Peningamál - 01.02.2002, Blaðsíða 40
hann er skuldbundinn að kaupa þá skerðist þóknun
hans hlutfallslega. Einnig njóta aðalmiðlarar þeirra
réttinda að vera einu aðilarnir sem fá að kaupa
umrædda ríkisvíxla í útboðum hjá Lánasýslu ríkisins.
Uppgjör viðskipta
Verðbréfaskráning Íslands hf. er miðstöð rafrænnar
útgáfu og eignarskráningar verðbréfa. Verðbréfa-
skráning starfrækir miðlæga eignarskráningu og
vörslu verðbréfa í rafrænu formi. Rafrænni skráningu
á öllum helstu verðbréfum skráðum á þinginu er að
ljúka. Öll viðskipti með rafræn verðbréf sem gerast
með sjálfvirkri pörun á Verðbréfaþingi flytjast sjálf-
krafa til Verðbréfaskráningar. Verðbréfaskráning
sendir síðan greiðslufyrirmæli til Seðlabanka Íslands,
sem er milliliður í greiðslujöfnun þegar verðbréf
ganga kaupum og sölum. Aðeins uppgjörsbankar
geta tekið þátt í greiðslujöfnun vegna verðbréfavið-
skipta. Uppgjörsferlið tekur einn viðskiptadag (T+1),
þ.e. öll viðskipti eru gerð upp og eignarréttindi skráð
fyrir opnun næsta viðskiptadags.
Verðbréfaskráning Íslands er háð eftirliti Fjár-
málaeftirlitsins og hefur hlotið vottun hjá nokkrum
erlendum vörslubönkum (Custodian Banks) þess
efnis að hún uppfylli skilyrði tilskipunar Verðbréfa-
eftirlits Bandaríkjanna. Möguleiki er á safnreiknings-
fyrirkomulagi.
Uppbygging markaðar og helstu markflokkar skulda-
bréfa
Markflokkar ríkisverðbréfa
Fyrir nokkrum árum voru flokkar spariskírteina og
ríkisbréfa um 46 talsins. Þessi mikli fjöldi flokka og
smæð margra þeirra olli því að viðskipti með hvern
og einn urðu fátíð og verulegt ósamræmi myndaðist
í verðlagningu. Til þess að treysta myndun markaðs-
vaxta á eftirmarkaði og auka söluhæfni var farið út í
þá aðgerð að fækka flokkum. Þessar breytingar hafa
leitt til þess að núna eru útistandandi átta flokkar sem
eru stærri en 1 ma.kr. hver. Fimm þeirra eru mark-
flokkar og þrír uppkaupsflokkar. Markflokkarnir
fimm heita eftirfarandi nöfnum:
Spariskírteini8 Ríkisbréf 9
RIKS 03 0210 RIKB 03 1010
RIKS 05 0410 RIKB 07 0209
RIKS 15 1001 Nýr flokkur
væntanlegur 2002
PENINGAMÁL 2002/1 39
Framsetning
tilboða
Þak viðskipta
Verðmunur
kaup- og
sölutilboða
Þóknun
Ríkisverðbréf
Skuldbinding til að setja fram kaup- og sölu-
tilboð að lágmarki 50 m.kr. að markaðsvirði í
þá flokka sem samningurinn nær yfir. Ef
tilboðum er tekið er skylda að endurnýja
tilboðin innan 10 mínútna.
Hafi viðskipti náð 400 m.kr. að markaðsvirði
í tilteknum flokki á einum degi er heimilt að
hætta framsetningu tilboða í þeim flokki þann
dag.
Verðmunur á kaup- og sölutilboðum haldist
innan tiltekinna marka (0,15%-0,50%).
Veltuþóknun sem er 0,10% af fjárhæð við-
skipta með umrædda flokka og reiknast af
mánaðarlegri veltu á Verðbréfaþingi Íslands.
Hámarksgreiðsla til hvers viðskiptavaka er 35
m.kr. yfir samningstímann sem er eitt ár.
Hús- og húsnæðisbréf
Skuldbinding til að setja fram kaup- og sölu-
tilboð að lágmarki 40 m.kr. að markaðsvirði í
þá flokka sem samningurinn nær yfir. Ef
tilboðum er tekið er skylda að endurnýja til-
boðin innan 10 mínútna.
Hafi viðskipti náð 400 m.kr. að markaðsvirði
í tilteknum flokki á einum degi er heimilt að
hætta framsetningu tilboða í þeim flokki þann
dag.
Verðmunur á kaup- og sölutilboðum haldist
innan tiltekinna marka (0,45%-0,60%).
Veltuþóknun sem er 0,08% af fjárhæð við-
skipta með umrædda flokka og reiknast þókn-
un af mánaðarlegri veltu á Verðbréfaþingi
Íslands. Hámarksgreiðsla til hvers viðskipta-
vaka fyrir hvern mánuð er kr. 3.833.333 og
nái viðskiptavaki ekki hámarksþóknun í
hverjum mánuði skerðist heildarþóknun hans.