Peningamál - 01.02.2012, Blaðsíða 2
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
2
•
1
2
Merking tákna:
* Bráðabirgðatala eða áætlun.
0 Minna en helmingur einingar.
- Núll, þ.e. ekkert.
... Upplýsingar vantar eða tala ekki til.
. Tala á ekki við.
Útgefandi:
Seðlabanki Íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík.
Sími: 569 9600, símbréf: 569 9605
Netfang: sedlabanki@sedlabanki.is
Veffang: www.sedlabanki.is
Ritstjórn:
Þórarinn G. Pétursson, formaður
Sturla Pálsson
Tómas Örn Kristinsson
Rannveig Sigurðardóttir
Helga Guðmundsdóttir
47. rit. Febrúar 2012
ISSN 1605-9468, prentuð útgáfa
ISSN 1670-4371, vefrit
Öllum er frjálst að nota efni úr Peningamálum en þess er
óskað að getið sé heimildar.
Markmið peningastefnu Seðlabanka Íslands er að stuðla að almennri
efna hagslegri velferð á Íslandi. Það gerir Seðlabankinn með því að stuðla
að stöðugu verðlagi sem er meginmarkmið hans. Í sameiginlegri yfirlýsingu
ríkisstjórnar og Seðlabanka Íslands frá 27. mars 2001 er þetta skýrt svo
að Seðlabankinn stefni að því að árleg verðbólga, reiknuð sem hækkun
vísitölu neysluverðs á tólf mánuðum, verði að jafnaði sem næst 2½%.
Fagleg greining og gagnsæi eru mikilvægar forsendur trúverðugrar
pen ingastefnu. Með útgáfu ritsins Peningamála leitast Seðlabankinn við
að uppfylla þau skilyrði. Í ritinu birtist tvisvar á ári, í byrjun maí og byrjun
nóvember, ítarleg greining á framvindu og horfum í efnahagsmálum. Í janúar
og ágúst, birtist uppfærð spá með stuttri umfjöllun um þróun og horfur
í efnahags- og peningamálum. Vaxtaákvarðanir peningastefnunefndar
Seðlabankans byggjast meðal annars á þessari greiningu. Með útgáfunni
leitast bankinn einnig við að standa reikningsskil gerða sinna gagnvart
stjórnvöldum og almenningi.
Umgjörð peningastefnunnar, framkvæmd hennar og stjórntækjum er
nánar lýst á slóðinni www.sedlabanki.is/?PageID=3