Vestfirska fréttablaðið - 02.03.1978, Blaðsíða 9
jafns við fjárveitingu frá
ríkinu, telur ráðið það ut-
an síns verkahrings að svo
komnu máli að veita því
fjárstuðning nema sér-
stakt tilefni sé til.
Engu að síður telurráð-
ið mikilvægt að hafa
nána samvinnu við L.L.
og vera honum til liðsinn-
is eftir þörfum m.a.
með fyrirgreiðslu vegna
atvinnuleikstjóra.
Þá vill ráðið beita sér
fyrir að atvinnuleikhús
landsins - leggi hingað
leið sína a.m.k. einu sinni
á ári hvert þeirra. Verði
ráðið þeim til aðstoðar
eftir því sem þörf er á, en
taki þó ekki á sig kostnað
í því sambandi annan en
venjulegan móttöku-
kostnað af hendi bæjarfé-
lagsins.
3. Myndlistarsýning-
ar og fyrirlestrar um
myndlist
(6 sýningar) 185.000
3.0 Efnt verði til einnar
stórrar myndlistarsýning-
ar árlega þar sem einum
til tveimur listamönnum
verði boðið hingað til að
kynna verk sín og í því
sambandi fluttur fyrir-
lestur um myndlist.
Þá gangist ráðið fyrir
að fá hingað fjórar aðrar
sýningar á árinu, sem
verði sölusýningar, og
taki ráðið ekki kostnað
þeirra vegna, svo að
nokkru nemi.
Þá vill ráðið hlutast til
um að opinber söfn sendi
hingað sýningar a.m.k.
eina á á ári, án þess að
um kostnað af hendi ráðs-
ins sé að ræða annan en
fyrirgreiðslu við móttöku
og sendingu.
4. Tónlistarkynningar
(6 sinnum á ári)
880.000
4.0 samráði við Tónlist-
arfélag ísafjarðar eru á-
ætlaðir 6 hljómleikar á
árinu til kynningar tón-
listar, ýmist einleikstón-
leikar eða 2-3-4 hljómlist-
armenn saman, þannig
að gert sé ráð fyrir að
samtals 12 hljómlistar-
menn komi hingað á ár-
inu.
Ráðið telur hagkvæmt
að fela Tónlistarfélaginu
framkvæmdir tónlistar-
kynningar eins og á und-
anförnum árum, en veita
því stóraukinn styrk ti!
þeirra þannig að félagið
hafi bolmagn til að fá
hingað bestu listamenn
landsins, og aðra þá er
líklegir eru til að vekja
áhuga bæjarbúa á góðri
tónlist.
5. Sunnukórinn
300.000
5.0 Sunnukórinn hefur
um áratuga skeið verið
hin helsta lyftistöng tón-
listar í bæjarfélaginu og
sungið án endurgjalds á
vegum bæjarins, hvenær
sem þess hefur verið ó-
skað, auk sjálfstæðra tón-
leika árlega og stundum
margra.
Með hliðsjón af þessu
starfi kórsins vill ráðið
hækka verulega hinn ár-
lega styrk til kórsins, en
hann var á s.l. ári
180.000.
6. Kammersveit Vest-
fjarða 100.000
6.0 Kammersveit Vest-
fjarða er ung að árum en
hefur þó þegar getið sér
gott orð og er orðin þörf
stofnun í bæjarfélaginu.
Ráðið telur rétt að
hlynna að starfsemi
hennar, enda sé gert ráð
fyrir að hún haldi a.m.k.
eina tónleika á árinu.
7. Taflfélag ísafjarðar
200.000
7.0 Taflfélag ísafjarðar
heldur uppi öflugu starfi
meðal félagsmanna
sinna, en fjárskortur
hamlar ýmsum fram-
kvæmdum þess. Ráðið
telur réttmætt að veita
félaginu fjárstuðning til
að útvega hingað skák-
kennara til kennslu og
þjálfunar ísfirskum skák-
mönnum.
8. Sögufélag ísfirð-
inga 300.000
8.0 Sögufélag ísfirðinga
hefur um 20 ára skeið
gefið út myndarlegt ársrit
og með tilliti til aukins
útgáfukostnaðar vill
Menningarráð veita fé-
laginu nokkurn fjárstyrk.
