Fréttablaðið - 18.04.2016, Side 46
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Erró
Á uppboðinu verður gott úrval verka
samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka
gömlu meistaranna.
mánudaginn 18. apríl
uppboðið hefst kl. 18
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Forsýning í Gallerí Fold
mánudag kl. 10–17
„Fólk er ekki alltaf að hugsa um
það í nútímanum að Íslendingar
hafi verið farnir að sýna leiknar
bíómyndir í kvikmyndahúsum
um miðja síðustu öld, sem voru
svo vinsælar að það voru biðraðir
frá miðasöluopinu og hálfa leið
í kringum húsið,“ segir Erlendur
Sveinsson, forstöðumaður Kvik-
myndasafns Íslands. Tilefni
ummælanna er að safninu áskotn-
uðust nýlega allar kvikmyndir
Óskars Gíslasonar, brautryðjanda
í kvikmyndun á Íslandi. Fjölskylda
Óskars afhenti þær formlega en
þær höfðu verið varðveittar í safn-
inu um árabil. Auk þess eignaðist
safnið gögn og margvíslega gripi
sem Óskar lét eftir sig.
„Það er merkilegt fyrir kvik-
myndasafnið að fá fullan yfirráða-
rétt yfir þessu mikla framlagi Ósk-
ars til íslenskrar kvikmyndagerðar
sem eru bæði leiknar myndir sem
voru sýndar í samkeppni við leikn-
ar myndir Lofts Guðmundssonar,
og síðan þetta gríðarlega magn
merkilegra heimildamynda sem
Óskar hefur gert. Þetta er höfð-
inglegur gjörningur því þjóðinni
er í raun gefinn þessi arfur,“ segir
Erlendur.
Fyrsta mynd Óskars lifir enn
með þjóðinni, Síðasti bærinn
í dalnum. „Í Síðasta bænum í
dalnum náði Óskar að fanga eitt-
hvað sem undirmeðvitund þjóðar-
innar vill vita um og varðar rætur
okkar - þessa ömmuveröld. Enda
sagði Óskar sjálfur að hann hefði
endursýnt þá mynd á tíu ára fresti,
gjarnan í Tjarnarbíói og hún hefði
alltaf virkað sem ný. Auðvitað
ber sú mynd merki fjárskorts og
frumstæðra tækja, það var enginn
alvöru kvikmyndaiðnaður orðinn
til í landinu. Engu að síður er hún
mikils virði.“
Í heimildarmyndapakkanum
sem Óskar lét eftir sig segir Erlend-
ur eina mynd skera sig úr og seint
verða toppaða. Það er Björgunaraf-
rekið við Látrabjarg. Framleiðslu-
saga þeirrar myndar var einstæð
því þegar tökur stóðu yfir, ári eftir
björgunarafrekið, strandaði annað
skip á sama stað svo menn þurftu
að fara í raunverulega björgun.
Erlendur nefnir líka heilmikinn
myndabálk um Reykjavík sem
var tekinn rétt fyrir miðja síðustu
öld, Reykjavík vorra daga. „Það er
freistandi fyrir alla sem fást við
þetta tímabil bæði í sjónvarpsefni
og kvikmyndum að leita í þann
sjóð,“ segir Erlendur.
Erlendur segir brýnt að koma
upp sýningaraðstöðu í kvikmynda-
safninu, sem er á Hvaleyrarbraut
13 í Hafnarfirði. Einnig þarfnist
safnið nauðsynlega nýs skanna til
að geta komið kvikmyndaarfinum
í form sem nútíminn geti nýtt sér.
gun@frettabladid.is
Þetta er höfðinglegur gjörningur
Á 115 afmælisdegi Óskars Gíslasonar kvikmyndagerðarmanns afhenti fjölskylda hans Kvikmyndasafni
Íslands, og þar með íslensku þjóðinni, allar kvikmyndir hans til eignar.
Lára Sóley Jóhannsdóttir, fiðlu-
leikari og bæjarlistamaður Akur-
eyrar, býður heimamönnum og
gestum á tónleika í Akureyrarkirkju
á miðvikudaginn, 20. apríl, klukkan
20. Þeir eru einskonar uppskeruhá-
tíð og yfirskriftin er: takk fyrir mig!
Hún segir starfslaunin hafa verið
ómetanleg og gert henni mögulegt
að efla sig sem listamann.
Fjöldi listamanna kemur fram
með Láru á tónleikunum. – gun
Takk fyrir mig
Erlendur í pontu eftir móttöku myndanna hans Óskars. Á bak við hann sést ljósmynd sem sýnir biðröðina eftir miðum á
Síðasta bæinn í dalnum. Fréttablaðið/anton brink
lára býður á tónleikana í þakklætisskyni. Mynd/úr EinkaSaFni
Í SÍðaSta bænum Í
dalnum nÁði ÓSKar
að fanGa eitthvað Sem
undirmeðvitund þjÓðar-
innar vill vita um oG
varðar rætur oKKar – þeSSa
ömmuveröld.
1 8 . a p r í l 2 0 1 6 M Á N U D a G U r22 M e N N i N G ∙ F r É T T a B l a ð i ð
menning
1
8
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:1
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
1
B
-7
B
7
4
1
9
1
B
-7
A
3
8
1
9
1
B
-7
8
F
C
1
9
1
B
-7
7
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
1
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K