Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2008, Page 52
52 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚN( 2008
Fákus DV
r
EIVOR OG RAGGAIREYKHOLTI
EIVÖR PÁLSDÓTTIR og RAGNHILDUR GlSLADÓTTIR flytja eigin tónlist í bland við þjóðlegt
efni IREYKHOLTSKIRKJU í kvöld. PÉTUR GRÉTARSSON og KJARTAN VALDEMARSSON koma
fram með þeim stöllum. Á fimmtudaginn ætlar kvartettinn svo að troða upp í
SALNUM í Kópavogi. Hvorirtveggja tónleikarnir hefjast kl. 20.
Matt Rees rithofundur
„Alla rithöfunda dreymir um
viðurkenningu. En ég lærði
sem blaðamaður að þú verður
að njóta vinnunnar við skrifin,
en ekki hróssins frá ritstjórun-
um eða verðlaunanefndum."
Handritin
berast
Handrit hafa byrjað að berast und-
anfarnar vikur í bókmenntasam-
keppnina Leitin að nýjum Dan
Brown sem Bjartur stendur fyrir.
Bókaforlagið auglýsti eftir hand-
ritum síðasta haust, í tengslum við
að Brown var haldinn ritteppu, og
rennur skilafresturinn út eftir þrjár
vikur, eða 1. júlí. Til að létta fólki
biðina eftir nýrri bók frá metsölu-
höfundinum heimsfræga var ákveð-
ið að hleypa keppninni af stokk-
unum. Verðlaunin eru ekki af verri
endanum, ein milljón króna, sem
eru hæstu peningaverðlaun fyrir ís-
lenska skáldsögu sem veitt hafa ver-
ið. Útgáfuréttur verðlaunahandrits-
ins hefur líka þegar verið seldur fyrir
tíu þúsund evrur til forlags Brown
í Þýskaland. Dómnefnd tilkynn-
ir vinningshafann þann 1. október
næstkomandi, sama dag og verð-
launabókin kemur út.
NÆR SANN
LEIKANUM
Til styrktar
leikritun
Stofnaður hefur verið nýr sjóður,
Prologus, með það að markmiði að
hlúa að leikritun á Islandi og efla
höfundastarf við Þjóðleikhúsið.
Sjóðurinn er stofnaður af Bjarna
Armannssyni og Helgu Sverrisdótt-
ur í samvinnu við Þjóðleikhúsið.
Stofnframlag sjóðsins er sextán
milljónir króna en sjóðurinn mun
starfa frá árinu 2008 til ársins 2010.
Sjóðstjóm er skipuð Tinnu Gunn-
laugsdóttur þjóðleikhússtjóra,
Bjarna Ármannssyni og Vigdísi
Finnbogadóttur. I fagráði sjóðsins
sitja Sveinn Einarsson leikhúsfræð-
ingur og Melkorka Tekla Ólafsdótt-
ir, leiklistarráðunautur Þjóðleik-
^hússins, ásamtþjóðleikhússtjóra.^
Kvöldgöngur
í Kvosinni
Kvöldgöngur úr Kvosinni eru hafn-
ar þetta sumarið en þær hafa verið
vinsælar meðal borgarbúa undan-
farin þrjú sumur. Göngurnar fara
fram öll fimmtudagskvöld og var sú
fyrsta farin síðastliðinn fimmtudag
á vegum Minjasafns Reykjavíkur. Á
morgun er röðin komin að Lista-
safni Reykjavíkur. Það er Hafþór
Yngvason safnstjóri sem mun leiða
gönguna þar sem hann mun ræða
gildi myndlistar í borgarlandslaginu.
Gangan hefst við Hafnarhús kl. 20
og lýkur á sama stað rúmri klukku-
stundu síðar. Þátttaka er ókeypis.
„Ég varð þreyttur á takmörkum
blaðamennskunnar. Því meira sem
ég komst að um Palestínumenn, því
minna gat ég sagt frá sem blaða-
maður. Fyrst og fremst langaði mig
þó að skyggnast inn í huga Palest-
ínumanna, og það er nokkuð sem
verður að gera í skáldsögu," segir
Matt Rees, fýrrverandi blaðamað-
ur og höfundur spennusögunn-
ar Morðin í Betlehem sem nýverið
kom út hjá Skugga forlagi. Bókin,
sem kom út á ensku fýrir rúmu ári,
er sú fyrsta sem Rees sendir frá
sér og var á dögunum tilnefnd til
glæpasagnaverðlaunanna New
Blood-rýtingsins. Önnur bókin, A
Grave in Gaza, kom út fyrr á þessu
ári og sú þriðja er svo væntanleg á
næsta ári. Allar segja þær frá svað-
ilförum Omars Yussef, sögukennara
í Betlehem, sem fer að sinna rann-
sóknarlögreglustörfum.
Söguhetjan byggð á raunveru-
legum mannl
Áður en Rees, sem er frá Wal-
es, sneri sér að skáldsagnaskrifun-
um fjallaði hann um Mið-Austur-
lönd í starfi sínu sem blaðamaður
í meira en áratug, meðal annars
sem forstjóri útibús Time í Jerúsal-
em. Og hann segir persónu Yussefs
byggða á kennara sem hann kynnt-
ist í flóttamannabúðum í Betlehem.
„Ég dáðist að þessum manni vegna
þess að hann hélt áfram að vera
heiðvirður og heiðarlegur mað-
ur, þótt flestir í kringum hann yrðu
hallir undir ofbeldi og blóðsúthell-
ingar," segir Rees. „Og jafnvel þegar
það var frekar hættulegt að vera á
móti ofbeldi stóð hann uppi í hár-
inu á vopnuðum mönnum."