9. Ýmis útgjöld
35.000
9.0 Síma- og auglýs-
ingakostnaður vegna ým-
issar starfsemi ráðsins.
o
— Sighvatur
- ríksistjórnin og þing-
meirihluti hennar - hafa
haldið á þeim. Til dæmis
að nefna hefur okkur ver-
ið svo naumt skammtað
fé á vegaáætlun, að Vest-
firðingar hafa á kjörtíma-
bilinu ekki getað ráðist í
neitt umtalsvert stórvirki
í vegamálum og bíða þau
þó mörg úrlausnar. Til
dæmis má nefna varan-
lega vegagerð yfir Breiða-
dalsheiði, gerð vegsvala á
Öshlíð, tengingu Djúp-
vegar, og brúargerð yfir
Dýrafjörð, svo og brúar-
gerð, eða sambærilegar
vegabætur í Önundar-
firði. Á sama tíma og ekk-
ert hefur verið gert af
þessu á Vestfjörðum hef-
ur verið ráðist í stórvirki í
öðrum landshlutum.
Uggvægilegt ástand í hafn-
armálum.
Þá er ástandið í hafn-
armálum Vestfirðinga
orðið uggvænlegt nú í lok
kjörtímabilsins. í Súðavík
hefur verið hætt við
hálfnað verk, sem átti að
ljúka á árinu, og stendur
þar nú hálfbyggður hafn-
argarður, sem engum
kemur að notum og eng-
inn veit hvenær áfram
verður haldið. Á ísafirði
hefur engin ákvörðun
verið tekin enn um næstu
hafnargerðarverkefni og
ástæða er til að óttast að
ráðamenn munu beita sér
gegn áætlunum heima-
manna um gerð dráttar-
brautar. Á Suðureyri eru
engar framkvæmdir fyrir-
hugaðar. Á Tálknafirði
hefur ekkert verið unnið í
hafnarmálum og raunar
nær engu fé verið veitt til
eins eða neins á kjörtíma-
bilinu. Á Patreksfirði má
segja að aðeins hafi verið
gerðar lágmarksneyðar-
ráðstafanir til að hægt sé
að nota höfnina þar á-
fram, og jafnvel verið
hafnað umsókn sveitar-
stjórnar um greiðslu á
kostnaðarhluta ríkisins,
við þær framkvæmdir,
sem þegar hafa verið
unnar og greiddar af
sveitarfélaginu. Þetta eru
aðeins nokkur dæmi um
ástandið í hafnarmálum,
og sér hver maður hvaða
afleiðingar slíkt ástand
getur haft fyrir byggðar-
lög, sem eru jafn háð sjó-
sókn og byggðirnar á
Vestfjörðum.
Greinargerð Sighvatar
Björgvinssonar er all-
miklu lengri, og verður
síðari hluti hennar í
næstu blaði.
o
— Sólrisuhátíð
anförnu og hlotið mjög
góðar viðtökur. Sigurður
A. Magnússon heldur fyr-
irlestur um bandarískar
nútímabókmenntir og
nokkrir nemendur úr
M.í. lesa úr verkum höf-
unda. Einnig kemur
hingað kór Menntaskól-
ans við Sund og mun
hann flytja létt sönglög.
Að venju verður haldinn
dansleikur, og í ár leikur
hljómsveitin Tívolí fyrir
dansi. í lok hátíðarinnar
er fyrirhugað að Megas
og tveir ungir menn frá
Reykjavík haldi skemmti-
kvöld. Alla dagana sem
hátíðin stendur yfir mun
Svala Sigurleifsdóttir frá
ísafirði halda sýningu á
verkum sínum í sal Bóka-
safns ísafjarðar. Þar verða
verk gerð með akríl og
olíu á striga og efnið
tengt fsafirði. Eins og sjá
má verður ýmislegt um
að vera og ættu því flestir
að geta fundið eitthvað á
dagskránni við sitt hæfi.
A.Þ.
