Peningamál - 01.08.2011, Blaðsíða 13
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
1
•
3
13
• Vísbendingar úr Vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar benda til
þess að vinnuaflseftirspurn sé að taka við sér á ný. Á öðrum
ársfjórðungi jókst bæði fjöldi starfandi á vinnumarkaði sem og
meðalvinnustundafjöldi, borið saman við sama ársfjórðung í fyrra.
Þeim sem eru í fullu starfi fjölgaði á meðan starfandi í hlutastarfi
fækkaði annan ársfjórðung í röð. Þessi þróun bendir til þess að
enn sem komið er mæti fyrirtæki aukinni eftirspurn með því að
nýta betur áður ónýtta framleiðsluþætti fremur en að ráða nýtt
fólk til starfa. Heildarvinnustundum fjölgaði því um 1% milli ára.
Er það í fyrsta sinn sem heildarvinnumagn eykst milli ára síðan á
þriðja ársfjórðungi 2008, ef frá er talinn annar ársfjórðungur 2010
þegar heildarvinnumagn jókst um 1,1%. Sú aukning skýrist þó
að miklu leyti af umtalsverðri fjölgun starfandi á aldrinum 55-74
ára, sem er óvenjulegt og endurspeglar líklega úrtaksskekkju,
eins og áður hefur verið fjallað um í Peningamálum. Líklegt er að
vinnumagn þá hafi aukist minna en könnunin gaf til kynna, sem
gæti þýtt að aukningin nú sé í reynd meiri en tölur Hagstofunnar
sýna.
• Þróun á fjölda atvinnulausra hefur verið svipuð það sem af er
ári og hún var í fyrra en fjöldinn er minni og atvinnuleysi mælst
tæplega prósentu minna en á sama tíma í fyrra. Atvinnuleysi að
teknu tilliti til árstíðar hefur verið óbreytt frá því í maí eða um 7%.
Atvinnuleysi var töluvert minna á öðrum ársfjórðungi en gert var
ráð fyrir í spá bankans sem birt var í Peningamálum í apríl. Þessi
munur skýrist af nokkrum þáttum. Í fyrsta lagi var búist við að
skoðun á fjárhagsstöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja yrði lokið
fyrir sumarbyrjun eins og gert var ráð fyrir í upprunalegu sam-
komulagi á milli atvinnulífsins, fjármálastofnana og stjórnvalda.
Talið var að endurskipulagning fyrirtækja myndi hafa í för með sér
aukið atvinnuleysi um sinn, þótt hún treysti atvinnu til lengri tíma.
Endurskipulagning á fjármálum fyrirtækja hefur gengið hægar
fyrir sig en vænst var en einnig virðist sem fyrirtækin telji ekki
þörf á jafn mikilli fækkun starfa og gert var ráð fyrir í forsendum
spárinnar. Einnig var gert ráð fyrir að þau myndu bregðast við
verulega auknum launakostnaði með uppsögnum eða fækkun
vinnustunda, en svo virðist sem meginhluta kostnaðaraukningar-
innar verði velt út í verðlag.
• Þrátt fyrir að vísbendingar úr viðhorfskönnun meðal 400 stærstu
fyrirtækja landsins sem Capacent Gallup gerði í maí og júní gefi
til kynna að fleiri fyrirtæki vildu fækka starfsmönnum á næstu
sex mánuðum en fjölga eru horfur um atvinnuleysi heldur betri
en þær voru í apríl. Gert er ráð fyrir að atvinnuleysi muni aukast
nokkuð yfir vetrarmánuðina og verði rúmlega 7% í ár, sem er
um ½ prósentu minna en gert var ráð fyrir í síðustu spá, og verði
komið niður í um 4½% í lok spátímabilsins, sem er heldur meira
en spáð var í apríl.
• Niðurstöður Vinnumarkaðskönnunar Hagstofunnar benda til
þess að atvinna hafi aukist um 1% milli ára á öðrum fjórðungi
%
Mynd 21
Atvinna
1. ársfj. 2008 - 3. ársfj. 20141
1. Grunnspá Seðlabankans 2. ársfj. 2011 - 3. ársfj. 2014.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Ársfjórðungslegur vöxtur atvinnu (árstíðarleiðréttur)
Árlegur vöxtur atvinnu
-14
-12
-10
-8
-6
-4
-2
0
2
4
6
2014201320122011201020092008
Heimild: Seðlabanki Íslands.
Breyting milli ársmeðaltala (%)
Mynd 22
Forsendur um launahækkanir
í mismunandi útgáfum Peningamála
PM 2011/1
PM 2011/2
PM 2011/3
0
1
2
3
4
5
6
7
201320122011
Fjöldi
Mynd 20
Meðalfjöldi atvinnulausra
Janúar 2008 - júlí 2011
Heimild: Vinnumálastofnun.
2008
2009
2010
2011
0
2.000
4.000
6.000
8.000
10.000
12.000
14.000
16.000
Des.Nóv.Okt.Sep.Ág.JúlíJúníMaíApr.Mar.Feb.Jan.