Vestfirska fréttablaðið - 07.06.1978, Side 8
-------------------------------------------------—-----------tJ'velwMaoio
o - Gengið að kjörborði um Vestfirði
Hrafnseyri — Gömul teikning.
ekki vilja spá neinu um
hvort breytingar yrðu á
hreppsnefndinni í komandi
kosningum. Sagði hann, að
mannaskipti hefðu jú orðið í
hreppsnefndinni gegnum
tíðina, því menn hefðu flust
burt og eins hefðu menn orð-
ið að víkja sakir elli.
I AUÐKÚLUHREPPI verða
26 á kjörskrá í kosningunum
í sumar. Er það eitthvað
færra en síðast, því þá var
búsettí hreppnum fólk sem
starfaði við virkjunarfram-
kvæmdir.
1974 voru kosin í hrepps-
nefnd þau Ömar Þórðarson,
stöðvarstj., Mjólkárvirkjun,
Hreinn Þórðarson, bóndi,
Auðkúlu, Sigurjón Jónasson,
bóndi, Lokinhömrum,
Guðmundur V. Ragnarsson,
bóndi, Hrafnabjörgum og
Gyða Thorsteinsson, húsfrú,
Mjókárvirkjun.
Guðmundur V. Ragnars-
son, oddviti Auðkúluhrepps,
sagði engann lista þar í kjöri
nú. Sagði hann það hafa
komið aðeins einu sinni fyrir,
að listi hefði komið þar fram.
Þá var því sjálfkjörið, en
reyndar höfðu flestir hrepps-
búar skrifað undir þann
lista.
Guðmundur kvaðst reikna
með töluverðum breyting-
um, því að 10 aðalmönnum
og varamönnum sem kosnir
voru 1974 væru nú eftir 6.
Sagði Guðmundur, að í
nefndinni hefði verið fólk,
sem starfaði við Mjólkár-
virkjun en væri nú flutt burt.
Sagði hann að það stæði yfir-
leitt við í 6-8 ár, svo flyttist
Kirkjubói í Valþjófsdal.
það burt þegar börnin kæm-
ust á framhaldsskólaaldur.
í MÝRAHREPPI voru 88 á
kjörskrá í síðustu kosningum,
en verða væntanlega 95 í
kosningunum í sumar.
1974 voru kosnir í hrepps-
nefnd þeir Drengur Guðjóns-
son, bóndi, Fremstuhúsum,
Valdimar Gíslason, kennari,
Mýrum, Ásvaldur Guð-
mundsson, bóndi, Astúni,
Bergur Torfason, bóndi,
Felli og Oddur Jónsson,
bóndi, Gili.
Drengur Guðjónsson, odd-
viti Mýrahrepps, kvaðst ekki
eiga von á því að listar bær-
ust nú frekar en áður. Um
breytingar á hreppsnefnd
sagði hann erfitt að segja
nokkuð, allt gæti orðið.
í MOSVALLAHREPPI verða
nú 59 á kjörskrá, en voru
eitthvað færri 1974, Þá voru
kosnir í hrepssnefnd þeir
Brynjólfur Árnason, bóndi,
Vöðlum, Hagalín Guð-
mundsson, bóndi, Innri-
Hjarðardal, Guðmundur
Ingi Kristjánsson, bóndi,
Krikjubóli í Bjarnadal,
Björgmundur Guðmunds-
son, bóndi, Krikjubóli í Val-
þjófsdal og Kristján Jó-
hannesson, bóndi, Ytri-
Hjarðardal.
Guðmundur Ingi Krist-
jánsson, oddviti Mosvalla-
hrepps, sagðist ekki hafa
heyrt um neina lista enn.
Sagði hann, að fyrir 30 árum
hefði verið listaframboð í
Mosvallahreppi. Þá skiptust
menn í hópa eftir því hvar
þeir bjuggu í hreppnum, því,
viss hluti hreppsbúa taldi sig
hafðan útundan.
Þá gat Guðmundur Ingi
þess, að menn væru að boða
breytingar á skipan hrepps-
nefndarinnar. Það væri á-
greiningur meðal manna í
hreppnum um hvar vegur
ætti að liggja og því vildi viss
hópur koma ákveðnum
mönnum að.
Það er því aldrei að vita
hvað vegapólitíkin í Mos-
vallahreppi kann að leiða af
sér.
N-ísafjarðarsýsla
í ÖGURHREPPI verða ná-
lægt 35 á kjörskrá í kosning-
unum í sumar. 1974 völdust
í hreppsnefnd þeir Baldur
Bjarnason, bóndi, Vigur,
Halldór Hafliðason, bóndi,
Ögri, Kristján Kristjánsson,
Hvítanesi, Sigurjón Samú-
elsson, bóndi Hrafnabjörg-
um og Valdimar Valdimars-
son, bóndi, Strandseli.
