Skírnir - 01.01.1974, Síða 141
SKÍRNIK
DRAUMUR I SYN
135
Mjöberg bætir því við að e.t.v. megi í því sambandi reikna með
einhverjum áhrifum frá Grundtvig.3 0
Inn í guðsdýrkun Arnarhvolsfeðga er ofar öðrum goðum tigna
Þór, guð styrks og athafna, fellur tilbeiðsla jarðarinnar sem sjálf-
sagður og eðlilegur þáttur. Ingólfur segir við Ozur son sinn:
Trú aldrei nokkrum manni, sem treður Jörðina sem saur, - hversu hátt sem
hann annars kann að beina augum sínum, sonur. Oðinn faðmaði hana og
faðmar hana enn. Hún er þunguð af náð hans!31
Og er Ingólfur færir Þór sonarson sinn, Þorkel mána, ávarpar
hann goðið svofelldum orðum:
Þór, vildarvinur. Menn, er maður sízt skyldi ætla það, snúa nú baki við
þínu hreina Ijósi, varpa sér út í eyðandi myrkur efans. Ekki allfáir leita fram-
andi guða, þess eðlis, að ógnum gegnir. Slokknuð virðist í huga mannsins hin
Ijómandi stund, er ljósið tók Jörð í faðm og lífsheimur vor varð til í leik
goðkynjaðra ásta. A vorum tímum er helgi getnaðarins bönnuð sem afbrot og
drýgð sem skömm. I saurugum leik og auðvirðilegu stjórnleysi. Menn, sem
ráðvandir vilja kallast og teljast leita sællar æveru, en leita hennar, ef svo er,
utan lífsins sjálfs, utan armlengdar mannsins, - eins og nokkur samhljóðan
geti nokkru sinni orðið milli ófrjósemi og grósku, - slíka menn hef ég heyrt
formæla Jörðunni örgum munni, kalla hana táranna dal, já, grátandi hef ég
heyrt þá bannfæra jörð vora, hana, sem þú gafst oss öllum að móður, hana,
sem vér sjúgum sem brjóstbörn allt frá því, er vér vöknum til lífs, til þess er
vér sofnum í dauða, hana vora dýrlegu móður, sem spýr út öllu óhreinu, göfg-
ar allt, sem margfaldlega fæðir og heldur áfram að fæða - frjósöm um aldir!32
í tilbeiðslu jarðarinnar felst lífstrú og lífsjátun, jafnframt viður-
kenningu á stöðu mannsins sem eins af börnum jarðar en ekki sem
herra hennar er skuli gera hana sér undirgefna. Það er í þjónustu
alls lífs sem af jörðinni er sprottið að Þorsteinn Ingólfsson gerist
sáðmaður friðar:
Sem óverðugur þjónn vorra göfugu goða hef ég nú gert það, sem mér bar
að gera: Sáð friði í þessa grýttu jörð. Það er markmið vort með þessu voru
fyrsta, en því miður allt of fámenna þingi, að sá friður megi breiðast um gerv-
alla eyju vora og að hann megi haldast ekki aðeins þessa þrjá þingdaga, held-
ur ríkja meðal vor alla ársins daga og svo mörg ár, sem menn eiga hér bú og
bólstað.33
Undirstaða friðar og blómgunar mannlífs er að menn komi sér
saman um að halda í heiðri ákveðin lög og reglur um samskipti