Peningamál - 01.02.2002, Blaðsíða 39
SAXESS er öflugt viðskiptakerfi sem ræður við að
afgreiða yfir 2000 færslur á sekúndu. Það veitir þing-
aðilum aðgang að fjölda aðgerða sem styðja og auð-
velda verðbréfaviðskipti, þar á meðal tengd tilboð,
meðalverðspörun o.s.frv. Kerfið heldur utan um
seljanleika hvers verðbréfs í einni tilboðaskrá, sem
fer eftir gjaldeyri og markaði bréfsins. Kerfið býður
jafnframt upp á sjálfvirka skráningu tilboða þar sem
fjárfestar geta sjálfir sett tilboð inn í kerfið fyrir
milligöngu þingaðila. Upplýsingar eru birtar sam-
tímis á skjám verðbréfamiðlara sem tilboðaskrár,
viðskiptaupplýsingar og ýmsar skýrslur. Meðlimir í
NOREX-samstarfinu eru nú kauphallirnar í Kaup-
mannahöfn, Stokkhólmi og Osló auk Verðbréfaþings
Íslands.
Seðlabanki Íslands hefur ekki nýtt sér aðild sína
að Verðbréfaþingi undanfarin ár til að hafa áhrif á
peningamagn í umferð (e. open market operation).
Þó er alltaf sá möguleiki fyrir hendi fyrir Seðla-
bankann að hafa áhrif á peningaframboðið með því
að kaupa eða selja verðbréf, t.a.m. ríkisvíxla. Það er
til dæmis þekkt aðferð hjá öðrum seðlabönkum að
jafna peningaframboð eftir inngrip á gjaldeyris-
markaði með inngripum á verðbréfamarkaði (e. ster-
ilization). Ef Seðlabankinn keypti krónur á gjald-
eyrismarkaði gæti hann selt þær aftur fyrir verðbréf á
skuldabréfamarkaði. Það væri ein aðferð til að eyða
lausafjáráhrifum gjaldeyrissölunnar. Seðlabanki
Íslands hefur hingað til notað aðrar aðferðir, þ.e. með
endurhverfum viðskiptum við lánastofnanir.
Viðskiptavakar
Hlutverk viðskiptavaka (e. market maker) er að vera
jafnan reiðubúinn að kaupa og selja þá flokka
verðbréfa sem hann hefur tekið að sér að sjá um á
auglýstu verði. Viðskiptavaki kaupir bréf þau sem
hann hefur tekið að sér jafnvel þó að engir aðrir
kaupendur finnist á markaðinum. Hann selur jafn-
framt af eigin bréfum þegar enginn annar seljandi
finnst. Með þessu jafnar viðskiptavaki sveiflur sem
gætu orðið á endursölumarkaðinum. Viðskiptavakar
hafa tekjur sínar af því að kaupa sjálfir verðbréf á
ákveðnu verði og selja þau síðan aftur á nokkru
hærra verði.
Árlega endurskoða bæði Lánasýsla ríkisins og
Íbúðalánasjóður viðskiptavakasamninga sína við
innlendar fjármálastofnanir. Viðskiptavakasamn-
ingur ríkisverðbréfa tekur til þriggja flokka spari-
skírteina og tveggja flokka ríkisbréfa. Viðskiptavaka-
samningur Íbúðalánasjóðs tekur til fimm flokka hús-
bréfa og tveggja flokka húsnæðisbréfa.7 Markmið
samningsins er að auka seljanleika bréfanna á eftir-
markaði. Skyldur viðskiptavaka eru í gildi á af-
greiðslutíma Verðbréfaþings eða á milli klukkan
10:00 og 16:00.
Réttindi og skyldur viðskiptavaka með markflokka
ríkisverðbréfa og hús- og húsnæðisbréfa
Samningum við viðurkennda viðskiptavaka er ætlað
að bæta verðmyndun og tryggja seljanleika á stærstu
flokkum verðbréfa sem útgefin eru af ríkissjóði og
Íbúðalánasjóði. Viðskiptavakasamningar eru gerðir
til eins árs í senn. Helstu skuldbindingar sem fram
koma í samningunum eru sýndar í yfirliti á næstu
síðu.
Réttindi og skyldur aðalmiðlara með ríkisvíxla
Samningum við aðalmiðlara um sölu ríkisvíxla er
ætlað að tryggja útgáfu á ríkisvíxlum og efla verð-
myndun þeirra á eftirmarkaði. Betri verðmyndun á
ríkisvíxlum ætti einnig að bæta verðmyndun annarra
skammtímaverðbréfa, svo sem bankavíxla, ásamt því
að hafa jákvæð áhrif á millibankamarkaðinn með
krónur. Helstu skuldbindingar aðalmiðlara eru eftir-
farandi:
Aðalmiðlari verður að kaupa ríkisvíxla í þremur
útboðum á 6 mánaða tímabili fyrir samtals 3 ma.kr.
að nafnverði. Jafnframt skuldbindur aðalmiðlari sig
til þess að leggja fram kaup- og sölutilboð á Verð-
bréfaþingi í þá flokka ríkisvíxla sem samningurinn
nær yfir og skal hvert tilboð ekki vera lægra en 100
m.kr. að nafnverði.
Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín
innan 10 mínútna frá því að tilboði hans hefur verið
tekið uns heildarviðskipti í viðkomandi flokki hafa
náð 400 m.kr. yfir daginn. Verðmunur á kaup- og
sölutilboðum má ekki vera meira en 0,03%.
Lánasýslan greiðir aðalmiðlara þóknun sem er
umsamin 0,39% af nafnverði samþykktra tilboða. Ef
samþykkt tilboð aðalmiðlara nær ekki lágmarki sem
38 PENINGAMÁL 2002/1
7. Nú eru Búnaðarbanki Íslands hf., Sparisjóðabanki Íslands hf., Lands-
banki Íslands hf. og Kaupþing hf. viðskiptavakar fyrir ríkisverðbréf.
Íslandsbanki hf., Kaupþing hf., Landsbanki Íslands hf. og SPRON eru
viðskiptavakar hús- og húsnæðisbréfa. Sparisjóðabanki Íslands hf.,
Landsbanki Íslands hf. og Íslandsbanki hf. eru aðalmiðlarar ríkisvíxla.