— Efstir á lista
son, skólastjóri, Kristján
Jónasson, framkvæmda-
stjóri og Marías Þ. Guð-
mundsson, framkvæmda-
stjóri. S.l. sunnudag fór
svo fram prófkjör, þar
sem kosið var um þessa
þrjá menn. Féllu atkvæði
þannig að Kristján Jónas-
son hlaut 101 atkvæði,
Marías Þ. Guðmundsson
86 atkvæði og Kjartan
Sigurjónsson 52 atkvæði.
Auðir seðlar og ógildir
voru 9, en 248 kusu.
Er því ljóst að Kristján
Jónasson mun skipa
fyrsta sæti framboðslista
Alþýðuflokksins til bæjar-
stjórnarkosninga í vor.
Jakob Ólafsson, fyrrv.
rafveitustjóri mun skipa
annað sæti og Snorri Her-
mannsson, húsasmíða-
meistari þriðja sæti list-
ans. Um listann að öðru
leyti ákveður Alþýðu-
flokksfélag fsafjarðar.
ás.
O — Munu
auglýsa
fyrir bæjarráð sl. haust.
Lögð verður áhersla á
vinnu við æskulýðs og í-
þróttamál, en einnig að
skipuleggja rekstur og
uppbyggingu íþrðtta-
mannvirkja.
Ætlunin er að ráða í
starfið í vor.
ás.
o
— Rauðhetta
María Björk Traustadótt-
ir, Sigurborg Kristjáns-
dóttir, Þórdís Guðmunds-
dóttir og Vernharður
Guðnason. Leikmynd
gerði Margrét Óskardótt-
ir, framkvæmdastjóri er
Trausti Hermansson, út-
Fasteigniii
Móholt 10, glæsilegt ein-
býlishús m/tvöföldum bíl-
skúr. Selst í fokheldu á-
standi. Afhendist seinni
part sumars.
Túngata 20, jarðhæö, 2
herb. íbúð, 58 ferm. Góð
og hagkvæm íbúð. Laus til
afnota 1. maí n.k.
Bílgeymsla við Fjarðar-
stræti, 44 ferm. að stærð.
Laus til afnota með mjög
skömmum fyrirvara.
Túngata 5, suðurendi, 4
herb. íbúð á tveimur hæð-
um með rúmgóðum kjall-
ara og rislofti. Möguleiki
fyrir bílgeymslu á lóð. Laus
til afnota með skömmum
fyrirvara.
Hafnarstræti 8, 3 hæð, 108
fermetra 4 herb. íbúð á
besta stað í bænum. Laust
til afnota í vor.
Seljalandsvegur 72, neðri
hæð, 2. herb. íbúð í tvíbýl-
ishúsi. Snyrtileg íbúð með
góðum garði. Laus til af-
nota í september.
Miðstræti 10, efri hæð, Bol-
ungarvík, 99 fermetra 3
herb. íbúð. Snotur íbúð.
Rafmagnskynding.
Ásgarður, Tálknafirði, efri
og neðri hæð, þriggja og
fimm herbergja íbúðir, hvor
um sig meö sérinngangi.
Tryggvi
Guðmundsson,
LÖGFRÆÐINGUR
Silfurtorgi 1, sími 3940
sendingu og undirleik
annast Hörður Ingólfsson
og dansa æfðu þær Guð-
ríður Sigurðardóttir og
Rannveig Eálsdóttir.
Rauðhetta er eins og
fyrr segir ævintýraleikur í
3 þáttum með fjölbreyttu
sviði, dönsum, söngvum
og alls konar dýr koma
fram og segja þeir sem til
þekkja að þetta leikrit sé
jafnt fyrir börn sem full-
orðna. Þess má geta að
Rauðhetta hefur verið
sýnd bæði á Akureyri og í
Vestmannaeyjum og
hlotið mjög góða dóma.
o
— Nefnd skipuð
Sveinsson, en hann
er tilnefndur af Sögu-
félagi ísfirðinga.
S.l. sumar var hafin
vinna við viðgerð á Fakt-
orshúsinu í Neðstakaup-
stað og hefur verið unnið
við það síðan í samráði
við Þjóðminjasafn fs-
lands. Húsafriðunarsjóð-
ur hefur lagt til viðgerð-
arinnar um það bil tvær
millj. króna, en að öðru
leyti hefur bæjarsjóður
Isafjarðar staðið undir
kostnaði við verkið.