Vestfirska fréttablaðið - 15.03.1978, Blaðsíða 6
6
Um seinustu mánaða-
mót minntist Skátafélagið
Einherjar þess. að 50 ár
voru liðin frá stofnun félags-
ins, en það var stofnað 29.
febrúar 1928.
Einherjar minntust þess-
ara merku tímamóta með
fjölmennu hófi í Skátaheim-
ilinu 28. febrúar s.l., þar
sem ekki er hlaupár í ár, og
stjórnaði Gunnar Jónsson
hófinu, en að borðhaldi
loknu var varðeldur, sem
félagsforingi Einherja,
Kjartan Júlíusson, stjórnaði.
Á þeim árum, sem Ein-
herjar hafa starfað, hafa ver-
ið 5 félagsforingjar í félag-
inu og voru þeir fjórir, sem
Einnig töluðu Kristín
Oddsdóttir, félagsforingi
kvenskátafélagsins Valkyrj-
an, ogHafsteinn O. Hannes-
son, sem bæði færðu félag-
inu góðar gjafir. Hafsteinn
og kona hans, Kristín Bárð-
ardóttir, voru einu heiðurs-
gestir samkomunnar, þar
sem öðrum boðsgestum gaf
ekki að fljúga til Isafjarðar
vegna óhagstæðra veðurskil-
yrða.
Félaginu barst fjöldi
góðra gjafa í tilefni afmælis-
ins, ásamt kveðjum og
heillaóskum víðsvegar að.
Flestar voru þær frá göml-
um Einherjum, sem minnt-
ust á hlýjan hátt veru sinnar
Einherjar á landsmóti skáta á Hreðavatni 1943.
Ingvar Jónasson, Albert Karl Sanders, Guðfinnur Magnússon, Jón Páll Halldórsson, Gunnlaugur
Jónasson, fsak Sigurðsson, Guðbjartur Finnbjörnsson, Hilmar Ólafsson, Karl Salomonsson,
Baldur Guðjónsson.
Skátafélagið Einherjar 50 ára
Frá Skátamóti Vestfjarða f Skálavík I965.
nú eru á lífi mættir í hófinu.
Fyrsti félagsforingi Einherja
var Gunnar Andrew, sem
látinn er fyrir nokkrum ár-
um, og var hann félagsfor-
ingi fyrstu 13 starfsár félags-
ins. Hinir fjórir eru Haf-
steinn O. Hannesson, sem
einnig var félagsforingi í 13
ár, Gunnlaugur Jónasson í 5
ár, Jón Páll Halldórsson, í
17 ár og Kjartan Júlíusson,
sem hefir verið félagsforingi
síðustu 2 árin.
I afmælishófinu rakti Jón
Páll Halldórsson stuttlega
sögu félagsins, en Konráð
Jakobsson rifjaði upp gaml-
ar endurminningar í léttum
og gamansömum tón.
í félaginu. Þar á meðal
voru kveðjur frá dr. Áskeli
Löve, sem nú er búsettur
vestur við Kyrrahafsströnd,
en hann var félagi í Einherj-
um fyrir nærri hálfri öld,
Haraldi Ólafssyni, banka-
fulltrúa í Reykjavík, með
fallegri gjöf og fyrirheiti um
að gefa félaginu filmusafn
sitt, sem hann tók meðan
hann starfaði í félaginu, og
af ýmsum stofnendum fé-
lagsins. Félagsforinginn.
Kjartan Júliusson, þakkaði
góðar gjafir og vináttu í
garð félagsins.
Á sunnudaginn höfðu Ein-
herjar opið hús í Skátaheim-
ilinu, þar sem þeir kynntu
starfsemi félagsins, en fyrir
utan húsið var sýndur
margvíslegur búnaður
hjálparsveitarinnar. Um
300 gestir heimsóttu félagið
á sunnudaginn og þáðu góð-
ar veitingar, sem yngri skát-
arnir báru fram.