Ekki hræddur við skotárás
lengur
Rees segist vera mun afslappaðri
eftir að hann setti blaðamanna-
pennann á hilluna og fór í staðinn
að takast á við skáldskapinn. „Það
er frábært að geta lagst í rúmið á
kvöldin án þess að hafa áhyggjur af
því hvort einhver eigi eftir að skjóta
á mig í vinnunni daginn eftir." Rees
segir þó mest um vert að vera nú
að upplifa draum sinn um að starfa
sem rithöfundur.
„Mig hefur langað til þess að
minnsta kosti frá því ég var sjö
ára. Ég varð blaðamaður því það
var góð leið til að fá laun fyrir að
skrifa. Seinna komst ég að því að í
blaðamannastarfinu færðu tæki-
færi til að heimsækja athyglisverða
staði og hitta hið ótrúlegasta fólk.
En núna fæ ég ánægju út úr því að
heimsækja palestínska bæi til að
rannsaka eitthvað fyrir bækurnar,
án þess að hafa áhyggjur af „ded-
lænum". Aðalástæðan fýrir því að ég
sneri mér að skáldskapnum er þó
sú að hann færir mann nær sann-
leikanum um Palestínumenn held-
ur en blaðamennska getur nokkurn
tímann gert."
Gott fyrir hjónabandið
Rees hefur verið líkt við Gra-
ham Greene, Dashiell Hammett og
Henning Mankell svo einhverjir séu
nefndir. Honum leiðist ekki sá sam-
anburður þar sem þessir þrír eru á
meðal uppáhaldsrithöfunda Rees.
Tilnefningin til New Blood-rýt-
ingsins varð heldur ekki til þess að
draga úr sjálfstrausti Rees á ritvell-
inum, þótt hann virðist taka henni
af allnokkurri hógværð.
„Alla rithöfunda dreymir um
viðurkenningu. En ég lærði sem
blaðamaður að þú verður að njóta
vinnunnar við skrifin, en ekki hróss-
ins frá ritstjórunum eða verðlauna-
nefndum. Það er það sama hjá rit-
höfundum. Rithöfundur verður að
dveljast einn mánuðum saman til
að halda einbeitingu. Þetta ferli er
hreinn unaður fýrir mig, þannig að
ég myndi gera þetta þótt ég fengi
engar verðlaunatilnefiiingar. Kon-
an mín segir að þegar ég er ekki að
skrifa sé ég ekki mjög viðkunnan-
legur, þannig að það er ljóst að skrif
gera mér mjög gott, bæði tilfinn-
ingalega og vitsmunalega. Og þau
gera hjónabandi mínu raunar líka
gott."
KAY SCARPETTTA LEYSIR MALIÐ
Ellefu ára stúlka, Emily Steiner,
finnst myrt á víðavangi skammt frá
Black Mountain, heimabæ sínum í
Norður-Karólínu. Bærinn er lítill og
sjalfdgæft að lögregla þar þurfi að
glíma við morðmál, sem í þokkabót
ber merki kynferðislegrar misnotk-
unar. Réttarmeinafræðingurinn
Kay Scarpetta mætir á svæðið því
hana grunar að ódæðismaðurinn
að baki morðinu sé illræmdur kyn-
ferðisglæpamaður sem hún hefur
elst við í þó nokkurn tíma. En ekki
er allt sem sýnist og lengi vel ráf-
ar Scarpetta um á rangri slóð. Hún
hnýtur að lokum um lausnina þar
sem hún kannar vísbendingar á
Dauðrabýlinu; rannsóknaraðstöðu
DAUÐRABÝLIÐ 'k'kiri
HÖFUNDUR: Patricia Cornwell
ÚTGEFANDI: Bókafélagið Ugla
ÞÝÐANDI: Atli Magnússon
Kay Scarpetta rannsakar enn eitt málið og
líkt og áður veltur lausnin á vísbendingum
sem augun vart sjá.
BÓKADÓMUR
Alríkislögreglunnar, þar sem rann-
sökuð er rotnun líka og áhrif utan-
aðkomandi þátta þar á.
Ég viðurkenni fúslega að ég hef
lesið þó nokkrar bóka höfundar-
ins, Patriciu Cornwell, og er þar af
leiðandi orðinn nokkuð kunnug-
ur Kay Scarpetta og íjölskylduhög-
um hennar, sem oftar
en ekki blandast inn
í rannsóknir hennar.
Bækurnar um Scarp-
etta eru í anda sjón-
varpsþáttanna Síessæ,
og líkt og í þeim finnst
lausnin gjarna í einu
hári eða tári, og eigin-
legri rannsóknarlög-
reglu sést vart bregða
fýrir, ef undan er talinn
Pete Marino, önugur og
grófur, en þó trygglynd-
ið uppmálað.
Enn sem komið er hef ég ekki
orðið fyrir vonbrigðum með sögu-
þráð þann sem Patriciu Cornwell
tekst að sjóða upp. Mér
reynist yfirleitt létt að
horfa fram hjá einstaka
agnúum í úrvinnslunni og
ýta til hliðar vangaveltum
um hvers vegna réttar-
meinafræðingur er að yf-
irheyra vitni og viðkom-
andi einstaklinga í stað
þess að rannsaka sýni á
þar til gerðri rannsóknar-
stofu. Hver veit, kannski
er yfirheyrsla einmitt í
verkahring réttarmeina-
fræðinga í Virginíu-fýlki. Ágætis
spennusaga og áhugaverður vinkill
í sögulok.
Kolbeinn Þorsteinsson