Peningamál - 01.11.2002, Page 32
PENINGAMÁL 2002/4 31
þannig að st er skráð gengisvísitala daginn sem vaxta-
breytingin á sér stað (rétt fyrir hádegi þann dag).
Gengisbreytingarnar eru því mældar sem breytingar
milli daglegs skráningargengis.2
Í tölfræðimatinu eru metin áhrif stýrivaxta-
breytingar á gengi krónunnar einum, tveimur, fimm,
sjö, tíu og þrjátíu viðskiptadögum eftir vaxtabreyting-
una. Matið á ofangreindri jöfnu er sýnt í meðfylgjandi
töflu.
Eins og sjá má hefur stýrivaxtahækkun að jafnaði
tölfræðilega marktæk neikvæð áhrif á gengisvísitöluna
allt að sjö virkum dögum eftir vaxtahækkunina (m.v.
95% öryggismörk), þ.e. stýrivaxtahækkun leiðir til
hækkunar á gengi krónunnar og öfugt ef vextirnir eru
lækkaðir. Áhrifin eru mest fyrst þar sem 1% stýrivaxta-
hækkun lækkar vísitöluna um 0,75% að jafnaði. Eftir
tvo daga eru áhrifin rúmlega 0,3%, um 0,15% eftir sjö
vinnudaga en eru orðin tölfræðilega ómarktæk tíu
vinnudögum eftir vaxtabreytinguna.
Að sama skapi er skýringarmáttur vaxtabreytinga á
gengisbreytingar mestur fyrst þar sem vaxtabreytingar
skýra um og yfir 20% af breytileika gengisbreytinga
tvo fyrstu dagana eftir vaxtabreytinguna en hann er
síðan algerlega horfinn 30 viðskiptadögum eftir breyt-
inguna.
Meðfylgjandi mynd sýnir þessi uppsöfnuðu áhrif
vaxtabreytinga á gengisvísitöluna. Myndin sýnir
hvernig áhrifin mælast sterkust til að byrja með en
deyja síðan smám saman út.
Áhrif stýrivaxtabreytinga á gengi
krónunnar 1997-2002
Vinnudagar eftir
gengisbreytingu βk se(βk) R2k
k = 1........................ -0,775† 0,321 0,216
k = 2........................ -0,342† 0,126 0,284
k = 5........................ -0,133† 0,055 0,110
k = 7........................ -0,152† 0,057 0,144
k = 10...................... -0,101 0,048 0,123
k = 30...................... 0,004 0,045 0,000
se(z) er staðalfrávik stikans z leiðrétt með aðferð Newey og West.
† táknar að stikinn er tölfræðilega marktækur m.v. 95% öryggismörk.
2. Betra hefði verið að mæla st með gengi krónunnar í lok hvers dags en
slík gögn liggja ekki fyrir yfir allt tímabilið. Heimild: Seðlabanki Íslands
Áhrif 1% breytingar stýrivaxta
á gengisvísitölu
1 5 10 15 20 25 30
0.00
0.25
-0.25
-0.50
-0.75
-1.00
-1.25
-1.50
Stikamat ásamt 95% öryggisbili
Fjöldi vinnudaga eftir vaxtabreytingu