Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2008, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008
Fréttir DV
SWDkOKV
■ Á rúmum sólarhring skrif-
uðu aðeins 39 undir netáskor-
un þar sem óskað er eftir því að
ríkissaksóknari lögsæki Magnús
Þór Hafsteinsson, varaformann
■ Frjálslynda
flokksins,
íyrir lögbrot.
Hann hefur
harðlega
gagnrýnt
komu pal-
estínslCTa
flóttamanna
tilAkraness
og segir á undirskriftasíðunni að
hann hafi gerst sekur um mis-
munun á grundvelli kynþáttar,
aukþess að brjóta fjölda annarra
hegningarlaga. Þegar blaðamað-
ur DV skoðaði söfnunina klukkan
hálf Qögur á miðvikudag höfðu
þrír skrifað undir. Klukkan fimm í
gær voru þeir orðnir samtals 42.
■ Vísir státar af því að hafa und-
ir höndum minnisblað Ólafs
F. Magnússonar borgarstjóra.
Á blaðinu er listi sem Ólaf-
ur lét taka
saman um
ferðakostn-
að borgar-
fulltrúa fr á
árinu 2005.
Þar ber hæst
að borg-
in, og þar
afleiðandi
skattgreiðendur, hafa greitt 3,3
milljónir fyrir Dag B. Eggerts-
son einan og sér. Inni í þeirri
upphæð eru fargjöld, dagpen-
ingar og annar ferðakostnaður,
en Ólafur ákvað að taka þetta
saman eftir að borgarfulltrúum
blöskraði launin sem stórvinur
hans, Jakob Frimann Magnús-
son, fær fyrir að gegna stöðu
framkvæmdastjóra miðborgar-
mála.
■ Gísli Marteinn Baldursson
kemur næstur á eftir Degi á
minnismiðanum góða, sem Vísi
hefur áskomast. Borgin hefur
greitt honum
2,4 milljónr
ir í ferða-
kostnað frá
árinu 2005.
Þessir tveir
skera sig
nokkuð úr.
Þegar hinn
endi listans
er skoðaður kemur í ljós að Ól-
afur F. Magnússon borgarstjóri
hefur ekki fengið krónu úr digr-
um ferðasjóðum borgarinnar.
Heimildir herma að Ólafur sé
flughræddur með endemum en
sá grunur fær nú byr undir báða
vængi. Hann er eini borgarfull-
trúinn af þeim fjörutíu, sem set-
ið hafa á síðustu þremur árum,
sem ekki hefur fengið greitt fyrir
ferðakostnað. Heildarkostnað-
ur við ferðir þeirra eru tæpar 27
milljónir.
■ Enn af ferðum ráðamanna
þjóðarinnar. Geir H. Haarde fór
við fimmta mann í júlí 2007 í
opinbera heimsókn til Kanada.
Kostnað-
urinn við
ferðina var
þrjár og
hálf millj-
ón króna.
Þetta er
meðal þess
sem kemur
fram í svari
forsætisráðherra við fyrirspurn
Álfheiðar Ingadóttur um ferða-
kostnað ráðherra. Heildar-
kostnaður við ferðir ráðherra og
föruneyta þeirra er um 95 millj-
ónir króna. Ferðir Ingibjargar
Sólrúnar utanríkisráðherra hafa
kostað mest allra ráðuneyta eða
samtals tæplega 22 milljónir
króna. Ferðir Jóhönnu Sigurð-
ardóttur, félags- og trygginga-
málaráðherra, hafa kostað
minnst, eða 1,9 milljónir.
Nenad Milos, 53 ára yfirþjálfari Sundfélags HafnarQaröar, SH, er grunaður um að hafa
átt í sambandi við 17 ára sundiðkanda undir hans stjórn. Nenad hefur verið vikið frá
störfum tímabundið en stjórn félagsins fundaði í gærkvöldi um ósæmilega hegðun þjálf-
arans. Sjálfur segir hann þá sem þekkja til þjálfunaraðferða hans vita betur og vonast til
að fá starf sitt aftur fljótlega. „Nei, þetta er ekki stormur í vatnsglasi,“ segir Kristbjörn
Óli Guðmundsson, formaður SH.
