Peningamál - 01.02.2011, Blaðsíða 15

Peningamál - 01.02.2011, Blaðsíða 15
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 1 1 • 1 15 miði Seðlabankans en bæði verðbólguvæntingar heimila og verð- bólguálag á skuldabréfamarkaði virðast ráðast mjög af nýliðinni verðbólguþróun. • Horfur eru á að verðbólga á fyrsta ársfjórðungi 2011 verði nokkru minni en vænst var í síðustu Peningamálum, einkum vegna breytingar Hagstofunnar á meðhöndlun útvarpsgjalds í vísitölu neysluverðs og nokkru meiri útsöluáhrifa en búist var við. Spáð er að verðbólga án áhrifa hækkunar óbeinna skatta verði 1,4% á fyrsta ársfjórðungi 2011, en í síðustu spá var gert ráð fyrir 2,2% verðbólgu. Horfur eru jafnframt á að mæld verðbólga verði 1,6% á fyrsta ársfjórðungi samanborið við væntingar um 2,5% í nóv- emberspánni. Spáð er að verðbólga verði undir verðbólgumark- miði á árinu 2011 og nái lágmarki á fyrri hluta ársins. Gangi spáin eftir verður meðalverðbólga á þessu ári 1,9%, eins og spáð var í nóvember. • Í kjölfar þess að útvarpsgjaldið var tekið út úr vísitölu neysluverðs verður ársverðbólga bæði með og án áhrifa óbeinna skatta 0,4 prósentum minni á þessu ári en hún hefði ella verið. Við mat á undirliggjandi verðbólgu, verðbólguhorfum og mótun peninga- stefnunnar er því rétt að horfa fram hjá þessum áhrifum. • Óvissa um þróun verðbólgu á næstu misserum tengist einkum óvissu um gengi krónunnar. Einnig er hugsanlegt að launahækk- anir í komandi kjarasamningum verði meiri en gert er ráð fyrir í spánni, en þær myndu leiða til meiri verðbólgu að öðru óbreyttu. Á móti kemur að nokkur óvissa er um styrk efnahagsbatans sem spáð er. Verði þróttur innlends þjóðarbúskapar minni en hér er spáð gæti verðbólga reynst minni. Óvissar verðbólguhorfur endurspegla einnig óvissu um þróun á íbúðamarkaði. Lækkun íbúðaverðs hefur orðið minni en Seðlabankinn hafði spáð, sem m.a. skýrist af gjaldeyrishöftunum sem hafa stutt við innlent eignaverð í kjölfar fjármálakreppunnar. Einnig er nokkur óvissa um þróun verðlags í heiminum, hrávöruverð er óstöðugt og gengi helstu gjaldmiðla gæti breyst hratt. Mynd 27 Verðbólguvæntingar fyrirtækja og almennings til eins árs og núverandi verðbólga % Verðbólga Verðbólguvæntingar almennings Verðbólguvæntingar stærstu fyrirtækja1 1. Mælingar á verðbólguvæntingum fyrirtækja voru framkvæmdar óreglulega fram að þriðja ársfjórðungi 2006 og því er brúað á milli mælinga fram að því. Heimildir: Capacent Gallup, Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. 0 2 4 6 8 10 12 14 16 18 20102009200820072006200520042003 Breyting frá fyrra ári (%) 1. Grunnspá Seðlabankans 1. ársfj. 2011 - 1. ársfj. 2014. Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. Mynd 28 Verðbólga með og án skattaáhrifa1 Verðbólga Verðbólga án skattaáhrifa Verðbólgumarkmið 0 2 4 6 8 10 12 14 16 18 2013201220112010200920082007

x

Peningamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.