Peningamál - 01.02.2002, Blaðsíða 56

Peningamál - 01.02.2002, Blaðsíða 56
PENINGAMÁL 2002/1 55 Janúar 2001 Hinn 10. janúar sendi Búnaðarbanki Íslands hf. frá sér fréttatilkynningu um að bankanum hafi borist tilkynning frá Fjármálaeftirlitinu þann 5. janúar. Fram kemur að Fjármálaeftirlitið telji nauðsynlegt að rannsaka frekar viðskipti Búnaðarbankans hf. og Hlutabréfasjóðs Búnaðarbankans með hlutabréf í Pharmaco hf. tímabilið frá 7. júní 1999 til mars 2000. Fram kemur það mat Fjármálaeftirlitsins að Búnaðar- bankinn hf. og Hlutabréfasjóður Búnaðarbankans hafi búið yfir trúnaðarupplýsingum umrætt tímabil. Hinn 24. janúar greip Seðlabanki Íslands inn í við- skipti á millibankamarkaði með gjaldeyri eftir að gengisvísitala íslensku krónunnar hafði stigið hratt eftir að markaðurinn var opnaður kl. 9:15. Seðla- bankinn seldi Bandaríkjadali fyrir 2,06 ma.kr. sem varð til þess að ró komst á markaðinn. Hinn 26. janúar var undirritaður samningur á milli Seðlabanka Íslands og þýska bankans DePfa Europe um lánsheimild að fjárhæð 250 milljónir Bandaríkja- dala. Mun lánssamningurinn auka svigrúm Seðla- bankans til aðgerða á gjaldeyrismarkaði. Febrúar 2001 Hinn 7. febrúar sendi bandaríska matsfyrirtækið Moody's í New York frá sér frétt þar sem tilkynnt er að fyrirtækið hafi staðfest lánshæfismat sitt fyrir Ísland. Í fréttinni segir Moody's að horfur um láns- hæfismatið séu taldar stöðugar í nýrri skýrslu fyrir- tækisins um Ísland. Þessi niðurstaða endurspeglar verulega bætta skuldastöðu opinbera geirans og stað- festu stjórnvalda í hagstjórn sem lagt hefur grunn að öflugum hagvexti, stöðugleika og miklum lífskjara- bata á liðnum árum. Umfangsmiklar skipulags- breytingar á síðasta áratug hafa falið í sér styrkingu á fjármálum hins opinbera, aukið frjálsræði á fjármála- og vörumarkaði, aukna fjölbreytni í framleiðslu og útflutningi, bætta stjórn fiskveiða og frjálslyndari viðhorf til erlendrar fjárfestingar. Moody's varar á hinn bóginn við því að miklum hagvexti hafi fylgt alvarlegt ójafnvægi í þjóðarbúskapnum sem gæti grafið undan efnahagslegum stöðugleika á komandi tíð. Lánasýsla ríkisins tilkynnti um niðurstöður útboðs á RIKB 07 0209. Um er að ræða ný óverðtryggð ríkis- bréf, kúlubréf, sem bera ekki vexti og falla í gjald- daga þann 9. febrúar 2007. Hinn 13. febrúar var tilkynnt að í framhaldi af kaupum Kaupþings hf. og samstarfsaðila á meiri- hluta hlutafjár í Frjálsa fjárfestingarbankanum hafi verið ákveðið að hætta starfsemi Markaðssviðs Frjálsa fjárfestingarbankans hf. Mars 2001 Hinn 16. mars fór fram útboð á ríkisvíxlum hjá Lána- sýslu ríkisins. Var þetta síðasta útboðið sem féll undir samning varðandi nýtt aðalmiðlarakerfi með ríkis- víxla og viðskiptavakt með þá á eftirmarkaði. Frá 23. mars til 27. mars þurfti Seðlabanki Íslands ítrekað að selja Bandaríkjadali fyrir krónur með það að markmiði að verja vikmörk íslensku krónunnar. Alls voru seldir dalir fyrir 6,8 ma.kr. Helsta ástæða óróans var óvissa um niðurstöður aðalfundar Seðla- bankans sem auglýstur hafði verið 27. mars. Hinn 27. mars undirrituðu Seðlabanki Íslands og forsætisráðherra yfirlýsingu um breytingar á fyrir- komulagi stjórnar peningamála á Íslandi sem tóku gildi 28. mars 2001. Í stað þess að miða peninga- stefnuna við að halda gengi krónunnar innan vik- marka mun Seðlabankinn hér eftir miða hana við að halda verðbólgu sem næst 2½% með ákveðnum þol- mörkum. Ríkisstjórnin veitir Seðlabankanum fullt svigrúm til að beita stjórntækjum sínum í því skyni að ná verðbólgumarkmiði sínu. Samhliða tilkynningu um breytta peningamálastefnu tilkynnti Seðlabankinn um 0,5 prósentustiga vaxta- lækkun í endurhverfum viðskiptum við lánastofnanir. Annáll fjármálamarkaða Janúar 2001 – janúar 2002
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85

x

Peningamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.