MEINTARÁSTIR ÞJÁLFARA
0G SUNDSTÚLKUNNAR
BENEDIKT BOAS HINRIKSSON
bladamadur skrifar: benni®d\t
Nenad Milos, 53 ára yfirþjálfari
Sundfélags Ilafnarfjarðar, SH, var í
tygjum við 17 ára sundstúlku hjá fé-
laginu samkvæmt heimildum DV.
Deilur loga nú hjá sundfélaginu
sökum þess að hluti stjórnarmanna
hafði hlotið vitneskju um ósæmilega
hegðun þjálfarans án þess að hafa
aðhafst frekar. Heimildir DV herma
að hið sama eigi við um bæjaryfir-
völd Hafnarfjarðar.
Sjálfur vildi Nenad þó lítið gera úr
málinu þegar DV hafði samband við
hann á þriðjudagskvöld. „Ég held að
þeir sem þekki mig viti um þjálfun-
araðferðir mínar og hvernig persóna
ég er. Ég hef fengið mikinn stuðning
sem ég tel mjög mikilvægt fyrir mig,"
sagði Milos.
Formaður Sundfélagsins, Krist-
björn Óli Guðmundsson, er þó síður
en svo á sama máli. Aðspurður hvort
þetta væri einn stór misskilningur
segir Kristbjörn: „Nei, þetta er ekki
stormur í vatns-
glasi. Þetta er
það ekiú, því
miður."
Yfirlýsingar
að vænta
SH fund-
aði í gær-
kvöidi um
mál
Vikið úr starfi Nenad
Milos liggur undir grun
um kynferðislega áreitni
og ástarsamband við
unga sundstúlku.
Nenads og stóð fundurinn fram eftir
kvöldi. Honum var ekki lokið þegar
DV fór í prentun. Staðan er ákaflega
eldfim og var enginn stjórnarmað-
ur tilbúinn að tjá sig um hana fyrr
en eftir fundinn. Kristbjörn Óli, for-
maður SH, sagði að yfirlýsing myndi
koma frá félaginu að loknum fundi.
Áður hefur verið kvartað und-
an óeðlilegri snertingu Nenads við
lærlinga sína hjá Sundfélagi Hafnar-
fjarðar. Sundsamband lslands hefur
fengið eitt slíkt mál á sitt borð eft-
ir að kvartanir bárust yfir honum.
Samþykkt var hins vegar að sund-
sambandið og foreldrar stúlkunn-
ar myndu ekki fara lengra með það
mál.
Lögreglan fer með rannsókn
málsins og samkvæmt upplýsingum
þaðan lítur málið þannig út að ekki
sé hægt að blása það af borðinu. Lög-
in eru skýr í þessum efnum. „Hver
sem með blekkingum, gjöfum eða á
annan hátt tælir ungmenni yngra en
18 ára til samræðis eða annarra kyn-
ferðismaka skal sæta fangelsi allt að
4 árum," segir í 202. grein um kynlíf
barna og unglinga.
Konan skellti á
Nenad Milos er 53 ára og er lög-
fræðingur að mennt frá Makedón-
íu. Hann flúði frá Júgóslavíu sálugu
til Simbabve og dvaldi þar í 10 ár
áður en hann kom hingað til lands
síðla árs 2004. Hann þykir frábær
sprettsundsþjálfari og hefur komið
Erni Arnarsyni aftur í fremstu röð í
heiminum.
Heimildir DV herma að fljótlega
eftir að Nenad kom til starfa hafi
farið að bera á kvörtunum til stjórn-
ar SH. Þeim kvörtunum var stungið
undir stól og hættu margir þjálfarar
og sundiðkendur á fyrsta ári Nen-
ads. Þá hefur DV heimildir fyrir því
að kvartað hafi verið undan honum
vegna framkomu hans í garð fatlaðs
sundgests.
