Skírnir - 01.09.1998, Blaðsíða 121
SKÍRNIR
LEIKIÐ í HLÖÐUM OG Á PAKKHÚSLOFTUM
391
lög, sem víða reistu samkomuhús er urðu forsenda fyrir áfram-
haldandi leikstarfsemi.
Leikstarfsemi ýmissa félaga í Reykjavík, annarra en Leikfélags
Reykjavíkur, kallast á við leikstarfsemina á landsbyggðinni. Sú
saga hefur víða verið rakin, m.a. í bókunum Islensk leiklist I og II
og verður ekki sögð hér. Þó má geta Thorvaldsensfélagsins, sem
réðst í leiksýningar 1878, þremur árum eftir að það var stofnað,
og sýndi þá tvö íslensk leikrit og eitt danskt (á dönsku). Aftur var
leikið á vegum félagsins árið 1895 og loks hélt félagið fyrstu leik-
sýninguna í Iðnó, hinn 27. febrúar 1897, áður en Leikfélag
Reykjavíkur hóf þar starfsemi. Annað kvenfélag, Hringurinn,
stóð ennfremur fyrir sýningum á þriggja þátta leikriti eftir Edgar
Hoyer 1915 og sömuleiðis sýndi Kvenréttindafélagið Mann og
konu, eða kafla úr bókinni 1919, og lék Bríet Bjarnhéðinsdóttir
Þórdísi í Hlíð. Sjómannafélagið Báran efndi til sýninga í Glasgow
1896 og árið 1900 léku sjómenn enn og nú í Fjalakettinum.18
Skriðan fer af stað
Fyrsta leiksýning utan Reykjavíkur, sem vitað er um á Islandi
(utan Herranætur og e.t.v. eldri leikhefða), á sér stað á Isafirði
veturinn 1856-57 eða 1857-58. Leikinn var skólapiltaleikurinn
Hrólfur, fyrst fluttur í hálfbyggðu kaupmannshúsi, síðar í hálf-
byggðri kirkju.19 Næst höfum við pata af sýningu haustið 1859 á
Grafarósi (við Hofsós) og berast þar böndin að dönskum faktor,
Moller að nafni, ættföður Molleranna á Sauðárkróki.20 Sýningin
ýtir við Akureyringum og þar mun hafa verið leikið í fyrsta skipti
18. nóvember 1860 (á dönsku) og voru viðfangsefnin tveir dansk-
ir söngvaleikir, Audiensen eftir Herz og Intrigerne eftir Hostrup.
Eins og áður segir upphefjast nálega samtímis íslenskir leikir á
Grund.
18 Heimildir um Thorvaldsensfélagið eru frá frú Þóru Karítas Árnadóttur;
skýrsla um Thorvaldsensfélagið eftir Þórunni Jónassen, handskrifuð (ljós-
prent). Sjá ennfremur Islensk leiklist II, 90.
19 íslensk leiklist I, 359, nmgr. 19.
20 tslensk leiklist I, 336, sbr. bréf frá Kristmundi Bjarnasyni til Helga Hálfdanar-
sonar (í ljósriti hjá greinarhöfundi), dags. 19. mars 1997; sjá ennfremur Mann-
tal (1860).