Baldur Bjarnason, oddviti
Ögurhrepps, sagði að engir
listar yrðu í kjöri og hefðu
aldrei verið.
Kvað hann ómögulegt að
segja hvort einhverjar breyt-
ingar yrðu á hreppsnefnd, þó
gæti vel farið svo. Sagði
hann, að hreppsnefndamenn
hefðu tilhneigingu til að sitja
lengi, þegar þeir væru einu
sinni komnir þar inn.
f REYKJAFJARÐARHREPPI
verða 61 á kjörskrá í kom-
piiiiiimiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiy
f Nýkomnir
| Baðskápar og speglar
Fataskápar
línskápar
Garðhjólbörur og fleira
TIMBURVERSLUNIN
ÍSAFIRÐI ----- BJÖRK [
SlMAH 3063 og 3293 — PÓSTHÓLF 66
Himiimiiiiiiiimiiiiiiiinimniiiiiiiiiiiimiiiiiimiiiiiiii
Úrslit í kaupstöðum
og kauptúnahreppum
(safjörður
A-listi Alþýðuflokkur 361 atkv. og 2 menn kjörna.
B-listi Framsóknafl. 183 atkv. og 1 mann kjörinn.
D-listi Sjálfstæðisfl. 506 atkv. og 4 menn kjörna.
G-listi Alþýðubandal. 246 atkv. og 1 mann kjörinn.
J-listi óháðra borgara 247 atkv. og í mann kjörinn.
Á kjörskrá voru 1867, 1608 kusu.
Bolungarvík.
B-listi Framsóknarfl. 80 atkv. og 1 mann kjörinn.
D-listi Sjálfstæðisfl. 222 atkv. og 3 menn kjörna.
E-listi ungra manna 47 atkv. og engan kjörinn.
H-listi vinstri og óháðra 182 atkv. og 3 menn kjörna.
A kjörskrá voru 661, 552 kusu.
Patreksfjörður
A-listi Alþýðufl. 114 atkv. og 2 menn kjörna.
B-listi Framsóknarfl. 104 atkv. og 1 mann kjörinn.
D-listi Sjálfstæðisfl. 133 atkv. og 2 menn kjörna.
I-listi Framfarasinnaðir 133 atkv. og 2 menn.
Á kjörskrá voru 597, 516 kusu.
Tálknafjörður:
H-listi frjálslyndra 104 atkv. og 4 menn kjörna.
I-listi óháðra og vinstri 27 atkv. og 1 mann kjörinn.
A kjörskrá voru 160, 130 kusu.
Bíldudalur:
J-listi lýðræðissinnaðra 54 atkv. og 1 mann kjörinn.
K-listi óháðra 114 atkv. og 4 menn kjörna.
A kjörskrá voru 194, 171 kusu.
Þingeyri:
B-listi Framsóknarfl. 63 atkv. og 2 menn kjörna.
D-listi Sjálfstæðisfl. 48 atkv. og 1 mann kjörinn.
H-listi óháðra 67. atkv. og 2 menn kjörna.
V-listi vinstri manna 26 atkv. og engan kjörinn.
A kjörskrá voru 251, 209 kusu.
Flateyri:
C-listi hlaut 62 atkv. og 1 mann kjörinn.
D-listi Sjálfstæðisfl. 88 atkv. og 2 menn kjörna.
E-listi framfarasinna 71 atkv. og 2 menn kjörna.
A kjörskrá voru 268, 229 kusu.
Suðureyri:
A-listi Alþýðufl. og óháðra 34. atkv. og engan mann kjörinn.
B-listi Framsóknarfl. 69 atkv. og 2 menn kjörna.
D-listiSjálfstæðisfl. 93 atkv. og 2 menn kjörna.
G-listi fékk 46 atkv. og 1 mann kjörinn.
A kjörskrá voru 267, 244 kusu.
Súðavík:
Þar var kosið óhlutbundinni kosningu.
Atkvæðigreiddusamt 115. Þessir voru kjörnir í sveitarstjórn:
Hálfdán Kristjánsson, Sigurður Þórðarson, Ragnar Þor-
bergsson, Steinn Kjartansson og Ágúst Garðarsson.
A kjörskrá voru 150, 115 kusu.
Hólmavík:
H-listi óháðra 70 atkv. og 2 menn kjörna.
I-listi lyðræðissinnaðra 123 atkv. og 3 menn kjörna.
A kjörskrá voru 217, 198 kusu.
\