Peningamál - 01.08.2001, Qupperneq 44
n. Staðfesta starfsreglur sem bankastjórn setur um
varðveislu gjaldeyrisforðans, sbr. 20. gr.
VI. KAFLI
Öflun upplýsinga, rannsóknir og skýrslugerð.
29. gr.
Til þess að sinna hlutverki sínu skv. 3. og 4. gr. getur
Seðlabanki Íslands milliliðalaust aflað upplýsinga frá
þeim sem eru í viðskiptum við bankann skv. 6. gr.,
sbr. 7. gr., auk fyrirtækja í greiðslumiðlun og annarra
fyrirtækja eða aðila sem lúta opinberu eftirliti með
starfsemi sinni, sbr. lög um opinbert eftirlit með fjár-
málastarfsemi.
Skylt skal öllum að láta Seðlabankanum í té þær
upplýsingar sem hann þarf á að halda til hagskýrslu-
gerðar að viðlögðum viðurlögum skv. 37. gr.
30. gr.
Seðlabanki Íslands gerir skýrslur og áætlanir um
peningamál, greiðslujöfnuð, gengis- og gjaldeyris-
mál og annað sem hlutverk og stefnu bankans varðar.
Seðlabankinn skal eigi sjaldnar en ársfjórðungslega
gera opinberlega grein fyrir stefnu sinni í peninga-
málum og fyrir þróun peningamála, gengis- og gjald-
eyrismála og aðgerðum sínum á þeim sviðum. Þá
skal Seðlabankinn gefa út ársskýrslu þar sem hann
gerir ítarlega grein fyrir starfsemi sinni.
31. gr.
Seðlabanki Íslands stundar hagrannsóknir sem lúta
að viðfangsefnum bankans á sviði peningamála og
fjármálakerfis. Jafnframt er bankanum heimilt að
stuðla að rannsóknum annarra á þessum sviðum.
VII. KAFLI
Reikningsskil og ráðstöfun hagnaðar.
32. gr.
Reikningsár Seðlabanka Íslands er almanaksárið.
Fyrir hvert reikningsár skal gera árs reikning og skal
gerð hans lokið innan þriggja mánaða frá lokum
reikningsárs. Um gerð ársreiknings fer eftir lögum,
reglum og góðri reikningsskilavenju.
Forsætisráðherra setur nánari reglur um reikn-
ingsskil og ársreikning að fengnum tillögum Seðla-
bankans, sbr. 28. gr.
33. gr.
Innri endurskoðun í Seðlabanka Íslands er í höndum
aðalendurskoðanda, sbr. 28. gr. Auk þess skal Ríkis-
endurskoðun annast endurskoðun hjá Seðlabank-
anum.
Að lokinni endurskoðun á ársreikningi bankans
skal hann undirritaður af bankastjórn og staðfestur af
bankaráði, sbr. 28. gr. Hafi bankaráðsmaður fram að
færa athugasemdir við ársreikning skal hann undirrit-
aður með fyrirvara og koma skal fram hvers eðlis
fyrirvarinn er.
Endurskoðaður reikningur skal lagður fyrir for-
sætisráðherra til áritunar eigi síðar en þremur mánuð-
um eftir lok reikningsárs.
Ársreikning Seðlabankans skal birta í ársskýrslu
bankans, sbr. 30. gr. Enn fremur skal bankinn birta
mánaðarlegt efnahagsyfirlit.
34. gr.
Árlega skal fjárhæð sem svarar til tveggja þriðju
hluta hagnaðar Seðlabanka Íslands á liðnu reiknings-
ári greidd í ríkissjóð. Greiðsla fer fram eigi síðar en
1. júní ár hvert.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skal Seðlabankinn
aðeins greiða þriðjung hagnaðar síns í ríkissjóð ef
eigið fé bankans í lok reikningsárs svarar ekki að
lágmarki til 2,25% af fjárhæð útlána og innlendrar
verðbréfaeignar lánakerfisins í lok reikningsársins á
undan.
VIII. KAFLI
Ýmis ákvæði.
35. gr.
Bankaráðsmenn, bankastjórar og aðrir starfsmenn
Seðlabanka Íslands eru bundnir þagnar skyldu um
allt það sem varðar hagi viðskiptamanna bankans og
málefni bankans sjálfs, svo og um önnur atriði sem
þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara
samkvæmt lögum eða eðli máls, nema dómari úr-
skurði að upplýsingar sé skylt að veita fyrir dómi eða
til lögreglu eða skylt sé að veita upplýsingar lögum
samkvæmt. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.
Bankaráðsmönnum, bankastjórum og öðrum
starfsmönnum Seðlabankans er óheimilt að nýta sér
trúnaðarupplýsingar, sem þeir komast yfir vegna
starfs síns í bankanum, í þeim tilgangi að hagnast eða
forðast fjárhagslegt tjón í viðskiptum.
PENINGAMÁL 2001/3 43