Peningamál - 01.08.2002, Blaðsíða 53
52 PENINGAMÁL 2002/3
Október 2001
Hinn 22. október staðfesti bandaríska matsfyrirtækið
Standard & Poor's óbreytt lánshæfismat fyrir Ísland
eða A+ í einkunn á langtímaskuldbindingum. Horfur
um einkunnina voru taldar neikvæðar en voru áður
stöðugar.
Hinn 29. október rann út frestur til að skila inn
óskuldbindandi verðtilboðum í 25% hlutafjár í
Landssíma Íslands hf. Um var að ræða annan áfanga
í einkavæðingu félagsins þar sem markmiðið er að
finna kjölfestufjárfesti sem styrki fyrirtækið, auki
verðmæti þess og efli íslenskan fjarskiptamarkað.
Nóvember 2001
Hinn 8. nóvember tilkynnti Seðlabanki Íslands um
0,8 prósentustiga lækkun stýrivaxta. Lækkunin tók
gildi þann 11. nóvember. Eftir lækkunina voru stýri-
vextir Seðlabanka Íslands 10,1%.
Hinn 10. nóvember var samþykkt á hluthafafundi
Búnaðarbanka Íslands hf. tillaga bankaráðs um sam-
runa Búnaðarbanka Íslands hf. og Lýsingar hf. Gert
var ráð fyrir að Lýsing hf. yrði algerlega sameinuð
bankanum með yfirtöku eigna og skulda.
Desember 2001
Hinn 12. desember var tilkynnt að bankaráð Bún-
aðarbanka Íslands hf. og stjórn Gildingar ehf. hefðu
samþykkt samruna félagana með þeim hætti að Gild-
ing yrði sameinuð Búnaðarbankanum.
Hinn 15. desember var lágmarksfjárhæð greiðslu-
fyrirmæla í stórgreiðslukerfi Seðlabanka Íslands
lækkuð úr 100 m.kr. í 25 m.kr.
Janúar 2002
Hinn 9. janúar var tilkynnt að Kaupþing hf. hefði
undirritað viljayfirlýsingu um kaup á sænska verð-
bréfafyrirtækinu Aragon Holding AB. Gert var ráð
fyrir að kostgæfnisathugun lyki í janúar og að þá yrði
endanlega gengið frá viðskiptunum.
Hinn 11. janúar var Kaupþingi hf. veitt viðskipta-
bankaleyfi. Þann 28. desember 2001 var samþykkt á
hluthafafundi hjá Kaupþingi hf. að breyta samþykkt-
um félagsins svo að unnt yrði að veita Kaupþingi
viðskiptabankaleyfi. Meðal þess sem hluthafafund-
urinn samþykkti var að bæta orðinu banki aftan við
heiti félagsins. Nafn félagsins eftir breytingu er
Kaupþing banki hf. og starfar það samkvæmt lögum
um viðskiptabanka og sparisjóði.
Hinn 20. janúar tóku gildi breytingar á starfrækslu-
tíma stórgreiðslukerfis sem starfrækt er af Seðla-
banka Íslands. Stórgreiðslukerfið verður starfrækt frá
kl.8.45 til kl.18.00 og lágmarksupphæð greiðslufyrir-
mæla er 25 milljónir króna.
Í fjáraukalögum 2001 sem samþykkt voru á Alþingi í
desember fólst m.a. heimild til þess að ríkissjóður
legði Seðlabanka Íslands til stofnfé að fjárhæð 9
ma.kr. á árinu 2001. Framlagið var greitt í lok ársins.
Í fjárlögum 2002 sem einnig voru samþykkt í desem-
ber fólst heimild til þess að greiða 4,5 ma.kr. stofn-
fjárframlag til bankans á árinu 2002.
Febrúar 2002
Hinn 11. febrúar var undirritaður samningur á milli
Seðlabanka Íslands og Union Bank of Norway um
lánsheimild að fjárhæð 200 milljónir Bandaríkjadala
sem samsvaraði á þeim tíma tæplega 21 milljarði
króna. Samningurinn er til fimm ára og felur í sér
hagstæð kjör fyrir Seðlabankann. Samningurinn við
Union Bank of Norway kemur til viðbótar sambæri-
legum samningum um lánsheimildir við nokkrar
aðrar fjármálastofnanir.
Hinn 15. febrúar staðfesti alþjóðlega matsfyrirtækið
Fitch lánshæfiseinkunnina AA- fyrir ríkissjóð Íslands
vegna lána í erlendri mynt. Fyrirtækið staðfesti jafn-
framt lánshæfiseinkunnir fyrir skuldbindingar í
íslenskum krónum en þær eru AAA fyrir langtíma-
skuldbindingar og F1+ fyrir skammtímalán. Horfur
um lánshæfiseinkunnir vegna langtímalána voru
taldar neikvæðar en voru áður stöðugar.
Mars 2002
Hinn 5. mars tilkynnti Seðlabanki Íslands um fyrir-
hugaðar breytingar á hæfi verðbréfa í endurhverfum
viðskiptum. (Sjá rammagrein bls. 31 í Peningamál-
um 2002/2.)
Hinn 8. mars setti bankastjórn Seðlabanka Íslands
formlegar reglur um millibankamarkað með gjald-
eyrisskiptasamninga. Reglurnar tóku gildi 15. mars
2002.
Hinn 13. mars var tilkynnt að ákveðið hafi verið að
binda endi á það ferli sem staðið hafði um skeið og
miðaði að því að selja umtalsverðan hlut í Landssíma