Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2008, Page 13
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008
13
BarackObama
Þótti ekki líklegurtil afreka í
upphafi forkosninga.
?■ 'œ&jtýœ&æ.: mmKmaammmKseæsMmmm,
Ráðstefna Matvæla- og landbúnaðarstofnunar
Matseðillinn í ár er mun íburðarminni en 2002.
,r|
Kýla vömbina og ræða hungur heims:
Matseðillinn skorinn niður
einræðisherra.
Þjóðarleiðtogum er eflaust í fersku
minni sú gagnrýni sem þeir sættu fyr-
ir sex árum og má leiða líkur að því
að matseðill opnunarhádegisverð-
arins nú byggist að einhverju leyti á
þeirri minningu. Matseðillinn nú er
mun einfaldari og íburðarminni en
árið 2002 og í stað humars, gæsalifrar
og úrvals bestu fáanlegra vína var nú
boðið upp á smjördeigsöskjur fyllt-
ar með mozzareÚa og maískorni og
pastarétt með rækjum. „Það lítur ekki
vel út ef leiðtogar sem ræða hungur á
heimsvísu sjást neyta matar í óhófi,"
sagði einn embættismaður Matvæla-
og landbúnaðarstofnunar Samein-
uðu þjóðanna. Hann bætti við að þeir
hefðu ekki gefið nægan gaum að mat-
seðlinum árið 2002 og hefðu þá verið
sakaðir um hræsni, sem að hans mati
varþó óverðskuldað.
Þjóðarleiðtogar á ráðstefnu Mat-
væla- og landbúnaðarstofnunar Sam-
einuðu þjóðanna í Róm árið 2002
voru harðlega gagnrýndir á þeim tíma
fyrir matseðilinn sem boðið var upp á
fyrsta dag ráðstefnunnar. Þótti mörg-
um skjóta skökku við að á ráðstefnu
sem hafði það markmið að fækka, á
þrettán árum, um helming þeim sem
sultu í heiminum, skyldu þjóðarleið-
togar úða í sig humri og gæsalifur,
sem síðan var skolað niður með fín-
ustu vínum.
Af ríkustu þjóðum heims sendu
einungis Spánn og gestgjafarnir, It-
alía, æðstu ráðamenn þjóða sinna
sem fulltrúa á ráðstefnima. Annað var
uppi á teningnum hjá þróunarlönd-
unum og á meðal þeirra sem mættu
voru Robert Mugabe, forseti Simb-
abve, og Mbeki, forseti Suður-Afríku,
auk tylfta forseta, forsætisráðherra og
Löng leið fram undan
Baracks Obama bíður án efa
erfitt verkefni og ljóst að aðeins
hálfur sigur er unninn. Sjálfur fer
hann ekki í grafgötur með þá full-
vissu sína. „Hvernig sem kosning-
arnar fara, þá mun stefna þessar-
ar þjóðar breytast stórkostlega,"
sagði Barack Obama.
Fram undan er slagur Obama
og Johns McCain og undanfarnar
vikur hafa þeir gefið vísbendingar
um þau málefni sem sett verða á
oddinn auk þess sem þeir senda
nett skot hvor á annan. McCain er
ómyrkur í máli og segir að Obama
búi engan veginn yfir nægri
reynslu til að takast á hendur starf
forseta Bandaríkjanna og Obama
svarar í sömu mynt og segir að
McCain muni aðeins bæta fjór-
um árum við misheppnaða stefnu
Georges W. Bush, forseta Banda-
ríkjanna.
Indversk hjón skildu fyrir tíu árum:
Fráskilin en vissu það ekki
Indversk hjón sem gengu í það
heilaga fyrir meira tuttugu og fimm
árum rak í rogastans um daginn er
þau komust að því að þau höfðu
skilið samkvæmt lögum fýrir tíu
árum en höfðu ekki hugmynd um
það. Hjónin, Meena og Virender
Verma, eru á fimmtugsaldri og eiga
tvö böm á táningsaldri og eðli máls-
ins samkvæmt vom tíðindin vem-
legt áfall fyrir alla fjölskylduna.
Tilviljun ein varð þess valdandi
að hjónin, sem búa í bænum His-
ar í Haryana-fýlki á Indlandi, kom-
ust að skilnaði sínum. Meena hafði
snúið sér til yfirvalda til að kvarta
yfir ofbeldishneigð mágs síns. í við-
tali við blaðamann BBC fullyrtu þau
að þau hefðu aldrei sótt um skilnað
og vom þess fullviss að nágrannar
og ættingjar myndu styðja frásögn
þeirra. „Ég veit ekki af hvetju mér
var gert þetta. Við sóttum aldrei
um skilnað nokkurs staðar," sagði
Meena.
