Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2008, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 5. JÚNl 2008
Fréttir DV
Ónefnda
gatanlokuð
Á Húsavík er ein gata sem
heitir ekki neitt. Hún hefur aldrei
verið nefnd og aldrei verið köll-
uð neitt. Samt er þessi gata not-
uð á hverjum degi enda nálægt
höfninni. En nú er búið að loka
götunni sem heitir ekki neitt og
hefur aldrei verið nefnd. Var það
gert á fundi framkvæmda- og
þjónustunefndar Norðurþings
fýrir nokkru. Lagði formaðurinn
til að þeir fjármunir sem hefðu
átt að fara í að laga götuna sem
heitir ekki neitt og hefur aldrei
verið nefnd yrðu notaðir í eitt-
hvað annað. Tillagan var sam-
þykkt.
Harma drápið
„Samtök um náttúruvernd á
Norðurlandi harma ísbjarnar-
drápið í Skagafirði. Island er aðili
að fjölmörgum alþjóðasamþykkt-
um um dýravernd og líffræði-
legan fjölbreytileika og þessar
samþykktir leggja okkur skyldur
á herðar að drepa ekki dýr í út-
rýmingarhættu. Ef sú hætta staf-
ar af ísbjörnum, sem látið er af,
er það aftur á móti sinnuleysi af
stjórnvöldum að ekki skuli vera
til aðgerðaáætlun því að ísbirnir
koma til landsins öðru hverju.
Vonandi verður slík aðgerðaáætl-
un gerð í kjölfar þessa atburðar
og fagna ber þeirri yfirlýsingu
umhverfisráðherra að farið verði
rækilega yfir atburðarásina," segir
í tilkynningu.
í samstarf
með Svíum
Guðlaugur Þór Þórðarson
heilbrigðisráðherra og sænskur
starfsbóðir hans, Göran Hágg-
lund, hafa undirritað viljayfir-
lýsingu um aukið samstarf land-
anna í lyfjamálum. Samstarfið
var fastsett á fundi heilbrigðis-
ráðherra Norðurlandanna sem
haldinn var á Gotlandi í viku-
byrjun. Guðlaugur Þór hefur
lagt áherslu á að opna norræna
lyfjamarkaðinn með því að auka
samkeppni. Sérstök áhersla verð-
ur lögð á samstarf við Svfa við
verðmyndum lyfja og endur-
greiðslu vegna lyfjanotkunar.
MIKILVÆG LOF
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur nú setið sem utanríkisráðherra í rúmt ár. Á þeim J
tíma hefur henni ekki tekist að uppfylla mikilvægustu stefnumál Samfylkingarinn-
ar í utanríkismálum.
HAFSTEINN GUNNAR HAUKSSON
JRF
bladamadur skrifor: hafsteinng&dv.is kltf
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir settist
í ráðherrastól í utanríkisráðuneyt-
inu fyrir rúmu ári. Það væri synd að
kalla loforðalista Samfylkingarinn-
ar í utanríkismálum fýrir síðustu
kosningar langan, en það hefur
engu að síður reynst Ingibjörgu erf-
itt að framfylgja veigamestu stefnu-
málum flokksins.
Enn á lista hinna vígfúsu
þjóða
Til dæmis lagði flokkurinn mik-
ið upp úr því að ísland yrði tekið af
Iista hinna vígfusu þjóða og pól-
itískur stuðningur við innrásina í
Irak yrði formlega dreginn til baka.
Aðstoðarmaður Ingibjargar, Krist-
rún Heimisdóttir, segir það þegar
hafa verið gert, meðal annars með
því að kalla heim íslenskan friðar-
gæsluliða frá frak. Ingibjörg hef-
ur siálf sagt að hún hafi tekið eftir
að Island væri ekki lengur á lista
Bandaríkjanna yfir hinar staðföstu
þjóðir. Samkvæmt upplýsingum frá
bandarískum yfirvöldum hafa eng-
ar breytingar verið gerðar á listan-
um síðan hann var gefin út 2003 og
situr ísland þar sem fastast.
í öðrum málum hefur Ingibjörg
beinlínis gengið gegn þeim stefnu-
málum sem flokkurinn lagði upp
með. I landsfundarályktun Sam-
fylkingarinnar frá 2007 kemur
meðal annars skýrt fram að Sam-
fylkingin sé fýlgjandi því að ísland
sé þátttakandi í borgaralegri friðar-
gæslu á alþjóðavísu. Þrátt fýrir það
var meðal fyrstu verka Ingibjargar
er hún tók við ráðherrastóli að kalla
heim íslenskan friðargæsluliða sem
var að störfum í írak, en hann kom
til landsins í október síðastliðnum.
að standast.
Evrópustefna Samfylkingarinn-
ar er skorinorð og leggur mest upp
úr því að fsland sæki um aðild að
Evrópusambandinu og hefji í kjöl-
farið aðildarviðræður. Enn hefur
engin hreyfing komist á það mál og
ljóst að Samfýlkingin þarf að lyfta
grettistaki til að svo verði, allavega
ef mið er tekið af afstöðu flokksfor-
ystu sjálfstæðismanna í ríkisstjórn
til Evrópusambandsins.
