Vestfirska fréttablaðið - 13.04.1978, Page 3
...Jóhann
Orð í eyra
Vorið er komið
„Vorið er komið og
grundirnar gróa“ (göturn-
ar eru fullar af skít). Þegar
ég leit út snemma morguns
á sunnudag fór ekki hjá
því, að innra með mér
vaknaði vorstemmning.
Hin gamalkunna og sí-
gilda vorvísa Jóns Thor-
oddsen skaut upp kollin-
um og þegar mér varð
hugsað til ritstjóra þessa
blaðs og loforðs míns um
að pára nokkrar línur, á-
kvað ég að færa mér í nyt
vorstemmninguna. (Það er
aftur á ábyrgð ritstjórans
að hafa á nýjan leik hleypt
mér inn á síður blaðsins
eftir langa fjarvist).
Vorið er tími gróandans
og það hefur góð áhrif.
Jafnvel í hinu daglega
amstri segja menn að ,,nú
sé vor í lofti“ þegar fyrir-
sjáanlegt er að hlutirnir
fari að ganga betur. Skipt-
ir þá árstíðin ekki máli.
Vorið örvaði andann og
skáld fyrri tíma ortu um
það ljóð með orðfæri sem
við skiljum (Þar fyrirfund-
ust ekki malbikuð hjörtu
og vindurinn fór ekki i
gegnum sjálfan sig og kom
út hinumegin) Og vorverk-
in hófust.
Eitt af því sem tilheyrði
vorverkunum a.m.k. hér
áður fyrr var að taka til í
kringum sig, ditta að utan-
húss, þrífa lóðina, fjarlægja
drasl er safnast hafði fyrir
yfir veturinn. Þannig þótti
tilhlýðlegt að tekið væri á
móti sumrinu þegar „vor-
boðinn ljúfi“ hafði ýtt burt
vetrardrunganum.
Að kveða
gömlu vísuna aftur
Ég verð að viðurkenna
að jaað var með hálfum
huga að ég hnýtti ,„sviga-
setningunni“ aftan við
upphaf vorvísunnar. Er þó
í góðum tilgangi gert. Eg
hefi áður drepið á um-
gengni í bænum og þrif í
“orði“ mínu og mér finnst
satt best að segja ekki van-
þörf á, að kveða gömlu
vísuna aftur. S.l. sumar
létu félagssamtök sig málið
varða, en almennur áhugi
bæjarbúa varð ekki sýni-
legur. Augljóst er að bær-
inn kemur mjög óþrifaleg-
ur undan vetrinum og til
að þar verði um bætt svo
um muni þarf samstöðu.
Bæjarfélagið verður að
ganga á undan. Hvernig
væri t.d. að setja nú strax
upp ruslafötur? (Þær urðu
fáar í fyrra) Og hvernig
væri nú að við sjálf hreins-
uðum til á stéttinni og göt-
unni fyrir framan eigið
hús? Það er tiltölulega létt
verk að halda bænum
þrifalegum ef allir hjálpast
að. „Vilji er allt sem þarf‘
var einu sinni sagt og þau
orð eru í fullu gildi.
Að sjá fegurðina
En látum vorboðann
lyfta huganum. Eitt af því
sem hrjáir mannskepnuna
í nútímanum er hraðinn,
sem aftur leiðir m.a. af sér
hversdagsleikann. Þú gerir
hlutina af vana og telur
sjálfsagt að þetta eigi að
vera svona og svona og
hafi alltaf verið. Þú hættir
að líta í kringum þig. Um-
hverfið verður bakgrunnur
sem líður hjá án þess þú
takir eftir því, hvað þá þú
gefir gaum þeirri fegurð,
sem þar kann að leynast.
Nokkuð hefir aukist að
hér séu haldnar málverka-
sýningar og minnist ég
með ánægju sýningar að
loknu myndlistarnám-
skeiði á nær liðnum vetri,
þá vil ég nefna sýningar
Margrétar, Svölu og Jóns,
sem sýndu að víða leynast
góðir kraftar.
