 43,8% á seinasta ári. Slæm afkoma Járnblendifélagsins setur mjög mark sitt á heildarniðurstöðutölur fyrir þessi iðnfyrirtæki eins og áður segir, en að henni slepptri batnaði af- koma iðnfyrirtækja verulega á milli áranna 1998 og 1999. Sem hlutfall af veltu hækkaði HARS úr 3,8% 1998 í 5,2% á seinasta ári og hreinn hagnaður úr 2,9% í 3,5%. Ljóst er að þau iðnfyrirtæki sem eru á VÞÍ gefa takmarkaða mynd af rekstri og rekstrarafkomu í iðn- aðinum í heild. Varhugavert er því að draga of víð- tækar ályktanir af þeirri afkomumynd sem iðnfyrir- tæki á VÞÍ gefa. Tölurnar gefa þó ákveðna vísbend- ingu um að ytri rekstrarforsendur og samkeppnisfor- sendur hafi ekki íþyngt iðnfyrirtækjum í verulegum mæli á seinasta ári, eins og m.a. má sjá af þróun launaliðarins sem stendur hlutfallslega í stað, veltu- aukningu og jákvæðum fjármagnslið (fjármagns- tekjur hærri en fjármagnsgjöld). Í heild sinni verður að telja að rekstur iðnfyrirtækja á VÞÍ hafi gengið vel og verið blómlegur á seinasta ári. Alls eru það 8 iðn- fyrirtæki af þeim 14 sem eru í þessu úrtaki sem sýna PENINGAMÁL 2000/2 37 Tafla 3 Úr reikningum iðnfyrirtækja á VÞÍ 1999 1999 1998 %-br. m.kr. m.kr. ´98/99 Velta ................................................ 26.289 22.832 15,1 Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði .............................. 1.872 2.140 -12,5 Hagnaður fyrir fjármagnsliði .......... 736 1.196 -38,5 Hagnaður af reglulegri starfsemi (HARS) ........................... 915 895 2,3 Hreinn hagnaður eftir skatta ........... 468 847 -44,8 Niðurstaða efnahags ........................ 31.104 23.562 32,0 Eigið fé ............................................ 13.612 11.223 21,3 Langtímaskuldir .............................. 9.629 6.482 48,6 Veltufé ............................................. 1.072 1.502 -28,6 Kennitölur Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði/velta (%) ................... 7,1 9,4 . Hagnaður fyrir fjármagnsliði/velta (%) ................... 2,8 5,2 . HARS/velta (%) .............................. 3,5 3,9 . Hreinn hagnaður/velta (%) ............. 1,8 3,7 . Arðsemi heildarfjármuna (%) ......... 2,4 5,1 . Eiginfjárhlutfall (%) ........................ 43,8 47,6 . Arðsemi eigin fjár (%) .................... 3,4 7,6 . Velta/heildareignir ........................... 0,85 0,97 .

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.