Vestfirska fréttablaðið - 31.03.1978, Page 1
díétíaMaÁiÁ ísafjöröur 31.mars 1978 — 4. árgangur — 6. tölublað Stakir dömujakkar * Stakir herrajakkar Fermingarfötin Stúlkur — Drengir
Afgreiöslan á ísafjaröarflugvelli, Sími 3400 Afgreiðslan Aöalstræti 24, sími 3410 FLUGFELAG 1HFTI Flfílfí ^ /SLA/VDS
Verslunin ísafirði sími 3507
Gerlarannsóknarstofa á vegum
Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins
Um áramót hófst vinna viö innréttingu
gerlarannsóknarstofu viö útibú Rannsóknar-
stofnunar fiskiönaöarins á ísafirði. Flest tæki
og áhöld hafa nú verið sett upp í stofunni og
tekur hún til starfa nú í vikunni.
Jón Jóhannesson, efnafræðingur á efnarannsóknarstofunni.
Sigurlinni Sigurlinnason, gerlafræðingur á gerlarannsóknar-
stofunni.
Gerlarannsóknarstof-
unni er ætlað að annast
helstu gerlamælingar á
sjávarafuðrum, svo sem
heildargerlatalningu, á-
samt kólígerla og stafylok-
okkagreiningu. Aðrar
gerlaathuganir mun stofan
annast, eftir því sem efni
standa til.
Starfsemin hefst með úr-
vinnslu sýna frá rækju-
vinnslustöðvunum. Sam-
starf verður haft við fiski-
matsmenn á staðnum um
sýnatöku. Heilbrigðiseftir-
lit mun væntanlega not-
færa sér aðstöðuna og verð-
ur samstarf einnig haft við
þessa aðila. Öllum er
frjálst að senda sýni til
rannsókna. Verð á rann-
sókn er sem stendur 2-3
þús. krónur fyrir hvert
sýni, og fer eftir því hve
ýtarleg rannsóknin er.
Gerlarannsóknarstofan
er búin öllum helstu tækj-
um sem þarf til venju-
bundinna gerlarannsókna.
Má þar nefna þrýstisjóðara
til dauðhreinsunar. I sjóð-
aranum eru öll næringar-
Framhald á 4. afðu
Sólrisuhátíð Listafélags
Menntaskólans á ísafirði
Dagana 5. til 12, mars s.l.
hélt Listafélag M.í. sína ár-
legu Sólrisuhátíð. Sólrisuhá-
tíðin er orðin fastur liður og
kærkominn í menningarlífi
bæjarins og eiga aðstand-
endur hennar heiður skilinn
fyrir þetta framtak. VF hafði
samband við formann Listafé-
iag M.Í., Arndísi og spurði
frétta af nýlokinni „Sólrisu".
„Hvernig finnst þér hafa
tekist til með Sólrisuhátíð-
ina að þessu sinni?“
„Bara vel. Að vísu varð
röskun á auglýstri dagskrá
strax i upphafi og kom það
sér illa fyrir marga. Það er
erfitt að treysta á sam-
göngurnar hér, eins og allir
vita, en við það verðum
við bara að sætta okkur.“
„Hvað hefur undirbún-
ingur hátíðarinnar staðið
lengi?“
„Hann hefur staðið allt
frá áramótum. Framan af
var ég aðallega ein í þessu
sem formaður Listafélags-
ins, en undir lokin hafa
stýrimenn klúbbanna og
stjórn skólafélagsins verið
með mér í þessu.“
„Út frá hverju er gengið,
þegar efni er valið á hátíð
sem þessa?
„Það er reynt að hafa
það sem fjölbreytilegast -
tónlist, leiklist, myndlist,
bókmenntir og kvikmynd-
ir. Eins reynum við að
miða dagskrána við sem
breiðastan aldurshóp.
Annars er ég hrædd um,
að dagskráin hafi e.t.v.
höfðað frekar til ungs fólks
að þessu sinni. Leikritið
Rauðhetta, sem vera átti í
upphafi hátíðarinnar og
sem einkum var hugsað
sem dagskrárliður fyrir þá
yngstu, gat t.d. ekki komið
inn í dagskrá hátíðarinnar
fyrr en hún var að verða
búin.“
„Þú minnist á sam-
Framhald á 4. afðu
A skírdag var hið fegursta veður, og voru þá hundruð ísfirö-
inga og annarra gesta 43. Skíðavikunnar á Seljalandsdal.