Þarf að auka þróunaraðstoð
um 180 prósent
Markmið Samfylkingarinnar
er að verja 0,7 prósentum vergrar
þjóðarframleiðslu til þróunarsam-
vinnu á næsta áratug. Árið 2007 var
framlag þjóðarbúsins til þróunar-
samvinnu um 3.092 milljarðar, eða
0,25 prósent þjóðarframleiðslu.
Það er því ljóst að framlagið þarf
að aukast um 180 prósent árlega ef
markmið Samfylldngarinnar eiga
Á hrós skilið fyrir fríverslunar-
samninga
Samfylkingin stefndi að því fyr-
ir kosningar að ráðningar starfs-
manna í utanríkisþjónustuna yrðu
á faglegum forsendum. Það ráku
því margir upp stór augu þegar
sjálfstæðismaðurinn Sigríður Anna
Þórðardóttir var ráðin sendiherra í
marsmánuði. Vildi Ingibjörg meina
að nauðsynlegt væri að leita út fyr-
ir utanríkisþjónustuna til að fjölga
kvenfólki í stétt sendiherra og þver-
tók fyrir að ráðningin væri pólitísk-
ur bitlingur.
Aukið ffelsi í milliríkjaviðskipt-
um og opnari markaði var einnig að
finna á stefnuyfirlýsingu flokksins
fyrir kosningar. Það er
Ingibjörgu Sólrúnu
til hróss hversu
vasklega hún hef-
ur gengið fram í
þeim málaflokki,
en hún hefur til
dæmis tekið þátt
ígerðfríverslun-
arsamnings við
Kanada ásamt
hinum EFTA-
ríkjunum síð-
an hún tók við
embætti.
Að auki lof-
aði Samfylking-
in að endurskoða
viðauka við varnar-
samning fslands og
Bandaríkjanna. Sagði
Kristrún Heimisdótt-
ir að endurskoðun
viðaukanna stæði
fyrir dyrum og það
hefði verið kynnt á
blaðamannafundi
eftir fund Condol-
eezzu Rice og Ingibjargar
Sólrúnar.
Þorleifur Gunnlaugsson bíöur enn eftir rökstuðningi vegna útboðs:
Engin svör um spillingu
„Mér hafa engin svör borist enn-
þá. Það eru tvær vikur síðan ég ósk-
aði eftir því að innri endurskoðun
skoðaði þetta mál," segir Þorleif-
ur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi
vinstri grænna í samtali við blaða-
mann DV.
fórunn Frímannsdóttir, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og
formaður velferðarráðs Reykja-
víkurborgar, hefur verið sökuð um
spillingu eftir að borgin kaus að
sniðganga lægsta tilboð í rekstur
félagslegs úrræðis fyrir vímuefna-
sjúklinga. Það var gert þrátt fýr-
ir að öll þjónustufyrirtækin sem
buðu í reksturinn væru talin hæf
og þannig fullnægja skilyrðum út-
boðsins. Jórunn hefur neitað því
staðfastlega að nokkuð sé athuga-
vert við málið. Þorleifur segir ekki
hægt að draga til eilífðar að svara.
Hann muni fá svör. „Venjulega er
vika gefin til að svara svona mál-
um. Það er hins vegar hægt að biðja
um frest en ég veit ekki til þess að
það hafi verið gert," segir Þorleifur.
Möguleiki er á að leggja fram kæru
ef engin svör berast að þremur vik-
um liðnum. „Þeir eru væntanlega
að bíða eftir rökstuðningi velferð-
arráðs," segir hann.
Fjórir tilboðsgjafar sendu borg-
inni tilboð í reksturinn. Það voru
Ekron, Heilsuverndarstöðin, Sam-
hjálp og SÁÁ. Lægsta tilboðið kom
frá SÁÁ sem áætlaði að reka heim-
ilið fýrir rúmar þrjátíu milljónir
króna á ársgrundvelli. Næsta tilboð
í röðinni var frá Heilsuverndar-
stöðinni sem gerir ráð fyrir að reka
heimilið fyrir rúmar 40 milljónir
á ári. Árlegur mismunur á kostn-
aði borgarinnar er því tæpur tug-
ur milljóna en engu að síður ákvað
velferðarráð að ganga til samninga
við Heilsuverndarstöðina.
Jórunn tengist Heilsuverndar-
stöðinni með þeim hætti að fyrir-
tækið keypti af henni upplýsinga-
og fræðsluvefinn doktor.is fyrir á
annan tug milljóna árið 2006. Það
vakti því grunsemdir margra að
Jórunn hefði sniðgengið SÁÁ, sem
bauð lægst, en á sama tíma hefði
verið gengið að tilboði Heilsuvernd-
arstöðvarinnar, þrátt fyrir að það
tilboð hefði verið töluvert hærra.
baldur@dv.is
Þorleifur Gunnlaugsson
Hefur engin svör fengið enn.