Fyrir tilviljun átti ég
leið á bæjarskrifstofurnar
fyrir skömmu. Fyrir utan
hugguleg húsakynni skilst
mér að þar sé að finna og
sjá svo til allar myndir í
eigu Listasafns ísafjarðar.
Það eru margar afbragðs
myndir. Ekki hefi ég á
móti því að starfsfólk bæj-
arskrifstofunnar fái að
njóta daglega þess unaðar,
sem falleg mynd getur
veitt, en hitt datt mér í
hug, að gjarnan mættu
fleiri augum líta. Hvernig
væri t.d. að hengja nokkrar
myndir upp á sjúkrahús-
inu og elliheimilinu? Já,
og í skólunum? Með hæfi-
legu millibili er hægt að
skipta um myndir. Vist-
mönnum elliheimilis og
sjúkrahúss yrði þetta
vafalaust kærkomið og
börn þurfa að læra að um-
gangast listaverk. Sköpun-
argleði barna er í velfelst-
um tilfellum nokkuð mikil
og fallegar og vel gerðar
myndir ættu að hafa góð
áhrif. Mér finnst ómaksins
vert að forráðamenn bæj-
arins og Listasafnsins íhugi
málið.
Sumardagurinn fyrsti
er í nánd. Sumarkoman er
ætið tilhlökkunarefni ekki
síst hjá börnum. Vonandi
færir sumarið okkur áfram-
haldandi uppbyggingu í
bæjarfélaginu, uppbygg-
ingu sem hlýtur að miðast
við það af fremsta megni,
að hér geti þróast fagurt og
gott mannlíf ungum sem
öldnum til blessunar.
.jóhann
Hafnarstræti 7
ísafirði
Sími3166
(------------
THORNYCROFT
BÁTAVÉLAR!
1 ©P. STEFANSSON HF. I
...... -.
Raf hf.
Bílabúð
Höfum dempara í
eftirtalda bíla:
Chevrolet og
marga aðra
ameríska bíla
Einnig:
DATSUN
FIAT
FORD, ameríska
enska og þýska
LADA
MAZDA 616 og 818
MOSKWICH
OPEL
LAND-ROVER
RANGE-ROVER
SAAB
SKODA
TOYOTA
VOLGA
VOLKSWAGEN
WILLYS
VOLVO
Raf hf.
ísafirði sími 3279
Fasteignii
til sölu \
X
C Stórholt 13. 4ra herbergja
JÍ íbúð með eða án bílskúrs.
T Afhendist tilbúin undir tré-
X verk og málningu eigi síðar
ven1. maí 1979.
X
X
^ Austurvegur 1. 3x 90 fer-
metra hús á besta stað í
X bænum. Tvær neðri hæðir
X lausar til afnota með
X skömmum fyrirvara, en sú
X efsta um næstu áramót.
X
X
X Fjarðarstr. 38. Lítil 4ra her-
X bergja íbúð á efstu hæð.
Jv Selst ódýrt ef samið verður
fljótt.
X
í Vantar á söluskrá fasteignir
X af öllum gerðum um alla N*
X Vestfirði. N*
Arnar G. Hin-
riksson hdl.
Aðalstræti 13, sími 3214
— Miklar
hafnarbætur
Aformað er að setja upp
löndunardælur, sem dæla
eiga loðnu úr skipum,
beint í þrær verksmiðjunn-
ar. Þá er og fyrirhugað að
koma upp útbúnaði til
þess að skipa út lausu
mjöli með dælum.
Með tilkomu löndunar
og viðleguplásss við
Grundagarð telja Bolvík-
ingar að miklu rýmra verði
um minni báta í höfninni
en áður, en þrengsli hafa
verið við trébryggjuna þeg-
ar loðnuskip hafa verið í
höfninni.
ás.
Framleiðum vandaða
PANEL-miðstöðvarofna
Teiknum miðstöðvarkerfi
STUTTUR AFGREIÐSLUFRESTUR — FÖST VERÐTILBOÐ
OFNASMIÐJA VESTFJARÐA
SÍMI 3903, — ÍSAFIRÐI