Skírnir - 01.09.1998, Blaðsíða 247
SKÍRNIR
ÓSEGJANLEG ÁST
517
Usli í Undralandi
Hve þröngt erþað hlið og mjór
sá vegur, er liggur til lífsins,
[og fáirþeir, semfinna hann.\
(Matteus 7:14)92
Ástin á erfitt uppdráttar í Dyrunum þröngu, rétt eins og í 2: Astarsögu
og Þeirri kvöldu ást. Hún er þó ekki „dauðadæmd" með sama hætti,
jafnvel þó að mark dauðans hangi yfir dyrunum. Þau ástarsambönd, af
öllum toga, sem reynt er að stofna til, frá upphafi til enda, verða að vísu
að engu en frásögnin er ekki lokuð og dyrnar standa galopnar í bókar-
lok. Það gætir hvorki ljóðrænnar tilfinningasemi, eins og hjá Vigdísi, né
beiskjublandinnar kaldhæðni, eins og hjá Guðbergi. Aðalsöguhetjan er
ekki fórnarlamb og þrátt fyrir biblíuvísun í sjálfum titli bókarinnar er
enga kristslíkingu að finna.93 Þrátt fyrir myrðingar og misheppnaðar ást-
farir ómar í textanum jákvæðni, leikgleði, frelsi frá fortíð og óttaleysi við
framtíð. En frásagnarrýmið er að vísu ekki „raunsæislegt" heldur
draumaheimur og fantasía, nokkurs konar ævintýraland.
Sagan hefst á Silkieyju þar sem Þórunn Björnsdóttir er stödd ásamt
eiginmanni sínum. Þau hjónin eru að Ijúka löngu ferðalagi um suðurhvel
jarðar94 og hyggjast heimsækja borgina Dyrnar þröngu áður en þau
halda heim á leið, til Islands. Þetta gagnkynhneigða, „streit", samband
endist þó ekki fyrstu blaðsíðuna, því það getur enginn fylgt Þórunni
þangað sem hún fer. Eiginmaðurinn veikist skyndilega og er þar með úr
sögunni, strax í annarri málsgrein. Þórunn gerist því könnuður og ger-
andi, í bága við frásagnarhefðina, og heldur áfram ein síns liðs til
vikudvalar95 í Dyrunum þröngu, „laus við beyg og full eftirvæntingar
um áfangastaðinn" (9). Ljóst er frá upphafi að Þórunn á ekki venjulega
92 Hornklofar mínir.
93 Þórunn er að vísu kennd við guðsson (þ.e. Þór) en hún er 32 ára en ekki 33
þegar hún gengur sína píslargötu: Trúarlegar vísanir í sögunni og píslarvætti
eru skopstælingar.
94 Sem væri hægt að kalla „spegilmynd" norðurhvels eða (ímyndaða) andstæðu
þess. Vert er að hafa í huga að Lísa kemst einmitt til Undralands í gegnum
spegilinn í Through the Looking Glass eftir Lewis Carroll.
95 Sjö dagar ku henta ágætlega til sköpunarverka (sbr. „öfuga“ sköpunarsagan í
Þeirri kvöldu ást)! Ef til vill fer Þórunn ferðina til að (endur)skapa sjálfsmynd
sína og sjálfa sig. Talan sjö kemur reyndar ítrekað fyrir í skáldsögunni.