Skírnir - 01.09.1998, Blaðsíða 120
390
SVEINN EINARSSON
SKÍRNIR
fluttust oft milli plássa og blésu þá lífi í leikstarfsemi á nýjum
stað; gott dæmi er þegar Schiöth-fólk flyst frá Akureyri til Eski-
fjarðar og tekur þar til óspilltra mála við leiksýningar, sem höfðu
verið stopular áður.15
Annað sem mótaði leikstarfsemina á frumbýlisárunum voru
skólarnir og gætir áhrifa þeirra víða. Þórður Thoroddsen læknir
tekur t.d. þátt í leikstarfsemi þegar hann er í Lærða skólanum,
gerist kennari á Möðruvöllum um skeið, þegar leikstarfsemi er að
vakna þar og stendur loks fyrir fyrstu leiksýningunni (á Nýárs-
nóttinni) í Keflavík veturinn 1884-85, eftir að hann er orðinn hér-
aðslæknir þar. Um aldamótin 1900 eru nokkrir leikir fluttir í
Haga í Aðaldal og í hlöðunni á Syðra-Fjalli; forvígismenn voru
Möðruvellingar og höfðu kynnst leikjum þar.16 Mörg önnur slík
dæmi má rekja, t.d. í Svarfaðardal og Grindavík. Frá Grund virð-
ast ennfremur liggja þræðir að fyrstu leiksýningum í Skagafirði,
og úr Eyjafirði liggja líka þræðir að Núpi í Dýrafirði.17
Oftlega standa ákveðin félög fyrir þeim leiksýningum sem hér
hafa verið nefndar, einkum þó í plássunum. Var fyrirmynd þess-
ara félaga trúlega sótt til Reykjavíkur, þar sem sú venja hafði
skapast að þeir sem stóðu fyrir leikjum hverju sinni, oftast eina
vertíð í einu, mynduðu með sér félag, „einn fyrir alla og allir fyrir
einn“. Það sama gilti úti á landsbyggðinni þegar um eiginleg leik-
félög var að ræða, eins og á Isafirði, Akureyri, Sauðárkróki og
Seyðisfirði. En síðan voru þess mýmörg dæmi að félög, sem
höfðu önnur meginmarkmið, stæðu að leiksýningum, til dæmis í
fjáröflunarskyni, enda ekki til siðs að greiða aðstandendum og
þátttakendum fyrir þeirra framlag. Hér má nefna verkalýðs- og
sjómannafélög í Reykjavík, á Eyrarbakka, Seyðisfirði og Siglu-
firði, kvenréttindafélög, kvenfélög og líknarfélög í Reykjavík, á
Sauðárkróki, Seyðisfirði og Akureyri, og ekki síst góðtemplarafé-
15 Sjá Eskju III (1981), 90 og áfr.; Vilhjálmur S. Vilhjálmsson: Heim til Islands:
endurminningar hjónanna Elísahetar Helgadóttur og Thor J. Brand (1967), 36.
16 Meðal þeirra voru Jóhannes Þorkelsson, faðir Þorkels háskólarektors og Jó-
hannes Friðlaugsson. Upplýsingar frá Snæ Jóhannessyni (syni Jóhannesar
Friðlaugssonar) og Ásu Ketilsdóttur, sbr. viðauka.
17 Sigtryggur Guðlaugsson hafði kynnst leiklist í Eyjafirði áður en hann fluttist
vestur að Núpi.