Vestfirska fréttablaðið - 10.05.1978, Síða 1
Afgreiðslan á ísafjarðarflugvelli, Sími 3400
Afgreiðslan Aðalstræti 24, sími 3410
FLUGFÉLAG
ÍSLANDS
LOFTLEIOIR
HERRASKYRTUR í ÚRVALI
Verslunin
ísafiröi sími 3507
Halldór Hermannsson, skipstjóri:
Rækjurabb —
Réttur mánuður er nú
síðan rækjuvertíð lauk.
Var hún ein sú besta, sem
komið hefur hér, miðað við
úthaldsdaga. Haustvertíð-
in var einnig mjög góð.
Var rækjan þá mjög stór
og falleg, eftir því sem
gerist hér við Djúp. Aftur
á móti brá til hins verra
eftir áramót, þar sem stóra
rækjan blandaðist þá smá-
rækjunni ofaní Djúpinu,
þannig að sjómenn áttu
fullt í fangi með að stand-
ast löglegar tölur. Mesti
leyfilegur fjöldi í hverju
kílói var á vertíðinni 310
stk. Þess má geta að fiski-
fræðingar hafa sett sér það
mark að koma viðmið-
unartölunni niður í 300
stk. pr. kíló. Sjómenn telja
hinsvegar að þegar hafi
verið gengið of langt í þess-
urn efnum og ekki muni
takast að breyta eðlisstærð
rækjunnar hér í Djúpinu,
þrátt fyrir ströng stærðar-
takmörk. Telja þeir besta
verndun smárækju felast í
því að möskvi í neti hefur
verið stækkaður og er nú
hvergi smærri en 40 milli-
metrar. Þetta hefur verið
gert að frumkvæði sjó-
manna sjálfra.
Rækjusjómenn eru ekki
á móti því að einstaka
svæðum sé lokað um tíma
Framhald á 11. sídu
Ferming á ísafirði
Sunnudagana 23. og 30.
apríl fóru fram fermingar í
ísafjarðarkirkju. Fermd
voru alls 48 börn, 25 stúlkur
og 23 piltar. Báða dagana
var hið fegursta veður sól og
hægviðri. Fjölmenni var að
vanda í kirkju við ferming-
arnar og nær eitt hundrað
til altaris hvort skipti. Sókn-
arpresturinn séra Jakob
Hjálmarsson ávarpaði börn-
in og áminnti þau um þær
skyldur, sem þau gengjust
undir gagnvart kirkju Krists
og að nú væru þau ekki
komin að leiðarlokum held-
ur upphafi þegnskapar full-
orðinna manna gagnvart
þjóð og kirkju.
Seinni fermingardagur-
inn var almennur bænadag-
ur og var yfirskrift hans
„helgi mannlegs lífs“, sem
prestur fléttaði með tilefni
dagsins.
Fermingar setja alltaf há-
tíðarsvip á bæjarlífið og
ennþá er ísafjörður ekki svo
stór, að allir eigi ekki hlut í
þeirri hátíð, sem fermingin
er. Foreldrar vilja í tilefni
dagsins gera vel til barna
sinna og ættingja og komið
er í verk ýmsum þeim fram-
kvæmdum sem dregist
hafa, svo hýbýlin verði sem
prýðilegust, þegar gesta er
Framhald á 11. síðu
Þessi börn fermdust í (safjaröarkirkju og í Hnífsdalskapellu.
SÝN 1978
Ljósmyndasýningin SÝN
’78 er að því er við höldum
fyrsta opinbera ljósmynda-
sýningin á Vestfjörðum.
Hugmyndin að sýning-
unni kom eiginlega í fram-
haldi af stofnun félags
áhugaljósmyndara fyrr í
vor, og var þá hugmynd
okkar sem að sýningunni
stöndum að þetta yrði öll-
Framhald á 11. síðu