Peningamál - 01.02.2014, Blaðsíða 3

Peningamál - 01.02.2014, Blaðsíða 3
P E N I N G A M Á L 2 0 1 4 • 1 3 Yfirlýsing peningastefnunefndar 12. febrúar 2014 Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxt- um bankans óbreyttum. Áætlað er að hagvöxtur í fyrra hafi verið töluvert meiri en Seðla- bankinn spáði í nóvember síðastliðnum. Samrýmist það vísbendingum um sterkan bata á vinnumarkaði sem áður voru komnar fram. Sam- kvæmt spá Seðlabankans sem birtist í dag mun hagvöxtur aukast á næstu tveimur árum og slaki í þjóðarbúskapnum hverfa fyrr en áður var talið. Gengi krónunnar hefur hækkað á síðustu vikum þrátt fyrir um- talsverð gjaldeyriskaup Seðlabankans. Launakostnaður á framleidda einingu hækkar minna í ár en áður var spáð, að því gefnu að megin- niðurstöður kjarasamninga sem gerðir voru fyrir áramót gildi fyrir vinnumarkaðinn í heild. Verðbólga á þessu ári verður því minni en áður var talið og nálægt markmiði. Verðbólguhorfur til næstu tveggja ára hafa hins vegar versnað frá nóvemberspá bankans þar sem horfur eru á að slaki í þjóðarbúskapnum snúist í spennu á tímabilinu. Aðgerðir til þess að lækka verðtryggðar skuldir heimila munu hafa nokkur áhrif á efnahagshorfur næstu ára. Þær munu að óbreyttu auka einkaneyslu og innflutning og draga úr þjóðhagslegum sparnaði og viðskiptaafgangi, sem stuðlar að lægra gengi krónunnar en ella. Horfur á meiri vexti innlendrar eftirspurnar munu að öðru óbreyttu krefjast þess að taumhald peningastefnunnar verði hert fyrr og meir en áður hafði verið búist við. Á móti gætu komið aðrar að- gerðir sem leggjast á sveif með peningastefnunni. Þar skiptir miklu máli hvaða stefnu verður fylgt í ríkisfjármálum á komandi árum. Einnig gætu endurbætur sem styrkja framboðshlið þjóðarbúsins dregið úr framleiðsluspennu og þar með úr verðbólguáhrifum aukinnar eftir- spurnar. Að því marki sem verðbólga hjaðnar frekar mun taumhald pen- ingastefnunnar herðast án frekari vaxtabreytinga. Samkvæmt verð- bólgu spá bankans munu nafnvextir hans þó að óbreyttu þurfa að hækka þegar nær dregur því að slaki snúist í spennu. Þróun nafnvaxta bankans ræðst því sem áður af framvindu verðbólgu.

x

Peningamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.