Þegar DV hafði samband við
Nenad svaraði kona hans, Jasmina.
Var hún allt annað en hress með
að blaðamaður væri að reyna að
ná tali af þjálfaranum. „Nú, viltu
heyra hans hlið? Þá verður þú bara
að reyna að finna hann og það mun
ekki ganga vel. Ég hef ekkert meira
að segja, takk," sagði Jasmina og
skellti á.
Dökkt í sundheiminum Það
er dökkt ský yfir sundheimi
íslands þessa dagana.
Deilur loga nú hjá sundfé-
laginu sökum þess að hluti
stjórnarmanna hafði hlot-
ið vitneskju um ósæmilega
hegðun þjálfarans án þess
að hafa aðhafst frekar.
Heimildir DV herma að hið
sama eigi við um bæjaryfir-
völd Hafnarfjarðar.
ÍMEGA
Hringbrautarmorðinginn Þórarinn Gíslason er eðlilega gefinn og ósturlaður:
Sextán ára fangelsi fyrir morð
Þórarinn Gíslason var í gær
dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir
morðið á Borgþóri Gústafssyni. Þór-
arinn er sakfelldur fyrir að hafa lam-
ið Borgþór til bana með slökkvitæki í
íbúð þess síðarnefnda við Hringbraut
í Reykjavík um hádegisbil sunnu-
daginn 7. október í fyrra. Þórarinn
hefur neitað sök alveg frá því að lög-
regla færði hann af vettvangi morðs-
ins. Endanlegt banamein Borgþórs
var heilablæðing vegna höfuðkúpu-
brots. Hann lést á spítala að kvöldi
sama sunnudags.
I aðdraganda voðaverksins höfðu
mennirnir báðir verið við neyslu
áfengis og iyfja. Upptökur úr mynda-
vélum í anddyri hússins sýna hvar
mennirnir áttu í erjum. Þórarinn
Gíslason bjó í íbúð í sama húsi og
fórnarlambið Borgþór. 1 íbúð Þór-
arins fundust meðal annars föt með
dufti úr slökkvitæki auk þess sem
rafmagnsrofar í íbúð Þórarins voru
kámugir með blóði Borgþórs.
f vitnaleiðslum sagði Þórarinn
að hann hefði talið að magi Borg-
þórs hefði sprungið af því að hann
hefði drukkið spritt. Blóðið á fötum
sínum sagði Þórarinn til komið með
því að Borgþór hefði frussað því á
sig. Seinna í skýrslutökum fór minni
Þórarins að skýrast. Þórarinn var
viðstaddur alla aðalmeðferð máls-
ins fyrir dómi og hlýddi á vitnisburð.
í lok aðalmeðferðar var hann spurð-
ur hvort málið væri farið að rifjast
eitthvað upp fyrir honum. Þórarinn
kvað svo ekki vera og játaði aldrei
verknaðinn.
Þórarinn var úrskurðaður sak-
hæfur að lokinni geðrannsókn. Hann
er talinn eðlilega gefinn og ósturlað-
ur. Engin einkenni fundust um al-
varlegar persónuleikaraskanir eða
heilaskaða. Læknir metur það ör-
uggt að hann sé haldinn kvíðaröskun
og óyndi. Hann hafi enda verið í sí-
felldri áfengis- og fíkniefnaneyslu.
Héraðsdómari segir fullsann-
að að Þórarinn hafi framið morðið,
jafnvel þótt vandséð sé hvað hon-
um hafi gengið til. Hann eigi sér þó
engar málsbætur. Þórarinn þarf að
greiða aðstandendum Borgþórs ríf-
lega hálfa milljón í miskabætur auk
málskostnaðar.
sigtryggur&dv.is