Vestfirska fréttablaðið - 07.06.1978, Side 5
QT '1/edfiláfca
tfíétfaMuáiá
5
Kvenskátafélagið
Valkyrjan fimmtíu ára
Þann 17 maí 1978, eru liðin
50 ár frá því að kvenskátafé-
lagið Valkyrjan á ísafirði var
stofnað.
Tildrög þess að félagið var
stofnað, voru þau, að þann
29. febrúar 1928 var stofnað
hér á ísafirði skátafélag
drengja „Einherjar". Vaknaði
þá mikill áhugi hjá stúikunum
fyrir að stofna kvenskátafé-
lag. Varð svo úr, að Guðrún
Stefánsdóttir frá Kvenskátafé-
lagi Reykjavíkur kom hér og
stofnaði kvenskátafélag er
hlaut nafnið Valkyrjan. Stofn-
endur voru 8 og fyrsti félags-
foringi var Elísabet Guð-
mundsdóttir. Litlu sfðar tók
Auróra Halldórsdóttir við fé-
lagsforingjastarfi, en aðstoð-
arfélagsforingi var Unnur
Gísladóttir og störfuðu þær
sem slíkar til ársins 1934, en
þá flutti Auróra úr bænum.
Starfsemi félagsins lá
niðri í líú ár, eri' þann 26.
september 1936 var boðað-
ur fundur, þar sem mættu
11 stúlkur, allar ákveðnar í
að hefja félagsstarfsemina
á ný. Var þá kjörin félags-
foringi María Gunnars-
dóttir og var það upphafið
að rúmlega 25 ára starfi
hennar sem félagsforingi
Valkyrjunnar. A því tíma-
bili efldist félagið mjög og
var það ekki hvað síst að
þakka ötulli og traustri
stjórn félagsforingja.
Árið 1940 - 41 er María
Gunnarsdóttir var fjarver-
andi úr bænum, sinnti
Helga Kristjánsdóttir fé-
lagsforingjastarfinu og 10
árum síðar eða 1950 - 1951
var Halla Kristjánsdóttir
félagsforingi í eitt ár. Árið
1960 tók María R. Gunn-
arsdóttir við félagsforingja-
starfi og gegndi því til árs-
ins 1965, en þá tók við því
Auður H. Hagalín, til árs-
ins 1976, að núverandi fé-
lagsforingi Kristín Odds-
dóttir tók við.
Húsnæðismál félagsins
voru mjög á reiki í mörg ár
og fundir voru haldnir á
víð og dreif um bæinn.
Árið 1938 fengu skáta-
stúlkurnar herbergi til af-
nota í húsi Bárðar Tómas-
sonar að Túngötu 1. Það
herbergi sem kallað var
„Kátakot" var svo aðalset-
ur Valkyrjunnar allt fram
til ársins 1954. Nú hefur
félagið um árabil haft góða
starfsaðstöðu í húsi Ein-
herja, Skátaheimilinu, en
félögin hafa jafnan haft
með sér gott samstarf.
Strax á öðru starfsári fé-
lagsins var hafizt handa
um byggingu útileguskál-
ans „Dyngju“ á Dagverð-
Frá 40 ára afmæli Valkyrjunnar
ardal. Dyngja gengdi stóru
hlutverki í starfsemi félags-
ins, því að þangað var far-
ið í útilegur og gönguferðir
og eiga margar Valkyrjur
þaðan hugljúfar minning-
ar. Sögu gömlu Dyngju
lauk svo, að hún fauk í
óveðri aðfararnótt 30. jan-
úar 1972. Bygging nýrrar
Dyngju var hafin strax
sumarið 1972 og er það
hús ólíkt stærra og veiga-
meira í sniðum en hið
gamla, en smíði þess er
ekki enn full lokið.
Valkyrjur hafa sótt
mörg skátamót, bæði inn-
anlands og utan og staðið
fyrir Vestfjarðamótum
skáta í samvinnu við Ein-
herja og sömuleiðis hafa
þær í samvinnu við þá,
gengist fyrir ýmsum for-
ingjanámskeiðum fyrir
skáta á Vestfjörðum. Val-
kyrjur hafa ætíð verið við-
búnar að leggja hverskyns
mannúðarmálum lið og
hafa átt samstarf við önnur
félög í bænum um ýmis
málefni.
