Skírnir - 01.09.1998, Blaðsíða 52
322
SIGURJÓN ÁRNI EYJÓLFSSON
SKÍRNIR
Hjónaástin brennur sem eldur og leitar einskis nema maka síns; hún seg-
ir: Ég vil þig, ég vil hvorki gull né silfur, hvorki þetta né hitt, ég vil þig,
ég vil þig, annars ekkert. Öll önnur ást leitar að einhverju, en ást karls og
konu binst þeim sem hún elskar. Þessi ást vill alfarið þann sem hún elsk-
ar. Og hefði Adam ekki fallið væru brúður og brúðgumi það besta sem
til væri.35
Af þessum sökum er ómögulegt fyrir karl og konu að skilja á
milli andlegrar og holdlegrar ástar í hjónabandi sínu, ástin er
heild og leitar stöðugt að sameiningu. Að greina hér á milli væri
eins og að setja hálm og eld hlið við hlið og banna þeim að
brenna. Astin er sem eilífur eldur þrár og sameiningar.36
Lúther var raunsær og trúr framsetningu Biblíunnar á falli
mannsins. Hann sá að hér í heimi var ekki allt með felldu. Mað-
urinn er firrtur frá sköpunarvilja Guðs og sá veruleiki mótar ást
og ástarsambönd hans. Astin er ekki lengur hrein og skilyrðislaus
heldur hefur hún blindast af sjálfri þörfinni og sér ekki sem
skyldi þá persónu sem hún þráir. Gleðin yfir hvötunum víkur
fyrir fíkn sem verður að fullnægja. Þess vegna sagði Lúther: „I
Paradís var slíkt ánægjulegt og hjónabandið einnig, því þá var
ekki slík fíkn og losti“, en nú er hold og blóð okkar orðið annað
og veldur okkur miklum erfiðleikum.37
Þrátt fyrir þessa stöðu er hjónabandið gott og Guði þóknan-
legt, segir Lúther. Guð stofnaði það í Paradís og sú stofnun
stendur, en fær nú viðameira hlutverk og verður enn frekar að
heimili og heilsulind mannsins. Það er griðastaður og vígi gegn
óheftum losta, sem leiðir menn á villigötur. Hér gætir áhrifa frá
Ágústínusi í hugsun Lúthers. Lúther lítur þannig á að hjónaband-
ið setji þrá mannsins þann ramma sem hann þarfnast til að geta
fengið henni fullnægt: „Án hjónabandsins leiðir kynhvötin
manninn í ólifnað og annan ósóma, sem skaðar ekki einungis sál-
ina, heldur líkamann, eignir, virðingu og vináttu.“38 Hann skildi
35 WA 2, 167 (Ein Sermon von dem ehelichen Stand, 1519).
36 BSLK, 614.
37 WA 2, 167 (Ein Sermon von dem ehelichen Stand, 1519). WA Tr 3, nr. 3508
(16.-18. desember 1536).
38 Paul Althaus: Die Ethik Martin Luthers, Gútersloher Verlagshaus Gerd
Mohn, Gutersloh 1965, 90.