Peningamál - 01.02.2011, Blaðsíða 13

Peningamál - 01.02.2011, Blaðsíða 13
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 1 1 • 1 13 Mælt atvinnuleysi var 8,1% á árinu 2010 en hafði verið 8% árið á undan. Þótt atvinnuleysi mælist svipað og árið 2009 var það í raun meira, því að breytingar á atvinnuleysisbótarétti og breyttar aðferðir við útreikning atvinnuleysis leiða til þess að atvinnuleysi mælist líklega ½-1 prósentu minna árið 2010 en sam- kvæmt fyrri aðferðum og bótarétti. Tölur vinnumarkaðskönnunar Hagstofunnar sýna einnig að atvinnuleysi jókst milli ára. • Vísbendingar um þróun atvinnuleysis á næstu mánuðum benda til að það eigi enn eftir að aukast. Þannig gefur viðhorfskönnun meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins sem Capacent Gallup gerði í desember til kynna að fleiri fyrirtæki vildu fækka starfsmönnum á næstu sex mánuðum en fjölga. Samkvæmt viðhorfskönnuninni vilja fleiri fyrirtæki fækka starfsfólki en í sambærilegri könnun í september og færri vilja fjölga starfsfólki. Mest breyting varð á áformum fyrirtækja í fiskvinnslu um að fækka fólki. U.þ.b. þriðjungur þeirra vildi fækka starfsfólki í desember en aðeins 14% í september. Svipaðar vísbendingar má lesa út úr nýlegri könnun sem Samtök atvinnulífsins gerðu meðal aðildarfélaga sinna. Samkvæmt henni áforma fyrirtæki að fækka starfsmönnum um 1.000 á næstu sex mánuðum. Jafngildir það rúmlega ½ prósentu aukningu atvinnuleysis. • Í nýlegu samkomulagi á milli Samtaka atvinnulífsins, fjármála- stofnana og stjórnvalda er stefnt að því að athugun á fjárhags- stöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja verði lokið fyrir sumarbyrjun. Vonir standa til að þessar aðgerðir muni hraða úrvinnslu skulda- mála þessara fyrirtækja. Líklegt er að endurskipulagning fyrirtækj- anna muni hafa í för með sér tímabundna aukningu atvinnuleysis en jafnframt treysta atvinnu til lengri tíma. • Samkvæmt uppfærðri spá bankans eru atvinnuleysishorfur til næstu ára svipaðar og þær voru í nóvember. Gert er ráð fyrir að atvinnuleysi muni aukast á fyrri hluta ársins, ná hámarki í um 8½% á fyrsta fjórðungi þessa árs en taki smám saman að minnka á ný eftir því sem efnahagsumsvif aukast og verði komið niður í rúmlega 3% í lok árs 2013. • Miðað við niðurstöður vinnumarkaðskönnunar Hagstofunnar er áætlað að hlutfall starfandi fólks af mannfjölda á aldrinum 16-64 ára hafi minnkað um 2½ prósentur milli fjórðunga á síðasta fjórð- ungi ársins 2010. Spáð er að atvinna taki að aukast milli fjórðunga á fyrsta fjórðungi þessa árs (leiðrétt fyrir árstíðarsveiflu). Gert er ráð fyrir hægum, en samfelldum bata í atvinnu það sem eftir lifir spátímans og í lok spátímans verði hlutfall starfandi fólks um 2½ prósentu hærra en það var í fyrra. • Ekki hafa komið fram nýjar vísbendingar um aukinn launaþrýst- ing, þótt laun hafi hækkað lítillega meira á síðasta fjórðungi ársins 2010 en gert var ráð fyrir í síðustu spá. Kjarasamningaviðræður standa yfir og er gert ráð fyrir tiltölulega hóflegum launahækk- % Mynd 21 Atvinna 1. ársfj. 2007 - 1. ársfj. 20141 1. Grunnspá Seðlabankans 1. ársfj. 2011 - 1. ársfj. 2014. Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. Ársfjórðungslegur vöxtur atvinnu (árstíðarleiðréttur) Árlegur vöxtur atvinnu -14 -12 -10 -8 -6 -4 -2 0 2 4 6 2013201220112010200920082007 Hlutfall fyrirtækja (%) Mynd 22 Fyrirtæki sem hyggja á starfsmannabreytingar á næstu 6 mánuðum Heimild: Capacent Gallup. Fyrirtæki sem vilja fjölga starfsmönnum, desember 2010 Fyrirtæki sem vilja fjölga starfsmönnum, október 2010 Fyrirtæki sem vilja fækka starfsmönnum, desember 2010 Fyrirtæki sem vilja fækka starfsmönnum, október 2010 -60 -40 -20 0 20 40 60 Ýmis þjónusta Fjármálaþjónusta Bygg.st. og veitur Samgöngur o.fl. Sjávarútvegur Verslun Iðnaður og framl. Selja ekki vörur til útlanda Selja vörur til útlanda Öll fyrirtæki 1. Jákvæður vöxtur framleiðni kemur fram sem neikvætt framlag til hækkunar á launakostnaði á framleidda einingu. Grunnspá Seðlabankans 2010-2013. Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. Mynd 23 Launakostnaður á framleidda einingu og framlag undirliða 2000-20131 Breyting frá fyrra ári (%) -4 -2 0 2 4 6 8 10 12 14 Nafnlaun Launakostnaður annar en laun Undirliggjandi framleiðni Launakostnaður á framleidda einingu ‘13‘11‘09‘07‘05‘03‘01‘00 ‘02 ‘04 ‘06 ‘08 ‘10 ‘12

x

Peningamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.