Embættismaður hjá rfldsstofnun
sem fer með velferðarmál kvenna í
héraðinu sagði að hann hefði ekki
fundið neina sönnun fyrir skiln-
aði hjónanna. Allir sem talað var
við komu af fjöllum og neituðu að
hafa nokkra vitneskju um skiln-
að Meenu og Virenders. Virender
Frá giftingu á Indlandi Hjónin bjuggu
saman í þeirri fullvissu aö þau væru gift.
taldi ekki útilokað að Surinder, eldri
bróðir hans, stæði að baki þessu
öllu. Bróðirinn er lögfræðingur og
Virender gmnar að hann hafi soð-
ið upp þessa sögu þegar þau hjónin
lögðu fram kvörtun vegna ofbeldis
af hans hálfu fyrir tíu ámm.
Times of India vitnaði í Surind-
er sem sagðist alsaklaus af nokkurri
aðild að málinu. Surinder og nokkr-
ir aðrir lögfræðingar standa frammi
fýrir ákæm vegna málsins. Meena
og Virender Verma vonast til að þau
fái uppreisn æm fýrir tilstilli dóm-
stóla.
Clinton-fjölskyldan Um tíma velti
Obama fyrir sér hvort hann keppti
við Bill Clinton um útnefninguna.
Ber bossi og brotin rúða
Hollendingur einn í Utrecht fór
heldur flatt á því þegar hann ásamt
tveimur vinum ákvað að hlaupa nið-
ur götu bæjarins með bossann ber-
an. Þar sem þeir hlupu framhjá veit-
ingastað fékk hann þá bráðsnjöllu
hugmynd að þrýsta rasskinnunum
upp að glugga veitingastaðarins. Það
hefði hann betur látið ógert því rúð-
an brotnaði með þeim afleiðingum
að hann skarst svo illa á rassinum að
hann þurfti að komast undir lækn-
ishendur. Eigandi veitingastaðarins
dró kæm sína til baka eftir að hinn
rasssári maður hafði greitt skaða-
bætur. Vinimir þrír vom áminntir
um að hysja upp um sig buxurnar og
forðast verslunarglugga.
Fritzl fær fjölda bréfa
Ef eitthvað er að marka frétt í breska
slúðurblaðinu Daily Star hefur
hundmðum bréfa rignt yfir „ausmr-
ríska skrímslið" Jósef Fritzl. Fritzl er
fyrirlitnasti maður í Austurríki um
þessar mundir eftir að upp komst
um athæfi hans gagnvart Elísabetu
dóttur hans. I ffétt Daily Star segir
að Fritzl berist fjöldi bréfa sem ekki
eru öll skrifuð í haturstóni. Mörg
þeirra innihalda stuðningsyfirlýs-
ingar til handa Fritzl.
Frétt Daily Star er í mótsögn við um-
mæli fangelsisstjórans Gunthers
Mörwald í austurrísku héraðsblaði,
sem segir að Fritzl hafi í mesta
lagi fengið um tuttugu bréf og flest
þeirra hafi innihaldið hótanir.
Kínverjar kynna reglumar
Á vefsíðu kínversku ólympíunefhd-
arinnar er að finna ýmsan fróðleik
sem vert er að kynna sér hyggist
maður heimsækja Kína á ólympíu-
leikunum. Þeim sem gmnaðir em
um aðild að hryðjuverkum, undir-
róðursmenn og fólk með kynsjúk-
dóma verður ekki hleypt inn í landið.
Þeim sem gista annars staðar en á
hóteli ber að skrá sig hjá lögreglu
innan sólarhrings ff á komu til lands-
ins. Gestum er óheimilt að sýna
slagorð af pólitískum og trúarlegum
toga og fleira. Fyrri gestgjafar ólymp-
íuleikanna hafa gjarna sett sérstak-
ar reglur, en það er mat margra að
Kínverjar hafi gengið lengra í þeim
efnum en áður hefur þekkst.
MORÐINÍ
BETLEHEM
„Matt Rees tekur fyrir flókin heit
menningarárekstra og tortyggi
og setur hann í samhengi.
„Stórkostleg frumraun.
„Spennusaga eins og þær geras
bestar. Einstök bók sem er bæf
spennandi og hreyfir vi
lesandanum á sama tíma.
HÚSEIGENDUR -
HÚSBYGGJENDUR
Við getum bætt við okkur verkefnum.
Bjóðum upp á alhliða þjónustu í byggingariðnaði nýsmíði
og viðhaldsverkefni. Má þar nefna uppslátt, uppsteypu
húsa og annara mannvirkja, endurnýjun þaka, viðgerðir
utanhúss og klæðningar, endurnýjun glugga og hurða,
smíði innveggja, uppsetning lofta, smíði sólpalla og fl.
Gerum föst verðtilboð.
Áratuga reynsla meistara og fagmanna.
Sími: Gunnar Þór 891 6591 og 891 6590
Fyrirspurnir má einnig senda á
netfangið alhlida@yahoo.com
Minnistöflur
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
d
BETUSAN
Klettháls: Opið
virka daga kl.8-18,
laugardaga 9-16
Suðurnes: Opið
virka daga kl.8-18,
laugardaga 9-14
itthálsi 7 Rvk - Fuglavík 18 Reykjanesbæ
i/ 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
FOSFOSER
MEMORY
Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
MÚRBÚÐIN
- Afslátt eða gott verð?