Meðal gesta var fulltrúi
stjórnar Bandalags ísl.
skáta, frú Kolbrún Sæm-
undsdóttir, ritari stjórnar-
innar, sem flutti félaginu
kveðjur B.I.S. og afhenti því
fagran veggsköld frá banda-
laginu. Einnig afhenti hún
Jóni Páli Halldórssyni heið-
ursmerkið Skátakveðjan,
næstæðsta heiðursmerki
B.S.Í., fyrir mikil og vel unn-
in störf í þágu félagsins og
skátahreyfingarinnar.
Afmælisfagnaðinum lauk
svo með flugeldasýningu
hjálparsveitarinnar á
sunnudagskvöldið.
í sumar hyggjast Einherj-
ar efna til skátamóts
fyrirVestfjarðaskáta, ásamt
kvenskátafélaginu Valkyrj-
an, enkvenskátarnir eiga 50
ára afmæli 17. maí í vor.
Vilja felögin með því minn-
ast 50 ára skátastarfs á ísa-
firði og er ætlunin að bjóða
skátum víðsvegar að af
landinu til þess móts.
Skátafélagið Einherjar
var stofnað að tilhlutan í-
þróttafélagsins Magna, sem
hafði starfað hér með mikl-
um blóma um nokkurt
skeið. Hafði formaður fé-
lagsins, Gunnar Andrew, í-
þróttakennari, fengið tvo
skátaforingja frá Reykja-
vík, Hendrik W. Ágústsson,
prentsmiðjustjóra, sem lést
árið 1967, og Leif Guð-
mundsson, núverandi for-
stjóra Mjólkurfélags
Reykjavíkur, til að koma
vestur og leiðbeina skátun-
um og undirbúa stofnun fé-
lagsins. Báðir höfðu þeir
starfað um árabil í Skátafé-
laginu Væringjar í Reykja-
vík. Stofnendur félagsins
voru 14. Af þeim eru nú 5
látnir, einn er búsettur hér á
ísafxrði, Ágúst Leós., kaup-
maður, en 8 eru búsettir í
Reykjavík og nágrenni. Á.
öðru starfsári byggði félagið
útileguskála sinn, Valhöll í
Tungudal. Hófu Einherjar
þá að stunda skíðaíþróttina
af kappi og tóku þátt í
fjölda skíðamóta á árunum
1934-1945. Átti félagið á
þessum árum marga af
bestu skíðamönnum lands-
ins. Hafa skíðaferðir og vetr-
arskátun alla tíð verið snar
þáttur! starfsemi félagsins.
Á fyrstu árum félagsins
fékk það inni með starfsemi
sína á ýmsum stöðum í
bænum, en árið 1938 tók
það þátt í byggingu Dag-
heimilsins og hafði þar að-
stöðu fyrir starfsemi sína um
tíma. Árið 1947 keypti fé-
lagið svo Skátaheimilið við
Mjallargötu, þar sem félag-
ið var stofnað, en það hafði
þá verið notað sem íþrótta-
hús um nokkurt árabil. Hef-
ir það síðan hýst allt skáta-
starf á ísafirði.
Flest æskulýðsfélög eiga
við mikla fjárhagsörðugleika
að etja og njóta velflest
stórra styrkja frá viðkom-
andi sveitarfélögum. Fyrstu
20 árin reyndust Einherjum
einnig fjárhagslega erfið,
eins og fleirum, en þeir öfl-
uðu tekna fyrir starfsemi
sína með ýmsu móti, hnýttu
á tauma, seldu merki, kaffi-
veitingar og héldu skemmti-
samkomur og hlutaveltur,
svo fátt sé nefnt. Síðustu 30
árin hafa Einherjar selt
heillaóskir á fermingardag-
Framhald á 10. síðu
Þrestir, Einherjum. Valinn „besti flokkurinn" 1933—1934.
Sveinn Elfasson, Bolli Gunnarsson, Gunnlaugur Pálsson, Einar
Ásgeirsson, Hjálmar R. Bárðarson, Stefán Ólafsson.