Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2008, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 5. JÚN[ 2008
Fréttir DV
Án handfrjáls
búnaðar
Ólögleg farsímanotkun
ökumanna fer síst minnkandi.
Samkvæmt könnun sem VÍS lét
gera á milli klukkan íjögur og
sex síðdegis á mánudag óku 343
ökumenn suður um gatnamót
Reykjanesbrautar og Bústaða-
vegar og töluðu í síma án hand-
frjáls búnaðar. Þjóðarátak VÍS
gegn umferðarslysum hófst í gær
í sjöunda skipti, en sjö hafa látist
það sem af er ári í umferðarslys-
um. Ragnheiður Davíðsdóttir
forvarnafúUtrúi leggur sérstaka
áherslu á notkun handfrjáls bún-
aðar þegar ekið er.
Bæjarfulltrúi
víkurúrnefnd
Gunnar Helgason, formaður
skipulags- og byggingarnefnd-
ar sveitarfélagsins Voga, hefur
sagt af sér formennsku eftir að
hann reisti ólöglegt sumarhús
sem hann byggði í Breiðagerði
3 við Voga á Vatnsleysuströnd.
Hann reisti húsið án þess að hafa
stöðuleyfi til þess auk þess sem
eignarhald á landinu er óljóst
og því ekki leyfilegt að byggja
þar. f stað hans hefúr Olaavía
Jóhanna Ragnarsdóttir tekið við
formennsku. Meirihlutí E-listans
þakkaði honum samtarfið á síð-
asta bæjarráðsfundi.
Gróðursetja
300.000 plöntur
Samtökin Skjólskógar á
Vestflörðum koma tíl með að
gróðursetja um 300 þúsund
plöntur víðsvegar um fjórð-'
unginn í sumar, líkt og vefritið
bb.is greinir frá. Samtökin
stefna að því að gróðursetja
sem mest í júnímánuði svo
plönturnar fái tíma til að jafna
sig um sumarið. Frá því Skjól-
skógar tóku til starfa hafa þeir
gróðursett rúmlega eina millj-
ón skógarplanma. Ef svona
heldur áfram verða Vestfirðir
orðnir skógi vaxnir frá fjalli að
flöru fyrr en varir.
Dópiðfast
Fíkniefni sem fundust inn-
vortis í hollenskum karlmanni í
Leifsstöð um síðustu helgi, hafa
enn ekki skilað sér út úr líkama
hans. Maðurinn var úrskurðaður
í gæsluvarðhald eftír að röntgen-
myndir sýndu fram á að nokkurt
magn af kókaíni væri í pakkning-
um innvortís. Einungis þriðjung-
ur efnanna hafði skilað sér út úr
lfkama mannsins í gærkvöldi,
eftír því sem fréttavefúrinn Vísir
greindi frá.
Hilmar Pétursson varð valdur að láti tveggja skyldmenna sinna með ofsaakstri þegar
hann var 17 ára. Eftir áreksturinn hefur hann verið úthrópaður morðingi og glæpamað-
ur. Lögreglan á Suðurnesjum hefur til meðferðar likamsárásir á Hilmar sem tengdar
eru aðild hans að dauða mannanna tveggja.
UTSKUFAÐURI
HEIMABYGGÐ
Kallaður morðingi Tveir menn
létust í umferðarslysi (ágúst 2007 við
Garðskagaveg. Hilmar Pétursson vará
dögunum dæmdur fyrir að hafa
valdið dauða þeirra með ofsaakstri.
ERLA HLYNSDÓTTIR
bladomadur skrifar: erla@dv.is
Hilmar Pétursson hefur verið út-
hrópaður morðingi eftír að hann varð
valdur að látí tveggja manna í um-
ferðarslysi við Sandgerði í ágúst 2006.
Lögregluembættíð á Suðurnesjum
hefur tíl meðferðar líkamsárásir á
Hilmar sem áttu sér stað eftír slysið.
Hilmar var í síðustu viku dæmd-
ur til sex mánaða fangelsisvistar, þar
af fjóra mánuði skilorðsbundna, fyrir
hegningar- og umferðarlagabrot með
því að hafa ekið langt yfir leyfilegum
hámarkshraða og án aðgæslu yfir á
rangan vegarhelming. Hilmar lentí í
árekstri við aðra bifreið með þeim af-
leiðingum að bæði ökumaður henn-
ar og farþegi létust. Hilmar missti
einnig ökuréttíndin í tvö ár.
17 ára ökumaður
Mennirnir tveir sem létust voru
22 og 34 ára. Þeir voru báðir skyld-
menni Hilmars. Sjálfúr var hann 17
ára þegar slysið varð og var það met-
ið honum til refsilækkunar. Hilmar
hefur ekki fyrr komist í kast við lögin
og var það einnig til mildunar dóms-
ins hversu illa hann slasaðist sjálfur í
slysinu.
