Peningamál - 01.02.2012, Blaðsíða 3

Peningamál - 01.02.2012, Blaðsíða 3
P E N I N G A M Á L 2 0 1 2 • 1 3 Yfirlýsing peningastefnunefndar 8. febrúar 2012 Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxt- um bankans óbreyttum. Samkvæmt uppfærðri spá Seðlabankans, sem birtist í Peninga- málum í dag, heldur efnahagsbatinn áfram, þrátt fyrir að það dragi úr hagvexti í heiminum og óvissa sé mikil. Horfur um efnahagsumsvif eru í megindráttum svipaðar og í nóvemberspá Seðlabankans. Verðbólgu- horfur til skamms tíma eru einnig í takt við það sem gert hafði verið ráð fyrir, þótt nú sé spáð heldur hægari hjöðnun verðbólgu á árinu. Haldist gengi krónunnar svipað og það er nú, er því spáð að verðbólga verði fyrir ofan verðbólgumarkmið bankans heldur lengur en spáð var í nóvember. Eftir því sem efnahagsbatanum vindur fram og dregur úr slaka í þjóðarbúskapnum verður nauðsynlegt að draga úr slaka peninga- stefnunnar. Að hve miklu leyti þessi aðlögun á sér stað með hærri nafnvöxtum Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar. Batni verðbólguhorfur ekki er líklegt að hækka þurfi nafnvexti á næstunni til þess að taumhald peningastefnunnar, sem er enn tiltölulega laust, verði hæfilegt.

x

Peningamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.