Peningamál - 01.05.2009, Síða 59
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
9
•
2
59
verðbólga mun meiri en spár höfðu gert ráð fyrir, sérstaklega ef mið er
tekið af árinu 2008. Í þriðja lagi var gengi krónunnar um 40% veikara
í fyrra miðað við árið áður, en t.a.m. var einungis spáð um 20% geng-
isveikingu í Peningamálum 2008/1. Stóran hluta spáskekkjunnar má
því væntanlega skýra með of bjartsýnum gengisspám.
Á mynd 2 eru spár sérfræðinga á fjármálamarkaði og fjármála-
ráðuneytis bornar saman við spá Seðlabankans um þróun verðbólgu
milli ársmeðaltala fyrir árið 2008.1 Skyggða svæðið á mynd 2 endur-
speglar bil hæsta og lægsta gildis í spám þessara sérfræðinga um árs-
meðaltal verðbólgu fyrir árið 2008. Ef úrtak spáaðila væri nægilega
stórt ætti meðaltal spáa sérfræðinga og fjármálaráðuneytis að lenda
nálægt miðju gráa svæðisins. Myndin varpar ljósi á það hvort fyrirliggj-
andi upplýsingar um stöðu efnahagsmála hafi verið vel nýttar við spá-
gerð spáaðila hverju sinni. Þó ber að athuga að Seðlabankinn fór ekki
að gera eigin spár um þróun gengis krónunnar og stýrivaxta fyrr en
frá árinu 2007. Spár fyrir 2007 nýttu því ekki að fullu mat sérfræðinga
bankans um líklega þróun þessara stærða. Einnig getur verið erfið-
leikum bundið að gera sér grein fyrir á hversu góðum grunni spárnar
eru byggðar með því að skoða eitt ár þar sem þróun mála á einu ári
getur verið tilviljanakennd, þ.e. háð atburðum sem ómögulegt er að
spá fyrir um. Til að fá betri mynd af gæðum spánna er því nauðsynlegt
að horfa til fleiri ára og bera saman þá meginþætti sem spárnar eru
byggðar á svo sem hagvöxt, aðstæður á vinnumarkaði og eignaverð.
Framan af spátímabilinu taldi Seðlabankinn að verðbólga árið
2008 yrði í grennd við verðbólgumarkmið en spáaðilar gerðu almennt
ráð fyrir að verðbólga yrði nokkru meiri. Árið 2006 töldu spáaðilar
að verðbólga yrði á bilinu 2,5-4,3% en þó má merkja að fleiri spáað-
ilar töldu meiri líkur á að verðbólga yrði meiri árið 2008 heldur en
að hún yrði minni. Um mitt árið í fyrra töldu spáaðilar að verðbólga
ársins 2008 yrði á bilinu 10,4-12% og spáði Seðlabankinn 11,3%
verðbólgu. Í reynd mældist verðbólga 12,4%.
Mat á spáskekkjum yfir lengra tímabil
Við mat á verðbólguspám er horft á meðalskekkju (bjögun) og staðal-
frávik spáskekkju. Meðalskekkja sýnir hvert meðalfrávik spánna frá
eiginlegri verðbólgu er og þar með hvort verðbólgu hefur kerfisbundið
verið of- eða vanspáð. Neikvætt formerki gefur til kynna að verðbólgu
hafi verið vanspáð með kerfisbundnum hætti. Staðalfrávik er aftur á
móti mælikvarði á hversu langt spágildið er frá réttu gildi að meðaltali.
Eftir því sem spáð er lengra fram í tímann mun spáskekkjan aukast þar
sem meiri óvissa er fyrir hendi um þróun helstu þjóðhagsstærða.
Tafla 1 sýnir meðalskekkju og staðalfrávik í verðbólguspám
Seðla bankans allt að fjóra ársfjórðunga fram í tímann frá árinu 1994.
Samkvæmt töflunni hefur verðbólgu verið vanspáð tvo, þrjá og fjóra
ársfjórðunga fram í tímann og því meira sem lengra er horft fram í
tímann. Allar meðalskekkjurnar reyndust vera tölfræðilega marktækar
1. Seðlabanki Íslands gerir ársfjórðungslega könnun á mati sérfræðinga á fjármálamarkaði þar
sem þeir eru beðnir um að spá fyrir um verðbólgu milli ársmeðaltala tvö til þrjú ár fram
í tímann. Þátttakendur í könnuninni voru Askar Capital ásamt greiningardeildum Glitnis,
Kaupþings og Landsbankans. Verðbólguspá fjármálaráðuneytis er hægt að fi nna á vef
ráðuneytisins en fjármálaráðuneytið birti ekki spá sumarið 2008. Þessi könnun hefur verið
framkvæmd frá október 2006 en stöðvaðist við hrun bankanna haustið 2008.
Heimild: Seðlabanki Íslands.
%
Mynd 2
Spá Seðlabankans, sérfræðinga og fjármála-
ráðuneytis um ársmeðaltal verðbólgu 2008
Hæsta og lægsta gildi sérfræðinga og fjármálaráðuneytis
Meðaltal sérfræðinga og fjármálaráðuneytis
Spá Seðlabanka Íslands
Verðbólga 2008
Verðbólgumarkmið
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
Okt.
2006
Mars
2007
Júní
2007
Okt.
2007
Nóv.
2007
Júlí
2008
Nóv.
2008