Nú starfa innan félags-
ins ljósálfasveit, 2 skáta-
sveitir, dróttskátasveit og
svannasveit.
Skátafélögin á ísafirði
minnast 50 ára afmælis fé-
laganna m.a. með því að
halda í sumar Skátamót
Vestfjarða og verður það í
Álftafirði dagana 29. júní
til 2. júlí.
Stjórn Valkyrjunnar
skipa nú:
Kristín Oddsdóttir, félags-
foringi
Ásthildur Ólafsdóttir, að-
stoðarfélagsforingi
Ingibjörg S. Einarsdóttir,
gjaldkeri
Ólöf Jónsdóttir, ritari
fevava Oddný Ásgeirsdótt-
ir, meðstjórnandi.
Byggð ný Dyngja.
Arður
til hluthafa
Á aðalfundi H.f. Eimskipafélags ís-
lands 18. maí 1978 var samþykkt að
greiða 10% - tíu af hundraði - í arð til
hluthafa fyrir árið 1977.
Arðurinn verður greiddur gegn fram-
vísun arðmiða á skrifstofu félagsins
frá kl. 13.00 -17.00 aila virka daga.
Afgreiðsla hf. Eimskipafélags fslands
Aðalstræti 24 — ísafirði
©
- Iðnskóla
slitið
utan Reykjavíkur og fer
auðvitað vel á því að slíkt
gerist á Isafirði, sem er
miðpunktur mikillar tog-
araútgerðar og fiskvinnslu,
en skólasókn til Reykjavík-
ur er kostnaðarsöm.“
Alls stunduðu 40 nem-
endur nám á hinum þrem-
ur stigum vélskólans og
sagði Valdimar að aukn-
ing starfsemi hanss byggð-
ist mjög á bættum tækja-
kosti og annarri aðstöðu
síðustu misseri. Fastráðnir
kennarar við skólann eru
nú fimm og tvær stöður
hafa verið auglýstar til við-
bótar og kom fram í ræðu
skólastjóra að gera yrði þá
kröfu til rekstraraðila skól-
ans, ríkis og bæjarfélags,
að sambærileg fyrirgreiðsla
varðandi húsnæði væri
veitt kennurum Iðnskólans
og kennurum annarra
skóla bæjarins. Stunda-
kennarar hafa verið 6-10
eftir þörf hverju sinni.
Nemendafélag skólans
og starfslið stóðu að skóla-
kynningu á Iiðnum vetri
og sagði Valdimar hana
hafa verið fjölsótta og hefði
hún ótvírætt borið þann
árangur að fleiri gerðu sér
nú grein fyrir nauðsyn
skólahalds af þessu tagi á
Isafirði. Var kynningin í
því fólgin að stillt var upp
kennslubókum og tækjum
og sýnd voru húsakynni
skólans. Leystu nemendur
og kennarar úr spurning-
um gesta. Þakkaði Valdi-
mar Jónsson nemendum
fyrir samstarfið og kvaðst
vona að framhald yrði á
því næsta vetur, en nem-
endur lögðu auk þessa
fram sjálfboðavinnu við
endurbætur á hinni verk-
legu aðstöðu skólans.
Gott píanó
óskast til kaups.
Upplýsingar í
síma 3685
lönskólinn ísafiröi
auglýsir:
Innritaö veröur í eftirtaldar deildir til 30.
júní:
Iðnskóla 1.2. og 3. áfanga
Vélskóla 1.2. og 3. stig
Stýrimannaskóla 1. stig
Teiknaraskóla
Tækniskóla frumgreinadeildir
(báöir vetur)
Umsóknir sendist skólanum merktar
iðnskólinn ísafirði
pósthólf 127
400 ísafjörður
Einnig má leita upplýsinga í síma 94-
4215 frá kl. 11-12 virka daga og heima
hjá skólastjóra í síma 94-3278.