Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 01.02.2016, Page 1
Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar 2. tbl. 24. árg. nr. 659 1. febrúar 2016
Ritstjórn
og umsjón útgáfu:
Viktor Arnar
Ingólfsson
Ábyrgðarmaður:
Gunnar Gunnarsson
Prentun: Oddi
Ósk um áskrift sendist til:
Vegagerðin
Framkvæmdafréttir
Borgartúni 7
105 Reykjavík
eða með tölvupósti til:
askrift@vegagerdin.is
Vegagerðin gefur út Framkvæmdafréttir til að kynna útboðs-
framkvæmdir fyrir verktökum. Listi yfir fyrirhuguð útboð er
birtur, greint er frá niðurstöðum útboða og einnig samningum.
Auk þess er í blaðinu annað það fréttaefni sem verður til hjá
stofn uninni og talið er að eigi erindi til verktaka og annarra
les enda . Blaðið kemur út einu sinni í mánuði að jafnaði.
Áskrifendur eru m.a. verktakar, verkfræðistofur, fjöl miðlar og
áhugafólk. Áskrift er endurgjaldslaus.
2. tbl. /16
Vegagerðin auglýsir útboð sín á vefsíðunum Úboðsvefur.is
og vegagerdin.is en ekki í þessu blaði. Verktakar eru
minntir á að fylgjast vel með auglýsingum.
Hringvegur um Berufjarðarbotn
Áður birt á vegagerdin.is 22.01.2016
Stefnt er að því að bjóða út vegagerð um Berufjarðarbotn á
þessu ári en þungi framkvæmda yrði þá árin 2017 og 2018.
Þetta er skilyrt því að fé fáist til framkvæmdanna. Í verkinu
felst smíði nýrrar brúar auk vegagerðar. Að þessari vegagerð
lokinni verður unnt að aka hringinn í kringum Ísland á bundnu
slitlagi, þó ekki á Hringveginum sjálfum heldur með því að
fara fjarðaleiðina á Austfjörðum.
Lýsing á verkinu:
Fyrirhuguð vegagerð fyrir Berufjarðarbotn er 4,9 km löng
með 50 m langri nýrri brú og auk þess 1,6 km af nýjum
heimreiðum.
Verkið felst í meginatriðum í eftirfarandi:
- Gerð nýs Hringvegar á 2,9 km löngum kafla norðan við
og innst í Berufirði neðan við bæina Hvannabrekku og
Berufjörð. Hluti þess kafla, 0,5 km langur, liggur um leirur
og verður umflotinn sjó og er dýpsti állin þar um 5 m
djúpur.
- Endurgerð Hringvegar á 2,0 km löngum kafla sunnan
fjarðarins.
- Gerð 1,6 km langra héraðsvega, sem verða heimreiðar að
bæjunum Hvannabrekku og Berufirði.
- Smíði nýrrar brúar á leirunum yfir Berufjarðará og sjáv-
ar föll, sem verður 50 m löng steypt eftirspennt bitabrú
Tölvugerð mynd af nýrri þverun yfir Berufjarðarbotn.