Vimi báru fyrir dómi að þau teldu
Hilmar hafa ekið á 120 til 180 kíló-
metra hraða. Sérfræðingur taldi að
ökuhraðinn hefði líklegast verið á
bilinu 114 tíl 139 kílómetrar. Bif-
reið Hilmars var einnig skoðuð og
er ástand hennar ekki talið eiga þátt
í slysinu.
Þunglyndur með heilaskaða
Fyrir dómi sagði Hilmar: „...að
hann hefði fengið að finna fyrir þessu
hjá ættíngjum sínum og hefði hann
meðal annars verið laminn og kall-
aður morðingi."
Þar kemur einnig fram að hann
hafi hlotíð gífurlega áverka í slysinu,
þar á meðal mikla heilaáverka sem
valda minnistruflunum. Hann man
því sjálfur ekkert eftír slysinu.
Eftír slysið hefur hann þjáðst af
kvíða, athyglisbrestí, skapofsaköst-
um og pirringi. I læknisvottorði seg-
ir að hann þjáist af skertri getu til að
sjá um sig sjálfur, að sinna vinnu, auk
þess sem hann er orðinn félagslega
einangraður.
Hann hefur fundið fyrir miklu
þunglyndi og gengið bæði til sálfræð-
ings og geðlæknis.
Úthrópaður morðingi
Halldór Helgi Backman, verjandi
Hilmars, segir hann hafa skaðast
„Hann hlaut gífurlega
áverka í slysinu, með-
al annars heUaáverka
sem valda minnistrufl-
unum."
mjög við slysið. „Hann hefur orðið
fyrir gífurlegu aðkastí og er úthróp-
aður morðingi og glæpamaður víða í
samfélaginu suður með sjó.
Vanlíðan hans er gríðarleg, eins
og gefur að skilja þegar manneskja
stendur ffammi fyrir því að vera þátt-
takandi í svona atburðarás," segir
HaUdór. Hann ítrekar að um slys hafi
verið að ræða sem Hilmar sjái mjög
eftír.
Heilaáverkar Hilmars gera að
verkum að hann man ekkert eft-
ir slysinu sjálfú og bar fyrir dómi að
hann myndi aðeins eftír því að hafa
farið í vinnuna á bifreið sinni og ver-
ið þar ffarn yfir miðjan dag. Næst hafi
hann munað eftír sér þegar hann
kom heim af sjúkrahúsinu.
Halldór gerir fasdega ráð fyrir að
dóminum verði áfrýjað tíl Hæstarétt-
ar en það sé í höndum Hilmars að
taka þá ákvörðun. Meðal þess sem
Halldór gagnrýnir er að refsingin sé
afar þung miðað við þá hæstaréttar-
dóma sem gengið hafa í viðlíka mál-
um.
Verkfærum fyrir hundruð þúsunda var stolið í Garðabæ:
MYNDIR VfKURFRÉTTIR/HILMAR BRAGI
Afslysstað Mikið lið lögreglu og
sjúkrabíla var kallað á vettvang slyssing.
Bíil Hilmars er rauðaToyota-bifreiðin.
Glæpafaraldur skekur iðnaðarmenn
„Tryggingafélagið áætíar að skað-
inn sé á milli tvö og þrjú hundruð
þúsund krónur," segir Ivar Þóris-
son rafvirki en öllum verkfærum var
stolið af byggingasvæðinu aðfaranótt
þriðjudags þar sem hann vinnur við
Furuás í Garðbæ. Þá var einnig brot-
ist inn á byggingarsvæði þar við hlið-
ina og leikurinn endurtekinn. Verk-
færaþjófnaður hefur aukist gífurlega
undanfarin tvö ár og er svo komið að
menn tala um faraldur.
ívar kærði málið tíl lögreglu en
segist vonlítíll um að endurheimta
verkfærin. „Mér var sagt að það væri
ákaflega ólíklegt að við myndum sjá
verkfærin aftur."
Aðspurður hvort hann hafi heyrt
útskýringar á því hvers vegna verk-
færaþjófnaður hefði færst svona
mikið í aukana hér á landi segist ívar
hafa heyrt því fleygt að erlendir ein-
staklingar tækju verkfærin óffjálsri
hendi og seldu þau svo í heima-
landinu. Sjálfur segist hann ekki hafa
neinn fót fyrir þeirri sögusögn en ját-
ar að verkfæraþjófnaður hafi plagað
iðnaðarmenn talsvert undanfarin ár.
„Það er djöfullegt að missa verk-
færin, það er allt stopp þessa stund-
ina. Maður þarf bara að fara í næstu
verslun og kaupa ný,“ segir Ivar um
afleiðingar þess að missa verkfærin.
Hann segir að öll verkfærin séu
merkt í bak og fyrir. Á þeim stendur
Ljósblik sem er fýrirtæld ívars. Ef ein-
hver verður var við þau eru viðkom-
andi beðnir um að hafa samband við
lögregluna. vaiur&dv.is
Iðnaðarmenn að störfum
Verkfærum fyrir um þrjú hundruð þúsund
krónum var stolið af byggingarsvæði í
Garðabæ. Mynd tengist ekki frétt.