Glóðafeykir - 01.05.1967, Blaðsíða 24
24
GLÓÐAFEYKIR
Afiirðainnlegg 1966
Heildarslátrun hjá Kaupfélagi Skagfirðinga haustið 1966, var
38.464 kindur þar af voru 189 stk., sem ekki komu til innleggs, og
var því innleggið samtals 38.275 stk., en þar af voru dilkar 35.210.
Hafði því aukningin á sláturfjártölu frá haustinu næst á undan
verið 1.779 kindur.
Meðalfallþungi dilka var 13.469 kg. og hafði lækkað frá haustinu
1965 um 0.381 kg. (13.85 kg. 1965).
Heildarkjötmagn var 532.5 tn. og hafði aukizt um 17.7 tn.
Hér á eftir verður birt skýrsla um endanlegt verð hjá K. S. 1965
og grundvallarverð fyrir það ár, svo og uppígreiðsluverð eins og það
var ákveðið á sl. hausti. Það skal sérstaklega vakin athygli á því, að
verðlagsgrundvöllurinn gerir ráð fyrir mörlausu kjöti, en allt kjöt
hjá K. S. er innvigtað með nýrum og nýrnamör og verðið því til
bænda mun hagstæðara en fram kemur í yfirlitinu:
Endanl. verð Grundv. verð Uppígr. verð
Tegund: K. S. 1965 1965 K.S. 1966
D - I og D - II 55.64 55.63 52.00
D - III, S — I og II og V - I og II 50.10 50.11 46.00
G — I 39.40 39.39 36.00
Æ - I og H - I 23.00 22.99 21.00
Æ - II og H — II 18.88 18.88 16.00
Dilkagærur, hv. og misl.1) 30.00 38.30 25.00
Dilkagærur, gráar1) 60.00 50.00
Gærur af fullorðnu,1) hv. og mislitar 22.00 15.00
Dilkaslátur pr. kg. kjöts 3.35 3.70
1) Eins og flestunr er kunnugt, hefur gengið erfiðlega sala á gær-
um og ull, og þó nokkurt verðfall orðið á þeim vörum á erlendum
mörkuðum. Þannig liggur ekki endanlega fyrir lokaverð á gærum
vegna framleiðslunnar 1965, og verður ekki fullnaðarverð greitt á
þær fyrr en nú á þessu nýbyrjaða ári.