Skírnir - 01.09.1998, Blaðsíða 49
SKÍRNIR ÁGRIP AF KRISTNUM HJÓNABANDSSKILNINGI
319
Umfjöllun Lúthers um hjónahandið
Umfjöllun Lúthers um hjónabandið mótast af tveimur spurning-
um sem hvíldu á samtíðarmönnum hans.27 Fyrri spurningin er sú
hvort væri æðra einlífi eða hjónaband. Sú síðari er hvort hjóna-
bandið sé sakramenti. I svörum sínum ítrekar Lúther hinn biblíu-
lega skilning á hjónabandinu og gagnrýnir harkalega þá grísku
tvíhyggju milli holds og anda sem markaði hjónabandsskilning
guðfræðinga á miðöldum. Óhætt er að fullyrða að viss líkamsfyr-
irlitning hafi ríkt í kenningu miðaldakirkjunnar um hjónabandið
og kynlífið.28 Ahrif grískrar heimspeki, bæði nýplatónismans og
Aristótelesar, voru mikil innan kirkjunnar, sem kom m.a. fram í
þeim skilningi að hið veraldlega líf, með öllum þess holdlegu
gæðum, væri einungis skuggi þeirrar andlegu sælu sem biði
manna að lífinu loknu. Menn áttu að undirbúa sig fyrir hana og
einn meginþátturinn í þeim undirbúningi var að forðast allt sem
tengdist holdinu, þar á meðal samlíf kynjanna. Hjónabandið var
að vísu lofað af kirkjunni í ljósi þeirrar nauðsynjar að viðhalda
þjóðinni og sjá um uppeldi barna. Hin andlega stétt var hins veg-
ar yfir hjónabandið sett; samlíf hjóna féll undir synd og var jafn-
27 WA 2, 166-71 (Sermon von dem ehelichen Stande, 1519); WA 6, 550-60 (De
captivitate Babylonica, 1520); WA 8, 573-669 (De votis monasticis iudicium,
1521); WA 10 II, 275-304 (Vom ehelichen Leben, 1522); WA 12, 92-142 (Das
siebente Kapitel S. Pauli zu den Corinthern, 1523); WA 18, 275-78 (Christ-
liche Schrift an W. Reiíienbusch, sich in den ehelichen Stand zu begeben,
1525); WA 30 II, 74 (Traubuchlein 1529); WA 30 III, 205-48 (Von Ehesachen,
1530). Hjónabandsprédikanir Lúthers út frá Jh 2.1-11 er að finna í D. Martin
Luthers Evangelien-Auslegung. Vierter Teil. Das Johannes-Evanglium mit
Ausnahme der Passionstexte, ritstj. Erwin Múhlhaupt, Vandenhoeck &
Ruprecht, Göttingen 1954, 96-111. Sjá nánar Albrecht Peters: Kommentar zu
Luthers Katechismen Bd. 1, Vandenhoeck & Ruprecht, Göttingen 1990, 225-
53; Albrecht Peters: Kommentar zu Luthers Katechismen Bd. 5, Vandenhoeck
& Ruprecht, Göttingen 1994, 119-55.
28 Um hjónabandsskilning miðaldakirkjunnar sjá Ranke-Heinemann: Eunuchen
fiir das Himmelreich. Katholische Kirche und Sexualitdt, 50-67, 81-104, 158-
222; Henri Crouzel: „Ehe/Eherecht/Ehescheidung V. Alte Kirche“,
Tbeologische Realenzyklopadie IX, Walter de Gruyter, Berlin 1982, 325-30;
Leendert Brink: „Ehe/Eherecht/Ehescheidung VI. Mittelalter", Theologische
Realenzyklopddie IX, Walter de Gruyter, Berlín 1982, 330-36; Hermann
Ringeling: Theologie und Sexualitdt. Das private Verhalten als Thema der
Sozialethik, Gútersloher Verlagshaus Gerd Mohn, Gútersloh 1968, 9-47.