Peningamál - 21.05.2014, Blaðsíða 63
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
4
•
2
63
VII Ytri jöfnuður
Undirliggjandi viðskiptajöfnuður var jákvæður um tæpa 111 ma.kr.
eða ríflega 6% af vergri landsframleiðslu á árinu 2013, sem er mun
meiri afgangur en árið áður þegar hann mældist 48 ma.kr. Afgangur
af vöru og þjónustuviðskiptum nam tæpum 132 ma.kr. eða 7,4%
af landsframleiðslu, en 21 ma.kr. halli var á undirliggjandi þáttatekju
jöfnuði eða sem samsvarar 1,2% af landsframleiðslu. Á sama tíma
var halli á undirliggjandi fjármagnsjöfnuði 12% af landsframleiðslu.
Útlit er fyrir heldur meiri afgang af vöru og þjónustujöfnuði yfir spá
tímann en gert var ráð fyrir í febrúarspá Peningamála. Gert er ráð fyrir
að undirliggjandi viðskiptajöfnuður, þ.e. viðskiptajöfnuður leiðréttur
fyrir reiknuðum tekjum og gjöldum innlánsstofnana í slitameðferð og
áhrifum uppgjörs búa þeirra, verði jákvæður um tæplega 1% af lands
framleiðslu á þessu ári, en að hann verði neikvæður um ½% árið 2015
og um 2% árið 2016.
Afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum í fyrra í takt við
febrúarspána ...
Afgangur af vöruskiptajöfnuði í fyrra nam 70 ma.kr. sem er í takt
við spána frá því í febrúar. Vöruskiptajöfnuður reyndist jákvæður alla
mánuði síðasta árs að maí undanskildum, en þá hafði hann ekki verið
neikvæður síðan í maí árið á undan (mynd VII1). Vöruútflutningur
dróst saman um 1,9% milli ára í fyrra á föstu gengi og munaði þar
mest um 5% samdrátt í verðmæti iðnaðarvara. Innflutningur dróst á
sama tíma saman um 0,9% og var meginástæðan um þriðjungssam
dráttur í verðmæti flutningatækja. Vöruskiptaafgangur án skipa og
flugvéla var 74 ma.kr. í fyrra eða um 26 ma.kr. minni en árið 2012 en
flutt voru inn skip og flugvélar að verðmæti 7,7 ma.kr. í fyrra en 29,5
ma.kr. árið 2012 (mynd VII2).
Á síðasta fjórðungi ársins 2013 var um 3,6 ma.kr. halli á þjón
ustuviðskiptum, mælt á föstu gengi, eftir tæplega 48 ma.kr. afgang
á fjórðungnum á undan. Afgangur af þjónustuviðskiptum á árinu
í heild nam 66 ma.kr. sem er um 35 ma.kr. meiri afgangur en árið
2012. Hreinar tekjur af samgöngum, sem námu 86 ma.kr., auk 27
ma.kr. tekna af þjónustu við erlenda ferðamenn umfram útgjöld vegna
ferðalaga Íslendinga í útlöndum, skýra meginhluta afgangsins af
þjónustu á síðasta ári. Á móti vó hins vegar innflutningur á „annarri“
þjónustu sem var um 47 ma.kr. meiri en útflutningur, mælt á föstu
gengi. Hallinn af „annarri“ þjónustu (t.d. rekstrarleigu og lögfræði og
endurskoðunarþjónustu) dregur talsvert úr áhrifum mikils afgangs af
samgöngum og ferðaþjónustu. Útflutt þjónusta jókst um rúm 12% frá
árinu 2012 þar sem tekjur af ferðaþjónustu jukust mest eða um 21%.
Á sama tíma jókst innflutt þjónusta um 3% milli ára þar sem innflutt
ferðaþjónusta jókst um 7½% á föstu gengi. Afgangur af vöru og
þjónustuviðskiptum nam því um 135 ma.kr. á síðasta ári sem sam
svarar 7,4% af landsframleiðslu. Það er í takt við það sem spáð var í
febrúar.
... og óbreyttar horfur í ár en hafa batnað fyrir næstu tvö árin
Vöruskiptaafgangur hefur dregist verulega saman það sem af er ári.
Mynd VII-1
Undirþættir viðskiptajafnaðar1
1. ársfj. 2003 - 4. ársfj. 2013
Ma.kr.
1. Rekstrarframlög talin með þáttatekjum.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Vöruskiptajöfnuður
Þjónustujöfnuður
Þáttatekjujöfnuður (hlutur innlánsstofnana
í slitameðferð)
Þáttatekjujöfnuður (annað)
-140
-120
-100
-80
-60
-40
-20
0
20
40
60
80
‘13‘12‘11‘10‘09‘08‘07‘06‘05‘04‘03
Mynd VII-2
Vöruskiptajöfnuður
Á föstu gengi, janúar 2005 - mars 2014
Ma.kr.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Vöruskiptajöfnuður án skipa og flugvéla
Vöruskiptajöfnuður
-40
-30
-20
-10
0
10
20
30
‘13‘12‘11‘10‘09‘08‘07‘06‘05