Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2008, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR5.JÚNI 2008 19
DV Sport
X
IAQUINTA A LEIÐTIL ROMA? ítalski landsliðsmað-
urinn Vincenco laquinta er á leið f samningaviðræð-
ur við Roma eftir að Juventus veitti leyfi fyrir þvi á
fundi í vikunni. laquinta er 28 ára og lék áður með
Udinese. Hann þótti leika vel á liðinni leiktíð en var
hins vegar argur yfir eilífri bekkjarsetu á eftir David
Trezeguet og Alessandro Del Piero sem fylltu upp í
framherjastöðurnar. Luciano Spalletti þjálfari Roma
er mikill aðdáandi ftalans sterka og er hann talinn
veita liðinu aukna möguleika í leikstíl sínum.
SAGNA SEMUR Bacary Sagna leikmaður Arsenal er búinn að skrifa undir nýjan samning
við félagið. Sagna mun vera áfram hjá félaginu til 2014 og er samningurinn því til rúmra
fimm ára. Sagna stóð sig mjög vel með Arsenal í vetur og var hann meðal annars valinn í
úrvalslið ensku úrvalsdeildarinnar í stöku fjölmiðlum.„Ég elska Arsenal, þetta er frábært
félag. Stjórinn er afbragð og næsta vetur munum viö berjast um alla titlanasegir Sagna á
opinberum vef félagsins. Sagna er af senegölskum uppruna og er 25 ára gamall. Hann hef-
ur alla tíð alið manninn í Frakklandi og skýrir það ánægju Wengers með kappann.
LESTUNUNA SPORTIÐA DV.IS!
* UelduPihnbanesa FylltuTbanfisann. Taktusjcrnunajlófajn KlædducanEsannÞinnGefðuTJanasanui
* ‘ * oe oskaðu Þér . pinum nafn •
«*'.*%*«*»* ★ *•*♦**• i
Aðeins í Dóíakassanum, Akureyri
^ í iJffefki'öiT.i (iin ;i((i' (niiíi
Kaupvangsstræti 4 - Sími 462 7755
MOLARi
ÍRIS ANNA SLÓ ÍSLANDSMET
(rist Anna Skúladóttir úr Fjölni
bætti í fýrradag íslandsmet (3000
metra hindrunarhlaupi. Hún hljóp á
11:14,73 mín og bætti þar með met
Guðrúnar Báru Skúladóttur úrHSK
um tæpar níu sekúndur en hún setti
það met ÍTallinn árið 2002. (ris er
aðeins 19 ára og á framtíðina fyrir sér
á hlaupabrautinni. Metið setti hún á
vormóti Fjölnis sem fram fórá Laug-
ardalsvelli. Keppnisgreinin er meðal
þeirra sem keppt verður í á Evrópu-
bikarkeppni landsliða i Tallinn seinna
f þessum mánuði.
ÓLÖF MARlA SVEIFLAR KYLFUM
Ölöf María Jónsdóttir, atvinnukylf-
ingur úr GK, verður meðal keppenda
á ABN AMrO Ladies Open sem hefst
í Eindhoven í Hollandi á föstudag.
Það sem afer
ári hefur hún
einungiseinu
sinni komist í
gegnum nið-
urskurð á móti
en það var á
Opna skoska
mótinu þar
sem hún hafn-
aði í 57. sæti.
70 efstu keppendurnir munu spila
alla þrjá hringina en eftirtvo keppn-
isdaga og 36 holur fer niðurskurður
fram. Ólöf hefur það sem af er keppn-
istímabilinu kepptáfjórum mótum.
Auk Skotlands er það í Sviss þar sem
hún endaði í sæti 116 og í Þýskalandi
þarsem hún hafhaði f 126.sæti.
sigurinn. Við horfðum á leik Leikn-
is og Augnabliks sem leikur með
okkur í deild kvöldið fyrir leikinn.
Þar lentu Augnabliksmenn í mikl-
um vandræðum og töpuðu stórt þar
sem þeir sóttu heldur mikið. Við
lærðum mikið af því og pökkuðum
í vöm frá fyrstu mínútusegir Elvar.
„Þeir tjölduðu svo til inni í víta-
teig hjá okkur í síðari hálfleik. í
sömu sókninni náðum við að bjarga
tvisvar á línunni aukþess sem mark-
vörðurinn kastaði sér á boltann og
gómaði hann á síðustu stundu. A
þeim tímapunkti hugsaði ég með
mér: Okkur er ætlað að vinna þenn-
an leik," segir Elvar Geir Magnús-
son, forseti KB.
Fengu draumamótherjann
í gær var dregið í 32 liða úrslit í
VISA-bikarkeppninni og mótherji
KB verður stórlið KR úr Vesturbæn-
um og Elvar varð kampakátur við
þær fféttir. „Þetta er það sem bikar-
keppnin snýst um. Við emm him-
inlifandi og óhætt að segja að við
fögnum þessum drætti. Menn eru
þegar farnir að tala um að fresta ut-
anlandsferð til að geta tekið þátt í
leiknum," segir Elvar Geir Magnús-
son að lokum.
M í BREIÐH0LTI