Peningamál - 01.11.2002, Page 98

Peningamál - 01.11.2002, Page 98
96 PENINGAMÁL 2002/4 Október 2001 Hinn 22. október staðfesti bandaríska matsfyrirtækið Standard & Poor's óbreytt lánshæfismat fyrir Ísland eða A+ í einkunn á langtímaskuldbindingum. Horfur um einkunnina voru taldar neikvæðar en voru áður stöðugar. Hinn 29. október rann út frestur til að skila inn óskuldbindandi verðtilboðum í 25% hlutafjár í Landssíma Íslands hf. Um var að ræða annan áfanga í einkavæðingu félagsins þar sem markmiðið er að finna kjölfestufjárfesti sem styrki fyrirtækið, auki verðmæti þess og efli íslenskan fjarskiptamarkað. Nóvember 2001 Hinn 8. nóvember tilkynnti Seðlabanki Íslands um 0,8 prósentustiga lækkun stýrivaxta. Lækkunin tók gildi þann 11. nóvember. Eftir lækkunina voru stýri- vextir Seðlabanka Íslands 10,1%. Hinn 10. nóvember var samþykkt á hluthafafundi Búnaðarbanka Íslands hf. tillaga bankaráðs um sam- runa Búnaðarbanka Íslands hf. og Lýsingar hf. Gert var ráð fyrir að Lýsing hf. yrði algerlega sameinuð bankanum með yfirtöku eigna og skulda. Desember 2001 Hinn 12. desember var tilkynnt að bankaráð Bún- aðarbanka Íslands hf. og stjórn Gildingar ehf. hefðu samþykkt samruna félagana með þeim hætti að Gild- ing yrði sameinuð Búnaðarbankanum. Hinn 15. desember var lágmarksfjárhæð greiðslu- fyrirmæla í stórgreiðslukerfi Seðlabanka Íslands lækkuð úr 100 m.kr. í 25 m.kr. Janúar 2002 Hinn 9. janúar var tilkynnt að Kaupþing hf. hefði undirritað viljayfirlýsingu um kaup á sænska verð- bréfafyrirtækinu Aragon Holding AB. Gert var ráð fyrir að kostgæfnisathugun lyki í janúar og að þá yrði endanlega gengið frá viðskiptunum. Hinn 11. janúar var Kaupþingi hf. veitt viðskipta- bankaleyfi. Þann 28. desember 2001 var samþykkt á hluthafafundi hjá Kaupþingi hf. að breyta samþykkt- um félagsins svo að unnt yrði að veita Kaupþingi viðskiptabankaleyfi. Meðal þess sem hluthafafund- urinn samþykkti var að bæta orðinu banki aftan við heiti félagsins. Nafn félagsins eftir breytingu er Kaupþing banki hf. og starfar það samkvæmt lögum um viðskiptabanka og sparisjóði. Hinn 20. janúar tóku gildi breytingar á starfrækslu- tíma stórgreiðslukerfis sem starfrækt er af Seðla- banka Íslands. Stórgreiðslukerfið verður starfrækt frá kl.8.45 til kl.18.00 og lágmarksupphæð greiðslu- fyrirmæla er 25 milljónir króna. Í fjáraukalögum 2001 sem samþykkt voru á Alþingi í desember fólst m.a. heimild til þess að ríkissjóður legði Seðlabanka Íslands til stofnfé að fjárhæð 9 ma.kr. á árinu 2001. Framlagið var greitt í lok ársins. Í fjárlögum 2002 sem einnig voru samþykkt í desem- ber fólst heimild til þess að greiða 4,5 ma.kr. stofn- fjárframlag til bankans á árinu 2002. Febrúar 2002 Hinn 11. febrúar var undirritaður samningur á milli Seðlabanka Íslands og Union Bank of Norway um lánsheimild að fjárhæð 200 milljónir Bandaríkjadala sem samsvaraði á þeim tíma tæplega 21 milljarði króna. Samningurinn er til fimm ára og felur í sér hagstæð kjör fyrir Seðlabankann. Samningurinn við Union Bank of Norway kemur til viðbótar sambæri- legum samningum um lánsheimildir við nokkrar aðrar fjármálastofnanir. Hinn 15. febrúar staðfesti alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch lánshæfiseinkunnina AA- fyrir ríkissjóð Annáll fjármálamarkaða Október 2001 – október 2002
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.