Peningamál - 01.08.2003, Blaðsíða 58
PENINGAMÁL 2003/3 57
Hinn 7. febrúar var tilkynnt að Kaupþing banki hf.
hefði fest kaup á fjármálafyrirtæki í London, BMY
Corporate Finance Limited, en nafni félagsins var
breytt í Kaupthing Limited. Félagið hefur leyfi
breska fjármálaeftirlitsins (FSA) til fyrirtækjaþjón-
ustu.
Hinn 10. febrúar tilkynnti Seðlabanki Íslands um 0,5
prósentna vaxtalækkun sem tók gildi 11. og 18.
febrúar. Eftir lækkunina voru stýrivextir bankans
5,3%.
Hinn 12. febrúar var tilkynnt að breska fjármálaeftir-
litið (FSA) hefði samþykkt breytingu á yfirráðum
Heritable Bank Limited sem stafaði af kaupum Sam-
son eignarhaldsfélags ehf. á 45,8% hlut í Landsbanka
Íslands hf. FSA staðfesti þar með kaup Samson eign-
arhaldsfélags ehf. á Landsbanka Íslands hf. að því
leyti sem snýr að starfsemi Landsbankans í Bret-
landi.
Hinn 25. febrúar lauk sölu ríkissjóðs á 2,5% hlutafjár
í Landsbanka Íslands. Eignarhlutur ríkissjóðs í
Landsbankanum er enginn eftir þessa sölu.
Hinn 28. febrúar tilkynnti Seðlabanki Íslands um
breytingu á bindiskyldu lánastofnana í Seðlabanka
Íslands. Hinn 21. mars verða bindihlutföll, þ.e. hlut-
föll innlánsbindingar lánastofnana, sem voru 1,5%
og 4%, lækkuð í 1% og 3%. Frá 1. apríl er svigrúm
lánastofnana til að nýta bundið fé til tryggingar fyrir
uppgjöri í greiðslukerfum takmarkað við helming
umsaminnar tryggingarfjárhæðar. Þessi takmörkun er
til þess ætluð að tryggja að lánastofnanir hafi svig-
rúm á bindireikningi til að mæta sveiflum í lausa-
fjárstöðu.
Mars 2003
Hinn 7. mars lauk sölu ríkissjóðs á 9,11% hlutafjár í
Búnaðarbanka Íslands hf. Eignarhlutur ríkissjóðs í
Búnaðarbankanum hf. er enginn eftir þessa sölu.
Hinn 18. mars staðfesti Fjármálaeftirlitið hæfi Eglu
hf., Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga hf.,
Samvinnulífeyrissjóðsins og Vátryggingafélags Ís-
lands hf. til að fara með virkan eignarhlut í Búnaðar-
banka Íslands hf.
Hinn 27. mars var tilkynnt að stjórn Kaupþings
banka hf. og bankaráð Búnaðarbanka Íslands hf.
hefðu ákveðið að hefja formlegar viðræður um sam-
vinnu eða sameiningu bankanna.
Hinn 31. mars staðfesti alþjóðlega matsfyrirtækið
Fitch Ratings lánshæfiseinkunnir Íslands, AA- fyrir
langtímaskuldbindingar í erlendri mynt, AAA fyrir
langtímaskuldbindingar í íslenskum krónum og F1+
fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt.
Horfunum á mati langtímaskuldbindinga var breytt
úr neikvæðum í stöðugar. Helstu ástæður fyrir breyt-
tu mati eru styrkur íslenska hagkerfisins og hröð
aðlögun þjóðarbúsins í átt til jafnvægis. Að mati
Fitch er erlend skuldastaða helsta hindrunin fyrir
bættu lánshæfismati.
Apríl 2003
Hinn 8. apríl tilkynnti alþjóðlega matsfyrirtækið
Moody’s Investors Service að lánshæfismat Íslands-
banka hf. hefði verið hækkað. Langtímaeinkunn
bankans var hækkuð úr A2 í A1, einkunn vegna víkj-
andi lána úr A3 í A2 og einkunn vegna fjárhagslegs
styrkleika úr C+ í B-. Einnig var skammtímaeink-
unnin P-1 staðfest.
Hinn 10. apríl tilkynnti alþjóðlega matsfyrirtækið
Moody’s Investors Service að skammtímaeinkunn
Búnaðarbanka Íslands hf. hefði verið hækkuð úr P-2
í P-1. Langtímaeinkunn bankans var staðfest og er
A3 og fjárhagslegur styrkleiki er C.
Hinn 10. apríl tilkynnti alþjóðlega matsfyrirtækið
Moody’s Investors Service hækkun á lánshæfiseink-
unn Landsbanka Íslands hf. til skamms tíma úr P-2 í
P-1. Jafnframt var staðfest lánshæfismatseinkunn A-
3 til langs tíma.
Hinn 14. apríl var tilkynnt að bankaráð Búnaðar-
banka Íslands hf. og stjórn Kaupþings banka hf.
hefðu samþykkt að leggja til við hluthafafundi bank-
anna að þeir yrðu sameinaðir. Fyrirhugað heiti hins
nýja sameinaða banka er Kaupþing Búnaðarbanki hf.
Hinn 28. apríl var tilkynnt að Búnaðarbanki Íslands
hf. hefði gengið frá samkomulagi um sölu á starfsemi
sinni í Lúxemborg. Kaupandinn er Landsbanki Ís-
lands hf. Samkomulagið er háð fyrirvara um að sam-
runi Búnaðarbanka Íslands hf. og Kaupþings banka
hf. verði að veruleika eigi síðar en 1. júní 2003.