Peningamál - 01.05.2002, Blaðsíða 55
Skilgreining á eiginfjárhlutfalli og uppruni reglna
Eiginfjárhlutfall lánastofnana er skilgreint sem hlut-
fall eigin fjár á móti áhættuskuldbindingum (áhættu-
grunni). Í VI. kafla laga nr. 113/1996 um viðskipta-
banka og sparisjóði og í 10. gr. laga nr. 123/1993 um
lánastofnanir aðrar en viðskiptabanka og sparisjóði,
með síðari breytingum, svo og í reglum nr. 693/2001,
er kveðið á um kröfur um eiginfjárhlutfall lánastofn-
ana.
Íslenskar reglur um eiginfjárhlutfall eru byggðar
á samræmdum lágmarkskröfum í EES-rétti og á svo
nefndum Basel-viðmiðum frá 1988. Reglurnar sam-
eina kröfur um eigið fé (e. own funds) og eiginfjár-
hlutfall (e. solvency ratio) lánastofnana vegna útlána-
áhættu, sbr. tilskipun nr. 2000/12/EC, og eiginfjár-
kröfur (e. capital adequacy) til lánastofnana (og fyrir-
tækja í verðbréfaþjónustu) vegna markaðsáhættu þ.e.
gjaldeyrisáhættu, stöðuáhættu, mótaðilaáhættu og
umframáhættu vegna stórra áhættuskuldbindinga,
sbr. tilskipun nr. 93/6/EBE.
Eiginfjárþættir A, B og C
Eigið fé lánastofnana er skilgreint í 54. gr. laga nr.
113/1996, sbr. 10. gr. laga nr. 123/1993, og flokkað í
þætti, þ.e. A, B og C. Reglurnar kveða á um hvað
felst í hverjum eiginfjárþætti og hvað skal vera inn-
byrðis vægi þeirra.
Eiginfjárþáttur A telst vera innborgað hlutafé,
varasjóðir, yfirverðsreikningur hlutafjár, óráðstafað
eigið fé að frádregnu tapi ársins og endurmats-
reikningur vegna verðbólgureikningsskila. Frá þessu
skal draga eigin hlutabréf, viðskiptavild og aðrar
óáþreifanlegar eignir, svo og áfallnar ófærðar skatt-
skuldbindingar sem rýra möguleika lánastofnunar-
innar til að mæta tapi. Samkvæmt reglugerð nr.
852/2000, sbr. reglugerð nr. 964/2000, er heimilt að
telja til eiginfjárþáttar A víkjandi lán án gjalddaga og
með takmörkuðum vaxtagreiðslum sem endurgreiða
má í fyrsta lagi eftir 10 ár frá útgáfudegi enda heim-
ili Fjármálaeftirlitið endurgreiðsluna. Eiginfjárþáttur
A skal nema að lágmarki helmingi eigin fjár fyrir frá-
drátt. Jafnframt má víkjandi lán í eiginfjárþætti A
hæst nema 15% af eiginfjárþætti A.
Eiginfjárþáttur B telst vera víkjandi lán og endur-
matsreikningur sem ekki fellur undir eiginfjárþátt A.
Víkjandi lán er til eigi skemmri tíma en fimm ára
sem fæst endurgreitt við gjaldþrot á eftir öllum öðr-
um kröfum á hendur lánastofnuninni en endur-
greiðslu hlutafjár eða stofnfjár. Þegar fimm ár eru
eftir af lánstímanum skal lánið reiknast niður um
20% fyrir hvert ár sem líður af þessum fimm árum.
Eiginfjárþáttur B má hæst nema 50% af eiginfjár-
þætti A.
Eiginfjárþáttur C telst vera víkjandi lán til eigi
skemmri tíma en tveggja ára sem óheimilt er að
greiða af ef eiginfjárhlutfall hlutaðeigandi lánastofn-
unar er lægra en 8%. Eiginfjárþáttur C má hæst nema
50% af eiginfjárþætti A. Jafnframt má eiginfjárþáttur
C hæst nema 4,8% af reiknuðum áhættugrunni
lánastofnunar vegna markaðsáhættu liða í veltubók
og gengisáhættu.
Frádráttur
Samkvæmt 55. gr. laga nr. 113/1996 skal draga frá
eigin fé bókfært virði á eignarhlutum og víkjandi
lánum lánastofnunar hjá öðrum félögum sem stunda
fjármálaþjónustu ef (a) eignarhlutur nemur meira en
10% af hlutafé félaganna, eða (b) eignarhlutur er allt
að 10% af hlutafé félaganna og jafnframt umfram
10% (þ.e. sú fjárhæð sem er yfir því marki) af eigin
fé viðkomandi lánastofnunar. Þá dragast frá eigin fé
eignarhlutir og víkjandi lán hjá dótturfélögum sem
reka vátryggingastarfsemi eða aðra hliðarstarfsemi.
Frá eigin fé dragast ennfremur eignarhlutir í fyrir-
tækjum sem ekki stunda bankastarfsemi ef þeir eru
umfram 15% (þ.e. sú fjárhæð sem er yfir því marki)
af eigin fé hlutaðeigandi stofnunar.
Lágmarkskrafa um eiginfjárhlutfall
Í 1. mgr. 54. gr. laga nr. 113/1996 er gerð sú krafa að
eigið fé lánastofnunar nemi aldrei lægri fjárhæð en
sem svarar til 8% af svonefndum áhættugrunni.
Kveðið er á um útreikning á áhættugrunni í reglum
nr. 693/2001.
Útreikningur á áhættugrunni
Í fyrsta lagi nær áhættugrunnurinn til útlánaáhættu
(e. credit risk) eignaliða og liða utan efnahagsreikn-
ings sem ekki teljast til veltubókar. Með veltubók (e.
trading book) er átt við verðbréf, önnur fjármálaskjöl
54 PENINGAMÁL 2002/2
Viðauki 1 Kröfur um eiginfjárhlutfall lánastofnana og svigrúm vegna víkjandi lántöku